fbpx
Mánudagur 24.febrúar 2025
Eyjan

Garðar, Jóhanna, Benedikt í Silfri

Egill Helgason
Föstudaginn 26. nóvember 2004 00:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Meðal gesta í Silfri Egils á Stöð 2 næsta sunnudag eru Garðar Sverrisson, formaður Öryrkjabandalagsins, Benedikt Jóhannesson, stærðfræðingur og útgefandi, Jóhanna Sigurðardóttir alþingismaður, Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðarsambandsins, Stefán Pálsson múrverji, Páll Baldvin Baldvinsson, blaðamaður og gagnrýnandi og Halldór Einarsson íþróttavöruframleiðandi – betur þekktur sem Henson.

Meðal umræðuefna í þættinum eru skattalækkanir og deilur um þær, fjárlagaumræðan, kreppa sem svokallað fjölmenningarsamfélag er komið í, íslensk leyniþjónusta, Íraksstríð og herförin í Falluja, undanþágur Íslendinga frá Kyotobókuninni, fjármál stjórnmálaflokkanna og einnig verður spurt hvort hinir ríku séu að verða ríkari. Þá verða nýútkomnar bækur til umfjöllunnar.

Henson kemur í þáttinn til að segja frá Úkraínu, en þar var hann í atvinnurekstri hátt í þriggja ára skeið og þekkir land og þjóð betur en flestir Íslendingar. Heimsbyggðin fylgist átekta með hinum dramatísku atburðum þar eystra, en Henson er í sambandi við vini sína þar.

Fleiri þátttakendur eiga svo eftir að bætast við áður en þátturinn fer í loftið.

Þátturinn er í beinni útsendingu í opinni dagskrá klukkan 12 á hádegi á sunnudag. Hann er svo endursýndur stuttu fyrir miðnætti um kvöldið en einnig er hægt að fylgjast með honum hér á veftívíiinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir: Krónan kostar íslensk heimili 250 þúsund krónur á mánuði – heildarkostnaður 500 milljarðar á ári

Sigmundur Ernir: Krónan kostar íslensk heimili 250 þúsund krónur á mánuði – heildarkostnaður 500 milljarðar á ári
Eyjan
Fyrir 1 viku

Áslaug Arna: Stjórnkerfið svifaseint, snýst um sjálft sig og vinnur gegn kjörnum fulltrúum fólksins

Áslaug Arna: Stjórnkerfið svifaseint, snýst um sjálft sig og vinnur gegn kjörnum fulltrúum fólksins