fbpx
Föstudagur 22.nóvember 2024
Eyjan

Húsnæðisbólan að springa

Egill Helgason
Miðvikudaginn 1. janúar 2003 00:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

The Economist segir að stærsta bóla sögunar sé um það bil að springa. Þetta er hækkun á húsnæðisverði sem hefur verið nánast linnulaus víða í heiminum undanfarin ár. En nú segir blaðið að reikningsskilin séu nærri; þeim mun stærri sem bólan sé, þeim mun erfiðari verði eftirleikurinn. Merki eru um að húsnæðisverð sé á niðurleið í Ástralíu og Bretlandi, markaðurinn í Bandaríkjunum kann að vera svona ári á eftir.

Fjárfestar hafa verið að setja peninga sína í húsnæði, rétt eins og þeir keyptu hlutabréf í tölvufyrirtækjum á árunum fyrir 2000. Ein hættan er að þeir reyni að selja í stórum stíl. Húsnæðisverð mun þó ekki hrynja jafnhratt og markaðurinn þá. Fremur er við því að búast að það sígi niðurávið. Vandinn er hins vegar sá að venjulegt fólk tekur lán til að kaupa húsnæði; víða í heiminum hafa skuldir einstaklinga vaxið óðfluga í samræmi við hækkandi húsnæðisverð. Almenningur hefur aldrei verið jafn skuldugur og nú.

— — —

Eigendur húsnæðis hafa líka notað þessa bólu, slegið lán út á hækkandi verð eigna sinna – notað þær eins og einhvers konar hraðbanka til að fjármagna neyslu. Þetta er eitt af því sem hefur haldið efnahag heimsins uppi undanfarin ár. Tveir fimmtuhlutar allra starfa sem hafa orðið til í Bandaríkjunum síðan 2001 hafa verið í greinum sem tengjast húsnæðismarkaðnum.

Allt mun þetta horfa öðruvísi við þegar húsnæðisverðið tekur að lækka, ef húseignir hætta að standa undir lánunum sem þarf að borga af þeim. Þá mun hinn blómlegi neytendamarkaður á Vesturlöndum dragast saman – kreppa blasir við. Economist telur að eftir slíkt fall muni markaðurinn þurfa langan tíma til að jafna sig – jafnvel heilan áratug. Fólk sem treysti á að húseignir myndu sjá því fyrir þægilegum eftirlaunum þarf aftur að fara að nurla.

— — —

Húsnæðisverð hefur verið að hækka stórkostlega á Íslandi eins og annars staðar. Enn vantar þó talsvert upp á að verðið sé jafnhátt og í borgum erlendis. Maður selur ekki í Reykjavík og kaupir í London, New York eða Stokkhólmi. Meira að segja á grísku eyjunum er húsnæðisverðið orðið fáránlega hátt. Sæmileg villa hér á Naxos kostar allt upp í 500-600 þúsund evrur sýnist mér. Maður nagar sig í handarbökin að hafa ekki keypt svoleiðis hús fyrir svona fimm árum.

— — —

Eins og svo oft áður erum við Íslendingar á svipuðum slóðum og annað fólk í heiminum. Við fylgjumst bara svo illa með að við föttum það ekki og eyðum því tímanum í að þrasa um hluti sem við höldum að séu séríslenskt fyrirbæri….

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Í gær

Arion banki sá að sér eftir að upp úr sauð á Fjármálatips

Arion banki sá að sér eftir að upp úr sauð á Fjármálatips
Eyjan
Í gær

Gunnar bendir á sláandi staðreynd um stýrivextina – „Hvergi í veröldinni er auður hinna ríku varinn af eins miklum ákafa“

Gunnar bendir á sláandi staðreynd um stýrivextina – „Hvergi í veröldinni er auður hinna ríku varinn af eins miklum ákafa“
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Kosningar: Lilja og Alma takast á um skatta og innviðafjárfestingu

Kosningar: Lilja og Alma takast á um skatta og innviðafjárfestingu
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Bregðast við stjórnarskrárbroti Alþingis – „Þetta er hið raunverulega andlit og arfleifð Sjálfstæðisflokksins“

Bregðast við stjórnarskrárbroti Alþingis – „Þetta er hið raunverulega andlit og arfleifð Sjálfstæðisflokksins“
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ragnar segir tíma til kominn að þora að spyrja stóru spurninganna um lífeyrissjóðina – „Við erum þrælar eigin kerfis“

Ragnar segir tíma til kominn að þora að spyrja stóru spurninganna um lífeyrissjóðina – „Við erum þrælar eigin kerfis“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Þingkosningar: Lilja segir ríkisstjórnina hafa fjárfest mikið í innviðum – Alma segir innviðskuldina ógna orkuskiptum

Þingkosningar: Lilja segir ríkisstjórnina hafa fjárfest mikið í innviðum – Alma segir innviðskuldina ógna orkuskiptum
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Grein 4 um ESB/evru: Þýzkaland tók evru fram yfir sitt ofursterka mark (DM) – hvað segir það okkur?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Grein 4 um ESB/evru: Þýzkaland tók evru fram yfir sitt ofursterka mark (DM) – hvað segir það okkur?