fbpx
Sunnudagur 16.mars 2025
Pressan

Hakkarahópurinn Anonymous boðar aðgerðir gegn ríkisstjórn Trump – „Þið standið frammi fyrir uppgjöri“

Pressan
Laugardaginn 15. mars 2025 13:00

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hakkarahópurinn Anonymous hefur heitið aðgerðum gegn bandarískum stjórnvöldum og auðmönnum. Þeir segja lýðræðið í húfi og ætla ekki að selja frelsi sitt til að þeir ríki geti orðið ríkari. Þeir hafa undanfarinn mánuð birt skilaboð og myndbönd þar sem þeir hvetja fólk til að standa í fæturna, sjá í gegnum áróðurinn og til að trúa staðreyndum frekar en lygum.

Skilaboð Anonymous

Anonymous birtu eftirfarandi skilaboð í gær:

„Kæra mannfólk. Þið standið frammi fyrir uppgjöri. Þið eruð nú að sjá svart á hvítu að þeim ríku er skítsama um ykkur. Þið eruð að sjá raunveruleg andlit illsku og græðgi og jafnvel þeir sem styðja við þessar aðgerðir (á borð við tolla og að rústa efnahaginum) munu líða fyrir þær. Við reyndum að vara ykkur við en því miður vill mannfólkið læra hlutina á erfiðan hátt. Bandaríkjamenn munu senn læra mikilvæga lexíu: þegar þið kjósið gráðugt og sjálfselskt fólk í æðstu stöður stjórnvalda munu allir tapa nema þeir gráðugu og eigingjörnu.

Uppgjafahermenn eru að missa bætur og störf út af niðurskurði, bændur munu fara á hausinn og matarverð mun hækka gífurlega – og já, þeir illu munu líklega henda fram einhverjum björgunaraðgerðum en enginn verður eftir til að rækta jarðirnar þeirra því öllu vinnuafli verður vísað úr landi.

Fyrir löngu síðan, þegar við hófum vegferð okkar sem aðgerðarsinnar, gengu flest okkar til liðs við þennan hóp því við vildum breyta heiminum til hins betra – að koma á heim sem ber ást, samkennd og samúð til allra – heim jafnréttis allra manna óháð því hver þeir eru. Við höfum séð mannkynið hafna þessari sýn okkar aftur og aftur – og það er vegna þess að svo margir líta upp til auðfólksins því þeir telja það gáfað. Þrátt fyrir að það hafi ítrekað verið sannað að þetta sama fólk sem þið dýrkið er í raun illa gefið.

Í stað þess að taka vísindum opnum örmum eru margir Bandaríkjamenn að snúa við þeim baki – í skiptum fyrir röklausar samsæriskenningar. Þetta hófst löngu fyrir COVID-19, en þá var samt hlegið að þessum kenningum. Núna er það svo að ef einhver kemur með samsæriskenningu er hún mögnuð upp þúsundfalt á netinu. Við kennum menntunarleysi um þetta sem og skorti á vísindalæsi. Við kennum þessu sama um það hversu heimskt fólk er orðið.

Hvað sem því líður munu hlutirnir, á heimsvísu, líklega verða erfiðir mörgum því illskan sem svo margir hafa tekið fagnandi er nú komin með völdin. Þeir illu stjórna. Þar til fólk stendur raunverulega í fæturna og gerir eitthvað í þessu munu þessir aðilar ýta ykkur fram á ystu nöf. Og þegar þeir hafa ýtt ykkur að brúninni munuð þið verða jafnvel róttækari en við. Það er á þeim tímapunkti sem við getum kannski öll sem samfélag og siðmenning fært okkur aftur í áttina að betri framtíð fyrir allt mannkyn. Við getum aðeins haldið í vonina. Njótið þessarar lexíu og njótið ferðarinnar. Friður, Anonymous.“

Ríkur bastarður

Hakkararnir byrjuðu fljótlega eftir að Trump tók við embætti að lofa aðgerðum. Þann 14. febrúar birtu hakkararnir myndband þar sem þeir sögðu meðal annars: „Trump, Musk og Pútín eru með feigðarflan og lýðræðið ykkar er í húfi“

Hakkararnir sögðu samband Donald Trump, Elon Musk og Vladimir Pútíns vera ógnvænlegt. Það sé í raun ótrúlegt að fólk sé tilbúið að styðja þessa aðila þar sem bara Elon Musk sé persónugerving alls þess sem varað er við í samsæriskenningum. „Ríkur bastarður, með alltof mikil áhrif sem er staðráðinn í því að taka völdin í heiminum, hangandi í jakkafaldi fólksins sem hann segist vera að frelsa. Eruð þið tilbúin að tapa frelsinu ykkar? Er dýrkun ykkar á hinum ríku þess virði að tapa lýðræðinu ykkar? Þetta er ekki ofsóknarbrjálæði. Rússlandsverkefnið er þekkt skjal þar sem fjallað er um hvernig skuli kippa fótunum undan vestrænum lýðræðisríkjum. Þar er því sem er að gerast núna lýst nákvæmlega. Að notfæra sér óreiðuástand í efnahaginum, að nýta áhrifafólk, að grafa undan trausti almennings þar til lýðræðið er rjúkandi rúst.“

Trump og Musk megi fokka sér

Hakkararnir segja að Trump hafi gefið Musk ótakmarkað vald og Trump eigi sömuleiðis í grunsamlegu vinasambandi við Pútín. Þessi sambönd séu beint upp úr þessu Rússlandsverkefni. Hakkararnir segjast hafna því að beygja sig fyrir þessum aðilum og öðrum auðmönnum.

„Við köllum loddarana til ábyrgðar. Við afhjúpum lygar þeirra og leysum upp valdablokkirnar sem þeir hafa byggt á bökum þeirra valdalausu. Valdaleysi er þó tálsýn. Þið hafið vald, þið bara beitið því ekki. Anonymous sér í gegnum bullið, þið ættuð að gera það líka. Rísið á fætur, streitist á móti, heimtið að þessir aðilar taki ábyrgð, áður en það er um seinan. Þögnin jafngildir uppgjöf.

Anonymous ætlar ekki að sitja á hliðarlínunni lengur. Við steytum hnefunum í átt að þeim spilltu, ríku olígörkunum, og fasísku skíthælunum sem dreymir um framtíð sem byggir á kúgun og auðmýkingu. Ef ykkur dreymir um betri heim, heim sem er laus við eiginhagsmunaseggina, gangið til liðs við okkur. Marserið með okkur, berjist með okkur. Þetta er barátta sem mannkynið má ekki tapa og við erum tilbúin að rífa niður veggi ógnarstjórnarinnar, stein fyrir stein. Trump má fokka sér, Elon má fokka sér, oligarkar mega fokka sér, fasistar mega fokka sér. Við erum nafnlaus. Við erum lýður. Við fyrirgefum ekki. Við gleymum ekki. Búist við okkur.“

Hakkararnir hafa tilkynnt um aðgerð sem þeir kallað Dreadnaught. Ekki liggur fyrir nákvæmlega hvernig hún verður útfærð en hún mun beinast gegn bandarískum stjórnmálamönnum og mun líklega felast í DDoS árásum, innrás í gagnakerfi og skemmdarverk gegn heimasíðum hins opinbera. Eins verður spjótunum beint gegn kristnum samtökum sem styðja við Trump, far-hægri áhrifavöldum, rússneskum fjölmiðlum og embættismönnum og fleirum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Þessir drykkir geta átt sök á hrukkunum þínum

Þessir drykkir geta átt sök á hrukkunum þínum
Pressan
Í gær

Málarekstur sagður framundan um erfðaskrá Gene Hackman

Málarekstur sagður framundan um erfðaskrá Gene Hackman
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sakfelldur fyrir að hafa ítrekað mök við systur sína – Tilkynnti sjálfur um málið

Sakfelldur fyrir að hafa ítrekað mök við systur sína – Tilkynnti sjálfur um málið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lögreglan var kölluð út vegna innbrots – Leystu sjö ára gamalt mál í kjölfarið

Lögreglan var kölluð út vegna innbrots – Leystu sjö ára gamalt mál í kjölfarið
Pressan
Fyrir 3 dögum

Setja starfsfólkinu afarskilyrði – Gangið í hjónaband eða missið vinnuna

Setja starfsfólkinu afarskilyrði – Gangið í hjónaband eða missið vinnuna
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hún er 108 ára og starfar enn sem rakari

Hún er 108 ára og starfar enn sem rakari