fbpx
Mánudagur 07.apríl 2025
Fókus

Sindri fær hrós úr óvæntri átt: „Það er hlý og bjartsýnisleg ára í kringum Sindra“

Fókus
Mánudaginn 7. apríl 2025 07:41

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kolbrún Bergþórsdóttir, fjölmiðlakona á Morgunblaðinu, segir sína skoðun á mönnum og málefnum yfirleitt umbúðalaust. Í fjölmiðlapistli sínum í Morgunblaðinu í dag gerir hún fjölmiðlamanninn geðþekka Sindra Sindrason hjá Stöð 2 að umtalsefni.

„Það skiptir mann máli að fréttamenn og þulir séu vinalegir á skjánum. Enginn er vinalegri en Sindri Sindrason,“ segir Kolbrún og tekur dæmi.

„Einn daginn er maður kannski ósköp niðurlútur eftir að vera búinn að frétta af barnamorðum á Gasa, mannfalli í Úkraínu og nýjum tilskipunum Donalds Trump sem fela í sér mannréttindabrot. „Mikið er þessi heimur vondur og mikið óskaplega er gæðum misskipt,“ hugsar maður þar sem maður býr við öryggi og hefur fátt að óttast, allavega enn sem komið er.“

Hún heldur svo áfram:

„Um kvöldið er Sindri Sindrason mættur á skjáinn á Stöð 2 til að segja manni fréttir, þessar sem höfðu gert mann mæddan og svo aðrar sem eru beinlínis upplífgandi. Góðu fréttirnar snúast kannski um dýr og börn og skemmtileg uppátæki þeirra. Eftir að hafa sagt þær fréttir krossleggur Sindri hendur og segir hlýr og brosmildur: „Þetta var nú aldeilis fallegt!“ – og maður kinkar ósjálfrátt samþykkjandi kolli til sjónvarpsmanns sem maður er eiginlega farinn að líta á sem heimilisvin af bestu gerð.“

Kolbrún endar pistilinn, sem ber yfirskriftina Sindri, vinur minn á skjánum, svona:

„Það er hlý og bjartsýnisleg ára í kringum Sindra, ekkert nöldur, engin neikvæðni, ekkert niðurbrot. Það er gott að vita af honum.“

Kolbrún Bergþórsdóttir.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Enginn treystir Trump

Nýlegt

Fókus
Fyrir 5 dögum

Harmsaga vinsælustu klámstjörnu Pornhub – Hvar er Lana Rhoades í dag?

Harmsaga vinsælustu klámstjörnu Pornhub – Hvar er Lana Rhoades í dag?
Fókus
Fyrir 5 dögum

Næsta stóra kynlífsáskorun Bonnie Blue – Er þetta líkamlega hægt?

Næsta stóra kynlífsáskorun Bonnie Blue – Er þetta líkamlega hægt?
Fókus
Fyrir 6 dögum

Starfsmenn Hallgrímskirkju ráku upp stór augu í morgun

Starfsmenn Hallgrímskirkju ráku upp stór augu í morgun
Fókus
Fyrir 6 dögum

Jón Jónsson lifandi gína á Laugavegi

Jón Jónsson lifandi gína á Laugavegi