fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Eyjan

Mætti lemja mann í trúnaði?

Egill Helgason
Laugardaginn 23. október 2004 00:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Umboðsmaður Alþingis hefur sett reglur um samskipti sín við ráðamenn. Þar er meðal annars kveðið á um að þeir eigi ekki að tala við hann í trúnaði. Vilji þeir geta athugasemdir við störf umboðsmanns verði það að vera skriflega eða á sérstökum fundi.

Þetta er auðvitað ekki að tilefnislausu líkt og alþjóð veit. Orsökin er símtalið sem umboðsmaður fékk frá Davíð Oddssyni síðastliðið vor, eftir að hann hafði fjallað um skipan Ólafs Barkar Þorvaldssonar, frænda Davíðs, í Hæstarétt.

Ríkisútvarpið endurflutti á föstudag brot úr viðtali við Davíð þar sem hann sagðist hafa sagt þrívegis við umboðsmann að samtal þeirra væri í trúnaði. Það átti semsagt að vera alveg skýrt. Allt er þegar þrennt er.

Aldrei hefur komið almennilega í ljós hvað þeim fór á milli í símanum þennan dag – samkvæmt fréttum hótaði forsætisráðherrann þáverandi umboðsmanninum. Og nú vill umboðsmaðurinn semsagt ekki framar vera á þessu stigi trúnaðar. En í framhaldi af þessu verður manni á að spyrja:

Er hægt að lemja mann í trúnaði?

Afsakaðu, ég lamdi þig – en það var í trúnaði…

— — —

Orri Hauksson, fyrrverandi aðstoðarmaður Davíðs Oddssonar og núverandi toppmaður hjá Símanum, er orðinn stjórnarformaður Skjás eins. Það fer varla á milli mála að sjónvarpsstöðin er blá í gegn, því annar lykilmaður í stjórninni er Gunnar Jóhann Birgisson, fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sonur Birgis Ísleifs. Magnús, framkvæmdastjóri Skjásins er sonur Ragnars Júlíussonar, sem einnig var borgarfulltrúi fyrir flokkinn og mikill trúnaðarmaður hans.

Og svo er aðstoðarmaður utanríksráðherra náttúrlega fremstur í flokki í pólitískum þætti á stöðinni.

Menn velta eðlilega fyrir sér plottunum í kringum þetta. Þarna er kannski aðallega spurningin hvar plottin verða til, hvar þeim er ungað út, hver veit hvað og hvenær? Orri er náinn vinur Davíðs Oddssonar og mun hafa verið honum mjög til ráðgjafar í fjölmiðlamálinu – ásamt Illuga Gunnarssyni.

Sjálfur get ég svo bætt því við að snemma í haust, stuttu áður en Davíð hvarf úr Stjórnarráðinu, horfði ég á þá Illuga, Orra og Gunnar Jóhann í hrókasamræðum á blettinum fyrir framan Stjórnarráðshúsið. Ég gat ekki annað en ályktað að þeir væru að koma út úr húsinu – eða þannig leit það allavega út.

En auðvitað er ekki allt sem sýnist – kannski hittust þeir bara af tilviljun og voru að tala um veðrið eða píanóleik.

— — —

DV hefur gert mikið mál úr því að Siv Friðleifsdóttir hafi birst á mynd með mótorhjólatöffurum sem síðar réðust inn á skrifstofur blaðsins og eru kenndir við þá óskemmtilegu iðju handrukk. Siv getur auðvitað ekkert að þessu gert.

Siv var gestur hjá mér í Silfrinu um síðustu helgi og heimasíðu hennar birtast líka þessar myndir af henni í miklu skemmtilegra kompaníi…

— — —

Á fimmtu viku kennaraverkfalls spyrja menn: Er ekki skólaskylda í landinu?

Jú, var það ekki til skamms tíma.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur