Raunveruleikastjarnan Khloé Kardashian deildi nýjum myndum af sér á Instagram á dögunum. Myndirnar hafa vakið gríðarlega athygli og er hún sögð nær óþekkjanleg á myndunum. LadBible greinir frá.
Khloé hefur tekið miklum breytingum undanfarin ár en fólk varla kannast við hana á nýjustu myndunum.
https://www.instagram.com/p/CAgYA12BRqi/
Raunveruleikastjarnan hefur verið sökuð um að notast við aðeins of mikið Photoshop til að breyta myndunum. En það er vel þekkt að Kardashian-systurnar breyti myndunum sínum fyrir samfélagsmiðla. Glöggir fylgjendur stjörnunnar tóku eftir photoshop-mistökum sem komu upp um hana. Það vantar hluta af keðjunni á hálsmeninu hennar.
Margir hafa gagnrýnt hana og sagt hana vera lélega fyrirmynd fyrir ungar stúlkur.
„Þér líður augljóslega ekki vel í eigin skinni,“ skrifaði einn netverji.
„Þú hefur gengist undir svo margar fegrunaraðgerðir að ég kannast ekki við þig lengur og þú varst uppáhaldið mitt,“ skrifaði annar.
Khloé hefur ekki tjáð sig um málið.