fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Eyjan

Forkostulegur forsetavinur

Egill Helgason
Fimmtudaginn 7. október 2004 00:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Einhver skemmtilegasti viðmælandi sem ég hef komist í kynni við er gestur í Silfri Egils á sunnudaginn. Þetta er Bandaríkjamaðurinn James C. Humes, afkastamikill höfundur fjölda bóka um pólítík, sagnfræði og ræðuhöld, forkostulegur náungi, sem hefur þó unnið sér það helst til frægðar að vera ræðuskrifari fyrir hvorki meira né minna en fimm Bandaríkjaforseta: Eisenhower, Nixon, Ford, Reagan og Bush eldri. Humes hefur þekkt persónulega marga af frægustu heimsleiðtogum síðustu aldar, hann er hafsjór af sögum og skrítlum úr stjórnmálunum – og leggur áherslu á orð sín með því að herma eftir þeim sem hann er að segja frá. Þannig er viðtal við hann nánast eins og að horfa á leiksýningu. Humes er eftirsóttur fyrirlesari og tekur stórar fjárhæðir fyrir að koma fram.

Helsta afrek Humes á ritvellinum er þó að hafa sett saman textann á plattann sem geimfararnir Armstrong og Aldrin fóru með til tunglsins 1969. Það gerði hann að beiðni Nixons forseta. "We come in peace for all mankind," stóð þar. Þetta leika víst ekki margir höfundar eftir.

Sem fyrr segir hefur Humes skrifað mikinn fjölda bóka. Þar má nefna rit um Abraham Lincoln, Benjamin Franklin, Eisenhower, Nixon og Churchill – ætli megi ekki fullyrða að hann hneigist fremur til gamaldags persónusögu. Stóra hetjan í huga hans er Churchill og raunar má segja að hann sé búinn að herma svo mikið eftir breska stjórnmálaskörungnum að hann sé farinn að líkjast honum ansi mikið.

Sjálfsævisaga Humes heitir "Confessions of a White House Ghostwriter" og fær fjórar og hálfa stjörnu hjá amazon.com Humes hefur líka skrifað bækur á gamansömum nótum, þar á meðal er ein sem fjallar um hvernig maður eigi að fara að því að láta bjóða sér í Hvíta húsið.

Allavega get ég mælt með þessu viðtali, það er fjörugt og fyndið.

Silfur Egils er á dagskrá á Stöð 2 sunnudaga klukkan 12, í opinni dagskrá.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sakar Reykjavíkurborg um að draga lappirnar varðandi viðbrögð við rafhjólaslysum

Sakar Reykjavíkurborg um að draga lappirnar varðandi viðbrögð við rafhjólaslysum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir sigur Kristrúnar og Samfylkingarinnar geta orðið mun stærri en búist er við

Segir sigur Kristrúnar og Samfylkingarinnar geta orðið mun stærri en búist er við
Eyjan
Fyrir 1 viku

Rasismi sagður á uppleið í Frakklandi – Spennan magnast fyrir seinni umferð þingkosninganna – Ofbeldisverk framin af bæði vinstri og hægri mönnum

Rasismi sagður á uppleið í Frakklandi – Spennan magnast fyrir seinni umferð þingkosninganna – Ofbeldisverk framin af bæði vinstri og hægri mönnum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Kristrún óskar Starmer til hamingju með sögulegan sigur

Kristrún óskar Starmer til hamingju með sögulegan sigur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Gagnrýnir ríkisstjórnina harðlega og líkir við hræddan strút – „Hefur sýnt að hinn almenni borgari getur étið það sem úti frýs“

Gagnrýnir ríkisstjórnina harðlega og líkir við hræddan strút – „Hefur sýnt að hinn almenni borgari getur étið það sem úti frýs“