Erlent

Stefnir í að rússneskir liðhlaupar geti hvergi flúið

Mynd
Rússneskur T-14 Armata skriðdreki á hersýningu 2020. Mynd:EPA

Talið er að þúsundir manna hafi flúið herþjónustu í rússneska hernum í stríðinu við Úkraínu. Það getur þó reynst erfitt fyrir þessa menn að finna einhvern stað til að flýja á og til stendur að loka dágóðum hluta ríkja Evrópum fyrir rússneskum liðhlaupum.

Sænska ríkissjónvarpið, SVT, ræðir við mann sem var liðsforingi í rússneska hernum en lét sig hverfa frá vígstöðvunum í Úkraínu og flúði til Armeníu þar sem fréttamaður SVT ræddi við hann.

Talið er að allt að tugir þúsunda manna hafi gerst liðhlaupar í rússneska hernum en leyniskjöl sem var lekið og í kjölfarið opinberuð árið 2024 sögðu heildartöluna þá vera um 50.000 menn.

Margir þeirra fóru framan af til Kasakstan en yfirvöld þar í landi hafa farið að fylgjast meira með rússneskum liðhlaupum og hefur því straumur þeirra færst til Armeníu.

Glæpamenn

Liðhlaupinn sem SVT ræddi við segir hreina lögleysu ríkja á vígstöðvunum og að hann hafi látið sig hverfa eftir að hafa lent upp á kant við yfirmenn sína. Hann segir rússneska herinn á svæðinu samanstanda að töluverðu leyti af dæmdum glæpamönnum sem hafi verið látnir lausir og sendir á vígstöðvarnar. Oft séu þetta menn sem hafi hlotið dóma fyrir alvarlega glæpi þar á meðal nauðganir.

Liðhlaupinn segist ekki vera öruggur í Armeníu en það séu fáir aðrir staðir sem hann geti farið til. Fari hann aftur til Rússlands eigi hann yfir höfði sér fangelsisdóm og í fangelsi muni hann örugglega deyja:

„Ef þeir finna mig dá dey ég,“ segir hann.

Lokað

Liðhlaupinn mun hins vegar ekki hljóta neina miskunn eða skjól víðast hvar um Evrópu.

Innan stofnana Evrópusambandsins er nú unnið að áætlun um að banna þeim sem hafa gegnt herþjónustu í rússneska hernum í Úkraínustríðinu að koma inn á Schengen-svæðið. Ætlunin er að það muni líka eiga við um liðhlaupa og þá sem segist hafa verið neyddir í herinn. Nú þegar er orðinn til listi með þúsundum nafna.

Margus Tsahkna utanríkisráðherra Eistlands er eindreginn talsmaður þess að hrinda þessum áformum í framkvæmd. Aðspurður um stöðu liðhlaupa og þeirra sem segjast hafa verið neyddir í rússneska herinn segir ráðherrann að það sé spurning sem beina verði til Vladimír Pútín Rússlandsforseta. Málið snúist um að vernda íbúa þessara landa en óski aðilar í þessari stöðu eftir hæli verði hvert mál skoðað fyrir sig.