fbpx
Föstudagur 14.mars 2025
Fréttir

Segir að Xi Jinping hafi ástæðu til að brosa breitt vegna Trump

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 13. mars 2025 04:11

Xi Jinping, forseti Kína.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Donald Trump stendur í mikilli eyðileggingaherferð gagnvart þeirri heimsskipun sem hefur ráðið ríkjum í 80 ár og Bandaríkin áttu stærstan þátt í að byggja upp. Þetta hefur orðið til þess að gamlir erkifjendur þjappa sér saman og það reynir á gömul vináttubönd.

Vladímír Pútín, Rússlandsforseti, hefur fram að þessu að mestu leyti getað glaðst yfir orðum og aðgerðum Trump varðandi stríðið í Úkraínu því ekki er annað að sjá en Trump hafi að ákveðnu leyti tekið sér stöðu með Rússlandi.

En Kínverjar hafa einnig ástæðu til að gleðjast því óhætt er að segja að staða þeirra hafi styrkst eftir valdatöku Trump.

„Núna sjáum við þverrandi völd Bandaríkjanna og heimsskipunarinnar undir bandarískri forystu. Xi Jinping, forseti Kína, hefur ástæðu til að brosa yfir því sem er að gerast,“ sagði Camilla Tenna Nyrup Sørensen, sérfræðingur í kínverskum málefnum og lektor við danska varnarmálaskólann, í samtali við B.T.

Hún sagði að Kínverjar leggi nú mikið á sig til að láta líta út fyrir að þeir séu hið ábyrga stórveldi sem tryggi stöðugleika og þetta smellpassi fyrir uppgjör Kínverja gegn bandarískum áhrifum.

Óhætt er að segja að staða öryggismála í heiminum sé í uppnámi vegna aðgerða og orða Trump. Evrópa og Bandaríkin deila, Bandaríkin daðra við Rússland og grafa undan Úkraínu, hóta að taka Grænland og Panamaskurðinn með valdi ef þörf krefur en reyna um leið að halda aftur af Kínverjum á Kyrrahafssvæðinu.

Óöryggið og ringulreiðin sem Trump skapar, urðu til þess að í síðustu viku tjáði Wang Yi, utanríkisráðherra Kína, sig um stöðu mála og hljómaði hann einna helst eins og bandarískir utanríkisráðherrar á eftirstríðsárunum.

Hann sagði að ef ríki heims leggi áherslu á eigin þjóðhagslega hagsmuni og trúi á styrk sinn og stöðu, þá taki frumskógarlögmálin aftur völdin og lítil og veikburða ríki muni gjalda fyrir það. Einnig muni alþjóðlegar reglur og heimsskipanin verða fyrir alvarlegum áhrifum. „Stórveldi eiga að takast á við alþjóðlegar skuldbindingar og standa undir ábyrgð sinni sem stórveldi. Þau eiga ekki að vera hagnaðardrifin og þau eiga ekki að níðast á hinum veikari,“ sagði hann.

Sørensen sagði að þetta falli vel að þeirri taktík sem Kínverjar hafa haldið sig við um langa hríð. Wang Yi hafi tekið þátt í öryggisráðstefnunni í München í febrúar og þar hafi hann lagt áherslu á það við evrópska leiðtoga að Kína standi við alþjóðlega samninga og dragi sig ekki skyndilega út úr til dæmis loftslagssamningnum eins og Trump gerði.

Hún benti á að Kínverjar séu í vanda vegna stöðu efnahagsmála og tollastríð muni hafa áhrif á þá og þjóni ekki hagsmunum þeirra. Það þjóni heldur ekki hagsmunum þeirra að samband Bandaríkjanna og Rússlands verði of gott. En þetta breyti því ekki að heildarmyndin sé Kínverjum hagstæð.

Hvað varðar málefni Taívan, sem Xi Jinping dreymir blauta drauma um að geta innlimað í Kína, þá er staða mála nú hagstæð Kínverjum. Bandaríkin hafa fram að þessu verndað Taívan, ekki með opinberri öryggistryggingu, heldur með því að Kínverjar hafa ekki vitað hvernig Bandaríkin muni bregðast við ef þeir ráðast á Taívan. Ef Trump sáir efasemdum um stuðninginn við Taívan, þá er Xi Jinping kominn einu skrefi nær því að geta látið draum sinn um „sameiningu“ rætast því Taívan er algjörlega háð diplómatískum og hernaðarlegum stuðningi frá Bandaríkjunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Halla Gunnarsdóttir sigraði með 46% atkvæða

Halla Gunnarsdóttir sigraði með 46% atkvæða
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Tilkynna auglýsingu smálánafyrirtækis um fría Tenerife ferð – „Okkur finnst þetta vera siðlaus markaðssetning“

Tilkynna auglýsingu smálánafyrirtækis um fría Tenerife ferð – „Okkur finnst þetta vera siðlaus markaðssetning“
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Vekur athygli á því sem hundur Hackman-hjónanna gerði þegar lögregla og sjúkralið komu á staðinn

Vekur athygli á því sem hundur Hackman-hjónanna gerði þegar lögregla og sjúkralið komu á staðinn
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Björk segir Spotify það versta sem komið hafi fyrir tónlistarfólk – Þetta var borgað út á síðasta ári

Björk segir Spotify það versta sem komið hafi fyrir tónlistarfólk – Þetta var borgað út á síðasta ári
Fréttir
Í gær

Kona ákærð fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás í Hafnarfirði og krafin um fjórar milljónir króna

Kona ákærð fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás í Hafnarfirði og krafin um fjórar milljónir króna
Fréttir
Í gær

Leikarar í Borgarleikhúsinu fara í verkfall – Þetta eru dagarnir

Leikarar í Borgarleikhúsinu fara í verkfall – Þetta eru dagarnir