Jóhannes Björn, höfundur bókanna Falið vald og Falið vald eiturlyfjakolkrabbans, verður gestur í Silfri Egils á sunnudag. Bókin Falið vald vakti geysilega athygli þegar hún kom út rétt fyrir 1980, heil kynslóð reif hana í sig og hún hafði mikil áhrif á pólitíska vitund margra. Jóhannes Björn er maður sem er vanur að horfa á stóru línurnar í pólitíkinni og í þættinum verður meðal annars rætt við hann um hnattvæðingu viðskiptalífsins, stöðu hagkerfisins í Bandaríkjunum, olíumarkaðinn, lyfjarisa og fall dollarans.
Þátturinn er ekki fullmannaður enn, en meðal annarra gesta sem eru komnir á blað eru Agnes Bragadóttir blaðamaður, Guðmundur Ólafsson hagfræðingur og Sigurður G. Tómasson útvarpsmaður.
Silfur Egils er í beinni útsendingu á Stöð 2 klukkan 12 á sunnudögum. Þátturinn er í opinni dagskrá. Hann er svo endurtekinn stuttu fyrir miðnætti um kvöldið, en einnig er hægt að skoða hann hér á veftívíinu.