Meðal gesta í Silfri Egils á sunnudaginn verða Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins og Jón Baldvin Hannibalsson, sendiherra og fyrrverandi utanríkisráðherra. Einhverjir fleiri munu svo bætast við þetta einvalalið, en í þættinum er líka rætt við Jacques Juillard, sem er einn virtasti blaðamaður Frakklands, höfundur bóka og dálkahöfundur í tímaritinu Le Nouvel Observateur.
Þátturinn er í opinni dagskrá á Stöð 2 klukkan 12 á sunnudag. Hann er svo endursýndur undir miðnættið, en einnig er hægt að virða hann fyrir sér hér á veftívíinu.