fbpx
Miðvikudagur 17.júlí 2024
Eyjan

Um göng og gjaldfrjálsan háskóla

Egill Helgason
Þriðjudaginn 22. mars 2005 00:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Forvitnilegt er að athuga í sambandi við Héðinsfjarðargöng hver áhrif svona framkvæmd hefur á byggðaþróun. Við getum til dæmis tekið Ólafsfjörð sem tengdist byggðinni á Eyjafjarðarsvæðinu með jarðgöngum 1991. Áður höfðu íbúarnir þurft að fara um Ólafsfjarðarmúla, einn hrikalegasta veg á landinu. Göngin voru mikil samgöngubót.

1992, árið eftir að göngin opnuðu, bjuggu 1205 manns á Ólafsfirði. Um síðustu áramót, 2004, var íbúatalan komin niður í 979. Þetta er einhver mesta íbúafækkun á landinu á þessu tímabili.

Göng voru lögð til að tengja byggðir á norðanverðum Vestfjörðum og opnuðu þau 1996. Þetta var vissulega hin þarfasta framkvæmd fyrir byggðarlögin. En hún stöðvaði ekki fólksflóttann. Samkvæmt tölum Hagstofunnar bjó 4651 íbúi í þéttbýliskjörnunum sem mynda Ísafjarðarbæ (Ísafirði, Þingeyri, Flateyri, Suðureyri og Hnífsdal) árið 1994. Um áramótin 2004 var fjöldinn kominn niður í 3978.

Á Siglufirði hefur íbúum fækkað úr 1734 í 1392 síðan 1994. Raunar bjuggu þar yfir 3000 manns á sjöunda áratug síðustu aldar. Ungt fólkið flykkist frá svona stöðum. Þingmaður úr Norðausturkjördæmi sagði mér að ef nýjir íbúar bættust við á svona stað væri það helst efnað fólk frá Reykjavík að leita sér að athvarfi í sumarfríum. Reynslan sýnir að göng muni varla stöðva hnignun byggðarinnar.

— — —

Hún er dálítið kómísk reiðin sem braust út eftir að Steinunn Valdís Óskarsdóttir tilkynnti að borgin vildi stefna að gjaldfrjálsum leikskóla. Fjármálaráðherra kom upp í ræðustól á Alþingi í gær og skammaðist yfir því að borgarstjórnin vildi standa fyrir slíkri ósvinnu. Í því sambandi má nefna að ríkið stendur fyrir gjaldfrjálsum háskóla fyrir um 6000 fulllorðna einstaklinga.

Ég man heldur ekki betur en að helsta útspil Halldórs Ásgrímssonar – forsætisráðherrans í ríkisstjórninni sem Geir Haarde situr í – á flokksþingi Framsóknarflokksins um daginn hafi einmitt verið ókeypis leikskóli. Þá var nefnt við Halldór að leikskólinn væri á framfæri sveitarfélaganna, en hann svaraði því til að það væri mál sem menn yrðu barasta að finna lausn á.

Ef borgin treystir sér til að bjóða upp á gjaldfrjálsan leikskóla verður ábyggilega pólitísk samstaða um það. Þetta er mál af því tagi sem enginn þorir að vera á móti þegar kosningar blasa við. Svonalagað vinnur jafnvel kosningar. Því er ekki furða að fát hafi komið á Sjálfstæðismenn.

Annars kvarta ég ekki undan því að borga skólagjöld í leikskólanum. Þjónustan þar er frábær. Líklega er leikskólinn besta skólastigið. En jafn fáránlegt er að varla megi tala um skólagjöld í Háskóla Íslands. Það lýsir til dæmis kreppu í stofnuninni að ekkert þeirra fjögurra sem buðu sig fram til rektors þorði að mæla með skólagjöldum.

— — —

Óbreyttur verkamaður, Jens Elíasson, rís upp og kærir stjórn Sameinaða lífeyrissjóðsins fyrir að gera 43 milljón króna starfslokasamning við framkvæmdastjóra sem þótti í ofanálag standa sig illa í starfi. Þessi gjörningur er náttúrlega líkastur því að spræna á sjóðsfélagana. Maður skilur varla í öðru en að flótti hjóti að bresta í liðið. Það eru meira en tuttuguföld árslaun verkamanns sem sjóðsstjórinn fær fyrir að láta sig hverfa

Svo bíður maður líka eftir útspili frá Davíð Oddssyni, svona svipað því þegar hann fór og tók peningana út úr KB-bankanum. Nema Halldór Ásgrímsson geri eitthvað?

— — —

Kári fór á þríhjólinu í leikskólann í morgun. Hann kann reyndar ekki nota pedalana, heldur ýtir sér áfram með fótunum. Þetta var frekar seinlegt ferðalag. Á leiðinni sá ég að krókusar og páskaliljur voru að koma upp í görðum. Við vorum glaðir yfir þessu og rifjuðum upp vísuna sem við fórum oft með í fyrravor:

Vorið góða grænt og hlýtt,

græðir fjör um dalinn.

Nú er allt sem orðið nýtt,

ærnar, kýrnar, smalinn.

Á forsíðu Silfurs Egils

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Ragnar Þór segir þingmann Framsóknarflokksins staðfesta spillingu í landbúnaði – „Allt í boði spilltra stjórnmála“

Ragnar Þór segir þingmann Framsóknarflokksins staðfesta spillingu í landbúnaði – „Allt í boði spilltra stjórnmála“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Ríkisútvarpið telst trauðla menningarstofnun

Björn Jón skrifar: Ríkisútvarpið telst trauðla menningarstofnun
Eyjan
Fyrir 1 viku

Rasismi sagður á uppleið í Frakklandi – Spennan magnast fyrir seinni umferð þingkosninganna – Ofbeldisverk framin af bæði vinstri og hægri mönnum

Rasismi sagður á uppleið í Frakklandi – Spennan magnast fyrir seinni umferð þingkosninganna – Ofbeldisverk framin af bæði vinstri og hægri mönnum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Dagfari: Látum ekki koma fram við okkur eins og búfénað – eini ómöguleikinn er þegar þingið hlýðir ekki þjóðinni

Dagfari: Látum ekki koma fram við okkur eins og búfénað – eini ómöguleikinn er þegar þingið hlýðir ekki þjóðinni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hildur hæðist að Sigmundi og upphlaupi hans í gær – „Það má brosa að því þegar formaðurinn baunar“

Hildur hæðist að Sigmundi og upphlaupi hans í gær – „Það má brosa að því þegar formaðurinn baunar“