fbpx
Mánudagur 24.febrúar 2025
Eyjan

Guðrún, Ólína, Dagur og Siggi

Egill Helgason
Föstudaginn 12. nóvember 2004 00:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Meðal gesta í Silfri Egils á Stöð 2 á sunnudaginn eru Guðrún Helgadóttir, rithöfundur og fyrrverandi alþingismaður, Ólína Þorvarðardóttir, skólameistari Menntaskólans á Ísafirði, Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi, Sigurður Kári Kristjánsson alþingismaður, Árni Gunnarsson, fyrrverandi alþingismaður, Ólafur Hannibalsson blaðamaður, Ágúst Borgþór Sverrisson rithöfundur og hinn sögufrægi barnakennari Herdís Egilsdóttir.

Einhverjir fleiri eiga sjálfsagt eftir að bætast í þennan hóp, en þess má geta að bæði Ólína og Guðrún Helgadóttir voru borgarfulltrúar í Reykjavík á sínum tíma.

Það er nóg til að tala um í þættinum. Vitaskuld kreppuna í borgarstjórninni í Reykjavík og ráðningu Steinunnar Valdísar, olíumálin, forsögu þeirra og afleiðingar, lögin á kennaraverkfallið, beiðni Bobby Fischers um hæli á Íslandi, skoðanakannanir um fylgi stjórnmálaflokkanna, tillögu um að skipta um þjóðsöng á Íslandi og væntanlega eitthvað fleira.
*Þátturinn er í opinni dagskrá á Stöð 2 klukkan 12 á hádegi á sunnudag. Hann er svo endurtekin undir miðnætti sama kvöld, en einnig má skoða hann hér á vefTívíinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir: Krónan kostar íslensk heimili 250 þúsund krónur á mánuði – heildarkostnaður 500 milljarðar á ári

Sigmundur Ernir: Krónan kostar íslensk heimili 250 þúsund krónur á mánuði – heildarkostnaður 500 milljarðar á ári
Eyjan
Fyrir 1 viku

Áslaug Arna: Stjórnkerfið svifaseint, snýst um sjálft sig og vinnur gegn kjörnum fulltrúum fólksins

Áslaug Arna: Stjórnkerfið svifaseint, snýst um sjálft sig og vinnur gegn kjörnum fulltrúum fólksins