fbpx
Laugardagur 29.mars 2025
Pressan

Spjótin beinast að þjóðaröryggisráðgjafanum eftir ævintýralegt klúður með hernaðarleyndarmál – „Mike Waltz er fokking ingjaldsfífl“

Pressan
Þriðjudaginn 25. mars 2025 10:54

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Frétt frá miðlinum Atlantic setti allt á hliðina í gær, en þar greindi ritstjóri miðilsins Jeffrey Goldberg frá því að honum hafi fyrir mistök verið bætt í háleynilegt hópspjall nokkurra æðstu ráðamanna Bandaríkjanna þar sem þeir skipulögðu árásir á Húta í Jemen. Samskiptin fóru fram í gegnum spjallforritið Signal.

Goldberg segist í fyrstu ekki hafa trúað því að þetta væri raunverulegt, þó að aðilar í spjallinu væru auðkenndir með nöfnum nokkurra æðstu embættismanna Bandaríkjanna, svo sem JD Vance Bandaríkjaforseti, Pete Hegseth varnarmálaráðherra og svo þjóðaröryggisráðgjafinn Mike Waltz. Það var sá síðastnefndi sem bætti Goldberg í spjallið. Goldberg fylgdist þó með spjallinu í forundran og þegar Hegseth greindi frá smáatriðum fyrirhugaðra árása fóru að renna á ritstjórann tvær grímur. Var þetta raunverulega að gerast? Hegseth nefndi nákvæmar stað- og tímasetningar og Goldberg lýsir því að hann hafi setið í bíl sínum einmitt þegar árásirnar áttu að hefjast og vaktað samfélags- og fréttamiðla til að komast að því í eitt skiptið fyrir öll hvort spjallið væri raunverulegt eða hvort þetta væru nettröll. Og viti menn! Fréttir fóru fljótlega að berast af árásum í Jemen, á þeim stöðum sem Hegseth hafði nefnt. Spjallið var raunverulegt og þarna höfðu verið rædd ríkisleyndarmál sem Goldberg vissi að ekki voru ætluð hans augum. Hann yfirgaf því spjallið, vitandi að hópurinn fengi meldingu um það. En samt hafði enginn samband.

Goldberg rekur sumt sem fór fram í spjallinu í frétt sinni en tekur fram að þar hafi margt annað komið fram sem væri saknæmt fyrir hann að fjalla um, enda hernaðarleyndarmál.

Trump kom af fjöllum

Málið hefur nú sett allt á hliðina og ekki þykir Donald Trump Bandaríkjaforseti hafa orðið sér til sóma þegar hann kom af fjöllum þegar blaðamenn báru þetta undir hann í gær. Það sama á við um Hegseth sem reyndi að þræta fyrir sannleiksgildi fréttarinnar þrátt fyrir að Hvíta húsið hefði þá þegar staðfest að allt liti út fyrir að Goldberg hefði verið bætt í spjallið fyrir mistök.

Trump sagði: „Ég veit ekkert um þetta. Ég er enginn aðdáandi Atlantic. Fyrir mér er þetta miðill sem er á leiðinni í þrot.“

DailyMail greinir nú frá því að innan Hvíta hússins séu menn ekki lukkulegir með þjóðaröryggisráðgjafann, Mike Waltz. Heimildarmaður miðilsins Politico, sem starfar í Hvíta húsinu, sagði í skjóli nafnleyndar: „Allir í Hvíta húsinu geta verið sammála um eitt: Mike Waltz er fjandans ingjaldsfífl.“

Goldberg segir í samtali við MSNBC að þó það sé óheppilegt að Waltz hafi óvart boðið blaðamanni í spjallið þá geti þjóðaröryggisráðgjafinn þakkað sínu sæla að hafa ekki óvart boðið Húta í spjallið, eða rússneskum njósnara eða öðrum óvini Bandaríkjanna.

Einn embættismaður segir við Politico: „Það var ábyrgðarleysi að skoða ekki hverjir voru í spjallinu. Það er ábyrgðarleysi að hafa átt þetta samtal á Signal. Þú getur ekki haft svona ábyrgðarleysi sem þjóðaröryggisráðgjafi.“

Sumir embættismenn eru nú á því að Waltz þurfi að segja af sér til að hjálpa Trump að bjarga andliti í málinu, einkum þar sem Trump hefur farið mikinn um að í störf skuli aðeins ráða hæfasta fólkið frekar en að ráða inn á grundvelli fjölbreyttni, jafnréttis eða inngildingar.

Andstæðingar og fyrrum samherjar ná ekki upp í nef sér

Stjórnarandstaðan og jafnvel repbúlikanar sem hafa snúið baki við Trump hafa gagnrýnt málið harðlega og vilja meðal annars fá úr því skorið hvort lög hafi verið brotin.

Fyrrum forsetaframbjóðandi demókrata, Hillary Clinton, skrifaði á samfélagsmiðilinn X: „Ertu ekki að grínast í mér?“ en repúblikanar, þar með talið Trump, höfðu harðlega gagnrýnt hana fyrir að nota einkanetþjón fyrir opinber samskipti fremur en að notast við netþjón innanríksiráðuneytisins. Þar með hafi Clinton stefnt upplýsingaöryggi í hættu.

Fyrrum þingmaðurinn Adam Kinzinger segir að ef einhver innan hersins yrði uppvís að öðru eins klúðri yrði sá hinn sami rekinn á staðnum og jafnvel handtekinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Kafbátaferð breyttist í martröð – Að minnsta kosti sex látin og margir slasaðir

Kafbátaferð breyttist í martröð – Að minnsta kosti sex látin og margir slasaðir
Pressan
Í gær

Indverjar mótmæla stofnun nýrra kínverskra stjórnsýsluumdæma– Ná inn á indverskt yfirráðasvæði

Indverjar mótmæla stofnun nýrra kínverskra stjórnsýsluumdæma– Ná inn á indverskt yfirráðasvæði
Pressan
Fyrir 2 dögum

Nærmynd af meintum morðingja sem hefur verið hylltur sem hetja og fordæmdur sem hryðjuverkamaður – Hver er Luigi Mangione?

Nærmynd af meintum morðingja sem hefur verið hylltur sem hetja og fordæmdur sem hryðjuverkamaður – Hver er Luigi Mangione?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Frakkar ætla að enduropna kjarnorkuflugvöll og staðsetja orustuþotur með ofurhljóðfrá kjarnorkuflugskeyti þar

Frakkar ætla að enduropna kjarnorkuflugvöll og staðsetja orustuþotur með ofurhljóðfrá kjarnorkuflugskeyti þar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hún er með nýra úr svíni og slær daglega met og vekur vonir margra

Hún er með nýra úr svíni og slær daglega met og vekur vonir margra
Pressan
Fyrir 3 dögum

Segir að Frakkar „eigi að vera þakklátir fyrir að tala ekki þýsku“

Segir að Frakkar „eigi að vera þakklátir fyrir að tala ekki þýsku“