fbpx
Mánudagur 07.apríl 2025
Fréttir

Segir Íslendinga verða af milljörðum á hverju ári – „Þetta er til háborinnar skammar“

Ritstjórn DV
Laugardaginn 5. apríl 2025 12:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gunnar Örlygsson, fyrrum þingmaður Frjálslynda flokksins og Sjálfstæðisflokks, segir þjóðina verða af milljörðum á hverju ári og Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og forystufólk í stjórnmálum beri ábyrgðina.

Gunnar skrifar um þetta á Facebook þar sem hann birtir mynd af þorsk og segir: „Þorskurinn á myndinni skilar 40-50% meiri verðmætum í þjóðarbúið ef við flökum hann á Íslandi. Tökum hann í vinnslu hér heima. Í dag erum við að fóðra fiskvinnslur í Evrópu sem eru ríkisstyrktar og borga lægri laun. Þetta kallast að skjóta sig í fótinn.“

Gunnar bendir á að Ísland heimili óheftan útflutning á óunnum fiski úr landinu. Líklega verði þetta um 50.000 tonn á þessu ári og þar verði þjóðin af tekjum.

„Sem þjóð verðum við af milljörðum á hverju ári og talað er um tugi milljarða. Sameiginlega eigum við takmarkaða auðlind. Væri ekki betra að framleiða þennan fisk hér heima og hámarka tekjurnar fyrir þjóðina?“

Gunnar segir að Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) og forystufólk í stjórnmálum beri ábyrgð á þessari miklu sóun.

„Þetta er til háborinnar skammar þar sem sama fólk ber sér á brjóst á hátíðar- og tyllidögum um að auka skuli verðmætin og stuðla að fullvinnslu aflans á Íslandi. Það verður að setja á vinnuskyldu og byrja strax á þorsk og ýsu. Annars fer megnið af strandveiðiaflanum óunnið í gáma í sumar. Ef þetta breytist ekki þá verður ykkur öllum að góðu með vaxandi innviðaskuld. Nú er mál að linni, ný ríkisstjórn verður að taka á þessu máli en fyrri ríkisstjórnir féllu allar á prófinu í þessu máli.“

Gunnar sat á þingi á árunum 2003-2007. Hann hefur undanfarinn áratug rekið fiskútflutningsfyrirtækin Icemar og AG Seafood.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nýr framkvæmdastjóri hjá Sjálfstæðisflokknum

Nýr framkvæmdastjóri hjá Sjálfstæðisflokknum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Diljá Mist fékk áskorun frá ungum stúlkum sem vildu lengri útivistartíma – Nú hefur þetta gerst

Diljá Mist fékk áskorun frá ungum stúlkum sem vildu lengri útivistartíma – Nú hefur þetta gerst
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Starfs­fólki sárnaði um­fjöllunin: „Ekki í höndum heil­brigðis­stofnana að út­vega ein­stak­lingum gistingu“

Starfs­fólki sárnaði um­fjöllunin: „Ekki í höndum heil­brigðis­stofnana að út­vega ein­stak­lingum gistingu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Njáll Torfason er látinn – Þekktur fyrir ótrúlega hæfileika

Njáll Torfason er látinn – Þekktur fyrir ótrúlega hæfileika