fbpx
Miðvikudagur 26.febrúar 2025
Eyjan

Silfur Egils sex ára

Egill Helgason
Fimmtudaginn 7. apríl 2005 00:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Silfur Egils er sex ára núna um helgina. Þátturinn fór fyrst í loftið 11. apríl 1999 á Skjá einum, sem þá sýndi aðallega gamla Dallasþætti – fyrir alþingiskosningar sem voru þá um vorið. Var talin ástæða til að skerpa á fremur dauflegri pólitískri umræðu. Síðan þá eru þættirnir orðnir hátt í þrjúhundruð talsins. Silfrið hefur verið á Stöð 2 síðustu tvö árin og er nú í beinni útsendingu í klukkan 12 á sunnudögum – í opinni dagskrá.

Sex ár þykja nokkuð langur tími í íslensku sjónvarpi; ef lítið er yfir sviðið eru ekki margir sjónvarpsþættir á dagskrá núna sem eiga lengri líftíma

Góðir gestir eru væntanlegir í þáttinn á sunnudag. Þar má nefna eina helstu vonarstjörnu íslenskra stjórnmála, Ásdísi Höllu Bragadóttur, bæjarstjóra í Garðabæ, Einar Odd Kristjánsson alþingismann og Össur Skarphéðinsson sem nú á í hörðum formannsslag í Samfylkingunni. Formannskosningin þar hefst eftir fáa daga.

Að vanda verður fjallað um þau pólitísku hitamál sem hæst ber um þessar mundir, en einnig reynt að horfa víðar um heiminn, tala um hugmyndir, alþjóðapólitík, þjóðmál í víðustum skilningi.

Þá er líklegt að verði rýnt aðeins betur – frá sjónarhóli kvennabaráttu – í arfleifð páfans látna sem vekur nú upp furðulega geðshræringu suður í Róm, en einnig sýnist manni að sé von á skýrslu margumtalaðrar fjölmiðlanefndar á næstu dögum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Inga Sæland rassskellti hrútspungana í Hádegismóum – örvænting og örþrifaráð einkenna stjórnarandstöðuna

Orðið á götunni: Inga Sæland rassskellti hrútspungana í Hádegismóum – örvænting og örþrifaráð einkenna stjórnarandstöðuna
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Kóngurinn er sestur að í Hvíta húsinu

Kóngurinn er sestur að í Hvíta húsinu
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Inga tók illa í fyrirspurn Hildar – Bergþór með föðurleg ráð

Inga tók illa í fyrirspurn Hildar – Bergþór með föðurleg ráð
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Vilhjálmur Birgisson skrifar: Hrægammarnir í bankakerfinu – græðgi á kostnað almennings

Vilhjálmur Birgisson skrifar: Hrægammarnir í bankakerfinu – græðgi á kostnað almennings
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Áslaug Arna: flokkurinn missti talsamband við fólk – gleymdi launþegum, íþróttum og atvinnulífinu

Orðið á götunni: Áslaug Arna: flokkurinn missti talsamband við fólk – gleymdi launþegum, íþróttum og atvinnulífinu
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Borgarstjórnarviðræður

Óttar Guðmundsson skrifar: Borgarstjórnarviðræður