Landsréttur staðfesti í gær 15 mánaða fangelsisdóm yfir Gabríel Aron Sigurðarsyni fyrir líkamsárás sem hann framdi sumarið 2022. Jafnframt hækkaði Landsréttur upphæð miskabóta sem Gabríel þarf að greiða brotaþola, úr 800 þúsund krónum í eina milljón króna.
Brotaþolar í málinu eru tveir en önnur varð mun harðar fyrir barðinu á honum. Þetta voru fyrrverandi vinkona Gabríels og herbergisfélagi hennar. Þær bjuggu á þessum tíma í Hafnarfirði. Herbergisfélaginn var nýkomin úr verslun. Hún opnaði svalahurðina til að lofta út á meðan hún eldaði. Áður en hún gat hafist handa var Gabríel skyndilega kominn óboðinn inn og vopnaður. Gabríel rukkaði herbergisfélagann um peninga sem hún skuldaði honum. Hann lét sér þó ekki nægja minna en að taka allt reiðufé sem hún hafði á sér, sem var nokkuð umfram skuldina, eða um 50 þúsund krónur. Því næst rauk hann inn í svefnherbergi þar sem vinkona hans svaf.
Vinkonan vaknaði við vondan draum. Gabríel stóð yfir henni og öskraði: „Af hverju svarar þú ekki símanum?“, en þegar hún reyndi að svara fyrir sig greip hann um háls hennar og þrengdi að. Hann stakk hana síðan í handlegginn með hnífi.
Hún náði að grípa síma sinn og hringja þar í kunningja. Sá heyrði lætin og heyrði vinkonuna grátbiðja Gabríel um að hætta atlögu sinni. Gabríel hafi svo slegið til hennar og svo skyndilega látið sig hverfa. Þegar hún stóð upp var hún vönkuð og sá þá að hún var öll úti í blóði.
Sérsveitin fór í kjölfarið að heimili Gabríels og handtók hann. Hann þverneitaði þó sök. Þetta kvöld hafi hann verið á verkstæði vinar síns að vinna og svo farið beint heim að sofa. Vinurinn tók undir þetta. Gabríel hafi verið á verkstæðinu allt kvöldið og svo tekið leigubíl heim.
Gabríel hefur ávallt neitað því að hafa framið þetta brot og segist ekki hafa farið heim til kvennanna þetta kvöld heldur verið annars staðar. Segir í dómi Landsréttar að framburður hans um þetta hafi verið stöðugur. Hins vegar er ósamræmi milli framburðar hans hjá lögreglu og fyrir dómi um það hvort hann hefði áður heimsótt konurnar í íbúðina í Hafnarfirði. Hjá lögreglu staðist hann hafa heimsótt þær oft en fyrir dómi sagðist hann aldrei hafa komið á staðinn.
Framburður brotaþolanna var metinn mjög trúverðugur og í samræmi við gögn málsins, t.d. áverkavottorð.
Þess má geta að konan sem Gabríel réðst á í rúminu glímdi lengi við afleiðingar af árásinni. Meðal annars missti hún tilfinningu í fingrum og hreyfigetu i hendi sem varð til þess að hún þurfti að hætta hárgreiðslunámi. Hún sagði í viðtali við DV árið 2022 að árásin hefði verið með öllu tilefnislaus.
Dóma Landsréttar og héraðsdóms í málinu má lesa hér.