Það eru ekki allir sem kannast við nafnið Aumary Vergara en hann hefur vakið athygli fyrir ummæli sem hann lét falla fyrir helgi.
Vergara er eigandi Chivas í Mexíkó en hann er ekki of vinsæll á meðal stuðningsmanna félagsins en margir vilja meina að hann vilji lítið sem ekkert styrkja leikmannahóp liðsins.
Vergara viðurkennir að hann sé ekki að einbeita sér aðeins að aðalliðinu heldur horfir einnig mikið í akademíuna þar sem hann eyðir miklum peningum.
Vergara varð eigandi Chivas árið 2019 eftir andlát föður síns, Jorge Vergara, og vill meina að þessi gagnrýni eigi engan rétt á sér þar sem hann sé að sjá um heilsu félagsins.
,,Það eru margir sem gagnrýna hvernig ég rek klúbbinn, þeir segja að ég setji enga peninga í verkefnið. Þeir taka ekki eftir því að ég einbeiti mér að unglingastarfinu,“ sagði Vergara.
,,Við erum búnir að leggja mikið fjármagn í æfingasvæðið og höfum sent unga leikmenn á mót erlendis. Þessir peningar fóru ekki bara til annarra liða, við erum að fjárfesta í okkar eigin leikmönnum.“