fbpx
Laugardagur 15.mars 2025
Fréttir

Um tíu milljónir söfnuðust fyrir íbúa Gaza

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 14. mars 2025 13:34

Starfsmenn palestínska Rauða hálfmánans bólusetja börn á Gaza. Stefnt er að því að bólusetja um 600 þúsund börn yngri en tíu ára.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þörfin fyrir mannúðaraðstoð á Gaza er yfirþyrmandi,“ segir Hrafnhildur Sverrisdóttir, verkefnastjóri alþjóðaverkefna hjá Rauða krossinum.

Tæplega tíu milljónir króna söfnuðust í neyðarsöfnun Rauða krossins á Íslandi (RKÍ) fyrir íbúa Gaza. Söfnunin hófst í janúar og er nú lokið. „Enn og aftur sýna landsmenn að þeir eru til staðar fyrir fólk í mikilli neyð,“ segir Sólrún María Ólafsdóttir, teymisstjóri alþjóðaverkefna hjá Rauða krossinum.

Söfnunin var svar við neyðarbeiðni palestínska Rauða hálfmánans sem er landsfélag Rauða kross hreyfingarinnar rétt eins og Rauði krossinn á Íslandi. Féð mun nýtast til vel skilgreindra verkefna sem miða fyrst og fremst að því að reyna að tryggja aðgang fólks að heilsugæslu, mat, hreinu vatni og skjóli, eins og segir í fréttatilkynningu frá Rauða krossinum á Íslandi.

„Markmiðið er að veita íbúum Gaza lífsnauðsynlega mannúðaraðstoð,“ segir Sólrún. Um tvær milljónir þeirra eru á vergangi og yfir 90 prósent af öllu íbúðarhúsnæði á Gaza hefur skemmst eða eyðilagst. Þá er heilbrigðisþjónusta í lamasessi.

Palestínski Rauði hálfmáninn kom í lok febrúar upp færanlegu sjúkrahúsi í Gaza-borg, því fyrsta sinnar tegundar á Gaza.

Palestínski Rauði hálfmáninn gegnir lykilhlutverki í því að veita aðstoð á Gaza sem og við að bregðast við þörfum á Vesturbakkanum. Þá er stuðningur einnig veittur fólki sem neyðst hefur til að flýja Gaza til nágrannalanda. „Félagið hefur sinnt mannúðarstarfi í Palestínu í áratugi og hefur því gríðarlega reynslu og nýtur sömuleiðis mikils trausts,“ bendir Sólrún á.

Mannúðaraðstoð við íbúa Gaza hefur verið mjög sveiflukennd síðustu mánuði. [SÓ1] Möguleikar hjálparsamtaka og stofnana til að veita slíka aðstoð eru takmarkaðir og tryggja þarf öryggi allra sem að koma, bæði starfsfólks, sjálfboðaliða og íbúa. „Þörfin fyrir mannúðaraðstoð á Gaza er hins vegar yfirþyrmandi,“ segir Hrafnhildur Sverrisdóttir, verkefnastjóri alþjóðaverkefna hjá Rauða krossinum. „Það er skortur á mat, hreinu drykkjarvatni, húsaskjóli, hreinlætisvörum og hreinlætisaðstöðu, lyfjum og heilbrigðisaðstoð og svo mætti áfram telja.“

Neyðarbeiðni palestínska Rauða hálfmánans hljóðar upp á rúmlega 443 milljónir Bandaríkjadala eða um 60 milljarða íslenskra króna. Auk Rauða krossins á Íslandi hafa mörg önnur landsfélög svarað kallinu, m.a. Rauði krossinn í Svíþjóð og Noregi.  Landsfélögin sinna hvert fyrir sig eftirliti samkvæmt samningum.

Samið var um vopnahlé á Gaza um miðjan janúar og jókst þá aðgangur samtaka og stofnana að svæðinu með neyðargögn. Alþjóðaráð Rauða krossins (ICRC) segir að vopnahléið hafi reynst mikilvægt til að bjarga mannslífum, koma mannúðaraðstoð á framfæri og halda almennum borgurum á lífi. „Hins vegar er mannúðarkreppan á Gaza langt frá því að vera yfirstaðin,“ segir í nýrri tilkynningu ráðsins. Sendingum á hjálpargögnum hafði fjölgað verulega frá upphafi vopnahlésins „en þær eru enn sem komið er aðeins dropi í hafið miðað við gríðarlegar þarfir á svæðinu“.

Stöðvun aðstoðar núna, segir í tilkynningunni, þar á meðal lokun rafmagns til einu afsöltunarstöðvarinnar á Gaza, gæti steypt Gaza „enn dýpra í bráða mannúðarkreppu“. Áhrifin eru að sögn ráðsins þegar farin að sjást í verðhækkunum og skorti á nauðsynjavörum.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Verðmætt skuldabréf týndist í Grindavík

Verðmætt skuldabréf týndist í Grindavík
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Ósáttur við sekt fyrir að leggja á móti umferð – „Þetta er svo bilaðslega hátt gjald“

Ósáttur við sekt fyrir að leggja á móti umferð – „Þetta er svo bilaðslega hátt gjald“
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Trausti sár út í Sönnu – „Mér fannst eins og þú tækir ekki mark á því sem ég væri að segja“

Trausti sár út í Sönnu – „Mér fannst eins og þú tækir ekki mark á því sem ég væri að segja“
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Fast sótt að Ásthildi Lóu: „Steininn tekur úr þegar hún lætur svona ummæli falla“

Fast sótt að Ásthildi Lóu: „Steininn tekur úr þegar hún lætur svona ummæli falla“
Fréttir
Í gær

Einn handtekinn til viðbótar vegna morðrannsóknar á Suðurlandi

Einn handtekinn til viðbótar vegna morðrannsóknar á Suðurlandi
Fréttir
Í gær

Árni deilir myndbandi af sænskri matarkörfu sinni – Hvað heldur þú að matarinnkaupin kosti?

Árni deilir myndbandi af sænskri matarkörfu sinni – Hvað heldur þú að matarinnkaupin kosti?
Fréttir
Í gær

Guðmundur Elís fær þriggja ára dóm – Hefur áður verið dæmdur fyrir gróft ofbeldi gegn kærustum og barnsmóður

Guðmundur Elís fær þriggja ára dóm – Hefur áður verið dæmdur fyrir gróft ofbeldi gegn kærustum og barnsmóður
Fréttir
Í gær

Dósasöfnun fótboltadrengja stolið –  „Þetta var mjög sárt fyrir þá, þetta er ekkert smá mikil vinna fyrir svona unga stráka“

Dósasöfnun fótboltadrengja stolið –  „Þetta var mjög sárt fyrir þá, þetta er ekkert smá mikil vinna fyrir svona unga stráka“