fbpx
Föstudagur 11.apríl 2025
Pressan

Þetta gerir hárið þitt feitara og þú tekur ekki eftir því

Pressan
Sunnudaginn 6. apríl 2025 13:30

Ætli þessi glími við feitt hár?

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þú ert varla búin að klára að þvo hárið en samt sem áður eru ræturnar hálf leiðinlegar og fitukenndar daginn eftir. Þetta er auðvitað pirrandi en áður en þú varpar sökinni á hársvörðinn eða notar mikið af þurrsjampói, þá er rétt að veita því athygli að sumar af daglegum venjum þínum geta átt sök á þessu.

Þegar hárið virðist vera þungt og feitt, þá er freistandi að þvo það daglega. En ef þú gerir það, þá áttu á hættu að búa til vítahring. Ef þú þværð hárið daglega, þá skolarðu náttúrulega fitu í burtu en hún verndar hársvörðinn. Það hefur þær afleiðingar að að hársvörðurinn fer í varnarstöðu og framleiðir enn meiri fitu til að mæta tapinu.

Réttu viðbrögðin við þungu og feitu hári er að nota milt sjampó og nota til dæmis þurrsjampó þá daga þegar þú þværð hárið ekki með milda sjampóinu.

Það þarf líka að hafa í huga að það eru ekki öll sjampó sem henta hárinu þínu og ef þú notar ranga tegund, þá getur valdið því að hárið verður hratt feitt. Veldu milt sjampó, sem er súlfatlaust, sem er ætlað fyrir feitt hár.

Ef þú notar of mikla hárnæringu og nuddar henni alveg ofan í hársræturnar, þá er það ávísun á hörmungar. Hárnæring getur haft íþyngjandi áhrif á hársvörðinn en það ýtir undir fituframleiðslu.

Þú snertir hárið þitt of mikið en það er svolítið sem við gerum ómeðvitað. En þetta er ekki gott fyrir hársvörðinn því fita og drulla af fingrunum endar þá í hárinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Trump sakaður um markaðsmisnotkun – Færsla hans á samfélagsmiðlum þótti sérlega grunsamleg

Trump sakaður um markaðsmisnotkun – Færsla hans á samfélagsmiðlum þótti sérlega grunsamleg
Pressan
Í gær

Varpa fram óhugnanlegri kenningu vegna morðs á vísindamanni

Varpa fram óhugnanlegri kenningu vegna morðs á vísindamanni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Enginn vildi eignast E.T.

Enginn vildi eignast E.T.
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ítalir í áfalli – Tvær stúdínur myrtar

Ítalir í áfalli – Tvær stúdínur myrtar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sundurlimað lík vísindamanns fannst í ferðatösku

Sundurlimað lík vísindamanns fannst í ferðatösku
Pressan
Fyrir 3 dögum

Kim Jong-un stillti sér upp með risastóran leyniskytturiffil

Kim Jong-un stillti sér upp með risastóran leyniskytturiffil