Manuela Ósk Harðardóttir, samfélagsmiðlastjarna og fegurðardrottning, er ekki alls kostar sátt með fylgjendur sína og segir þeim til syndanna. Brot þeirra, að hennar mati, er að glápa á myndir af henni og læka ekki.
Þetta kemur fram í Instagram-sögu hennar. Fyrir fimm dögum birti hún mynd af sér í bikiní og fékk fyrir það tæplega átta hundruð læk. Manuela komst þó á snoðir um að ríflega nítján þúsund manns hafi séð myndina. „Þetta er svo shitty,“ segir Manuela ósátt.
Manuela segir þetta ólíðandi. „Ef ég fylgi þér þá mun ég læka myndirnar þínar! Fylgjendur ættu ekki að vera bara fylgjendur heldur stuðningsmenn. Þegar ég horfi á „pages insight“ þá stemma ekki tölurnar,“ segir Manuela.
Hún birtir svo samtal sitt við vinkonu hennar en sú segir: „Þoli ekki fólk sem njósnar en lækar aldrei #hræsni“. Þessu svarar Manuela: „Bara fáránlegt!!!!! Án djóks – það eru svona 15-18k sem skoða myndina mína og ég fæ kannski 400 likes. Kommon“.