fbpx
Miðvikudagur 26.mars 2025
Eyjan

Heiða Björg borgarstjóri: Markaðurinn þarf ramma – mann langar að hafa eitthvað fallegt að horfa á

Eyjan
Mánudaginn 24. mars 2025 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Reglur og rammar verða að gilda um skipulag byggðar og einstakra húsa í borginni. Markaðurinn verður að hafa skýrar reglur til að fara eftir og ekki er hægt að koma eftir á og ætla að breyta. Þetta sýna m.a. mistök sem gerð hafa verið í uppbyggingu og má þar nefna tiltekið grænt hús í borginni. Þétting byggðar gengur út á að bæta lífið fyrir fólkið í borginni, minnka ferðatíma og gæra þjónustu nær fólkinu. Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjórinn í Reykjavík, er viðmælandi Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Hægt er að hlusta á brot úr þættinum hér:

Eyjan - Heiða Björg - 4
play-sharp-fill

Eyjan - Heiða Björg - 4

„Kannski hefur svolítið gleymst í umræðunni um þéttingarstefnuna af hverju er verið að þétta,“ segir Heiða Björg. Hún heldur áfram og segir stundum haldið af stað með verkefni en markmiðið kunni svo að gleymast. „Markmiðið er auðvitað að fleiri íbúar búi nálægt hver öðrum af því þá fáum við þjónustu inn í hverfin. Þá fáum við meiri samskipti og það er það sem gerir fólk hamingjusamt og öruggt í lífinu. Við erum bara hópdýr, manneskjan. Fólk sem sér fólk út um gluggann hjá sér er öruggara á sínu heimili. Það eru einhverjar rannsóknir sem sýna það.“

Hún segir þéttingu byggðar m.a. ganga út á að minnka ferðatíma. „Það eykur líka lífsgæði ef þú þarft ekki að ferðast langa vegu til dæmis til vinnu eða sækja menningu og annað. Og það er auðvitað tilgangurinn. Borgin var of dreifð til þess að bera þessa þjónustu inni í hverfunum og íbúarnir hafa kvartað yfir því að þjónustan hafi verið að hverfa svolítið úr hverfunum inn í miðlæga kjarna sem þeir þurftu þá að keyra í.“

Heiða Björg segir fólk vilja búa í hverfi sem hafi sinn sjarma. Og þess vegna var farið í þetta, auðvitað til þess að bara þétta borgina, gera hana einhvern veginn lífvænlegri og meira lifandi. Það þarf auðvitað að vera jafnvægi þarna. Jú, jú. Þetta þarf að gera með íbúum og ég held ég get alveg tekið undir það að á einhverjum reitum er þéttingin dálítið mikil. Og það er þessi jafnvægislist. Þess vegna munum við klára það núna að búa til borgarhönnunarstefnu sem setur reglur sem uppbyggingaraðilar þurfa að hafa. Til dæmis bara varðandi birtu inn í íbúðir, að það séu gluggar.“

Hún segir hægra fólk tala mikið um að það sé allt of mikið af reglum og allt of mikið. „Svo verða, ég vil leyfa mér að segja mistök. Bara eins og er verið að ræða um núna um ákveðið hús í borginni, grænt hús. Þá er kallað eftir ábyrgð borgarinnar, ábyrgð borgarinnar að setja svona skilmála.“ Hún segir ekki þýða að koma eftir á og ætlast til þess að uppbyggingaraðilar breyti húsum sem búið er að byggja. Þeim beri engin skylda til að breyta húsum sem séu byggð í samræmi við skilmála og reglur. Ekkert gildi hafi að breyta skilmálunum eftir að húsið er risið.

Heiða Björg segir ekki hægt að treysta markaðnum til þess að gera allt fullkomið án reglugerða og skýrra ramma.

Það þarf reglur, það þarf ramma utan um hlutina?

„Já, við þurfum að gera meiri ramma og ég held að þessu verði örugglega mótmælt og sagt að þetta sé allt of íþyngjandi og allt, en ég held að borgarbúar vilji borg sem er gott að búa í, sem er falleg, sem uppfylli þessi skilyrði. Sérstaklega þar sem atvinnulífið og íbúðabyggðin mætast. Mann langar að hafa eitthvað fallegt að horfa á.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

Einnig er hægt að hlusta á Spotify

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Heiða Björg borgarstjóri: Sjálfstæðismenn seldu hlutinn í Landsvirkjun – borgarbúar njóta ekki arðgreiðsla þaðan

Heiða Björg borgarstjóri: Sjálfstæðismenn seldu hlutinn í Landsvirkjun – borgarbúar njóta ekki arðgreiðsla þaðan
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Heiða Björg Hilmisdóttir: Kannski er mér kennt um að Sjálfstæðisflokkurinn komst ekki til valda

Heiða Björg Hilmisdóttir: Kannski er mér kennt um að Sjálfstæðisflokkurinn komst ekki til valda
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Ofstæki og heift ræður för – Sá ykkar sem syndlaus er kasti fyrsta steininum

Orðið á götunni: Ofstæki og heift ræður för – Sá ykkar sem syndlaus er kasti fyrsta steininum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Könnun – Hver tekur við af Ásthildi Lóu sem mennta- og barnamálaráðherra?

Könnun – Hver tekur við af Ásthildi Lóu sem mennta- og barnamálaráðherra?
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Ágúst Borgþór skrifar: Skjól fyrir þolendur eða eltihrella?

Ágúst Borgþór skrifar: Skjól fyrir þolendur eða eltihrella?
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Sjáðu hvað þaulsetna Rósa er með í laun sem þingmaður, formaður bæjarráðs, bæjarfulltrúi og stjórnarkona

Sjáðu hvað þaulsetna Rósa er með í laun sem þingmaður, formaður bæjarráðs, bæjarfulltrúi og stjórnarkona
Hide picture