fbpx
Miðvikudagur 16.apríl 2025
Fókus

Gróflega misboðið yfir nýjum þáttum Meghan Markle – „Hver gerir svona?“

Fókus
Þriðjudaginn 11. mars 2025 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hertogaynjan Meghan Markle er óvinsæl meðal Breta. Það fer ekki á milli mála þegar fréttir bresku götublaðanna eru skoðaðar en þar virðist ríkja sú vinnuregla að birta minnst eina neikvæða frétt um Markle í hverri viku. Henni tókst enda að móðga Breta hressilega þegar hún lýsti því yfir að það væri hreinlega óbærilegt að gegna konunglegum störfum fyrir bresku krúnuna og flutti með eiginmanni sínum, Harry Bretaprins, til Bandaríkjanna.

Þetta viðhorf hefur svo smitast yfir til Bandaríkjanna en þar hafa nágrannar hertogahjónanna kvartað undan þeim og meira að segja Donald Trump hefur kallað Markle „hræðilega eiginkonu“.

Nú greina götublöðin frá því að Markle hafi gróflega misboðið áhorfendum nýrra matreiðsluþátta sinna. With Love Markle. Áhorfendur hafa bent á að í þriðja þættinum megi sjá að hertogaynjan geymir hráa kjúklingaleggi í ísskáp sínum beint við hliðina á salati. Þetta misbauð fólki sem benti á smithættuna sem fylgir hráum kjúkling og því eigi alls ekki að geyma hann svo nærri fersku grænmeti. Kjúklingaleggirnir voru hvorki í boxi né plasti heldur var raðað beint á hillu.

„Hvers vegna geymir Meghan Markle hráa kjúklingaleggi við hliðina á salatinu?“ spurði einn á samfélagsmiðlinum X. Annar skrifaði: „Ég held að þetta myndi Gordon Ramsey kalla smithættu.“

Annar kallaði ísskáp Markle salmonelluhöllina og enn einn sagði: „Jeminn, það er allt smitað af hráum kjúklingi.  Hver gerir svona? Feginn að þurfa aldrei að borða kvöldmat hjá henni.“

GB News greinir þó frá því að þarna hafi hertogaynjan verið höfð fyrir rangri sök. Kjúklingaleggirnir höfðu nefnilega verið eldaðir að hluta áður en þeim var komið fyrir í ísskápnum. Áhorfendur höfðu þó ekki lokið sér af því næst gagnrýndu þeir hvernig Markle eldar pasta. Hún setti spaghetti í pott,  hellti þremur bollum af sjóðandi vatni yfir og setti svo lokið yfir.

Um þetta sagði einn: „Netflix hefur borgað fúlgur fjár bara til að sýna okkur að Megham Markle kann ekki að sjóða pasta“. Eins þótti áhorfendum hún ofelda pastað og að rétturinn væri móðgun við Ítali.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Konungar sveitaballanna fögnuðu – Prettyboitjokko mætti í SKÍMÓ bol

Konungar sveitaballanna fögnuðu – Prettyboitjokko mætti í SKÍMÓ bol
Fókus
Í gær

White Lotus-stjarna sár og svekkt út í Saturday Night Live

White Lotus-stjarna sár og svekkt út í Saturday Night Live
Fókus
Fyrir 4 dögum

Agnarsmá sundföt Sunnevu Einars enn og aftur skotspónn brandara

Agnarsmá sundföt Sunnevu Einars enn og aftur skotspónn brandara
Fókus
Fyrir 4 dögum

Þegar Jósu var tilkynnt að hún væri með krabbamein hitti hún heilara sem sagði að hún hefði val – Batinn þótti hálfgert kraftaverk

Þegar Jósu var tilkynnt að hún væri með krabbamein hitti hún heilara sem sagði að hún hefði val – Batinn þótti hálfgert kraftaverk
Fókus
Fyrir 5 dögum

Leikstjórinn dæmdur til að greiða fórnarlömbum sínum yfir 200 milljarða í bætur

Leikstjórinn dæmdur til að greiða fórnarlömbum sínum yfir 200 milljarða í bætur
Fókus
Fyrir 5 dögum

Systir Biöncu Censori ber að ofan í hringiðu drama með Kanye West

Systir Biöncu Censori ber að ofan í hringiðu drama með Kanye West