fbpx
Miðvikudagur 12.mars 2025
Fréttir

Ögmundur sýnir hvernig Háskóli Íslands hafði fé af sjúkum manni – „1.060.000 kr. horfnar“

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 11. mars 2025 09:30

Ögmundur er sannfærður um að loka þurfi kössunum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ögmundur Jónasson, fyrrverandi ráðherra, birtir yfirlit yfir bankareikning spilafíkils og sýnir svart á hvítu hvernig fé hans kláraðist á stuttum tíma. Ögmundur beinir spjótum sínum að Háskóla Íslands, sem kemur að rekstri spilakassanna í gegnum HHÍ.

„Taflan sýnir hvernig æðsta menntastofnun þjóðarinnar, Háskóli Íslands, hafði eina milljón og sextíu þúsund krónur af ”viðskiptavini” í spilavítum sínum á tveimur sólarhringum,“ segir Ögmundur í grein á Vísi og birtir yfirlitið sem er frá 11. og 12. Júlí árið 2017.

Sjást þar 29 úttektir, upp á samanlagt 1.060.000 krónur sem eytt var á spilakassastöðum. Það er Catalinu, Videomarkaðinum og Háspennu. Nokkrir tugir þúsunda króna í hvert skipti.

Hærri upphæð í dag

Ögmundur bendir á að þetta sé átta ára gamalt yfirlit. Miðað við verðlagsþróun eru upphæðirnar í raun nokkuð hærri. Það er heildarupphæðin væri 1.535.060 krónur á verðlagi dagsins í dag.

„Þetta fórnarlamb Háskólans var mætt að morgni dags 11. júlí kukkan 9: 21 og spilar strax frá sér 30 þúsund krónum. Fer til afgreiðslumanns og fær tekið út af korti sínu átta mínútum síðar og spilar þá enn frá sér 30 þúsund krónum, næst er það 25 þúsund krónur og síðan koll af kolli,“ segir Ögmundur. „Um kvöldið er spilafíkillinn búinn að koma víða við í stuðningi sínum við Háskólann og er nú kominn í sal Háspennu og spilar þar frá sér 50 þúsund krónum klukkan 20:54, tveimur tímum seinna fjúka 40 þúsud til viðbótar. Þegar yfir lauk var allt féð uppurið – því aldrei er hætt fyrr en svo er – 1.060.000 kr. horfnar.“

Sannfærður um að loka kössunum

Þetta segir Ögmundur að hafi komið fram í erindi Ölmu Hafsteins, formanns Samtaka áhugafólks um spilafíkn, á hádegisfundi samtakanna í sal Þjóðminjasafnsins í byrjun viku. Var það í tengslum við kjör rektors Háskóla Íslands, sem fram fer 18. og 19. mars næstkomandi.

Á fundinum töluðu ýmsir sérfræðingar, Heather Wardle fræðimaður í Glasgow háskóla, Lenya Rún lögfræðingur sem vildi sem meðlimur Stúdentaráðs loka spilakössum og Kristján Jónasson, stærðfræðingur og kennari við HÍ sem stýrði fundinum.

„Hafi ég einhvern tímann verið sannfærður um að rekstraraðilum fjárhættuspilakassa skuli gert að loka þeim þegar í stað þá var það nú,“ segir Ögmundur.

Einn mætti

Sjö frambjóðendur hafa boðið sig fram í rektorskjörinu. En Ögmundur segir að aðeins einn þeirra hafi mætt á fundinn, Magnús Karl Magnússon sem tók til máls. Nefnir hann hins vegar að einhverjir hafi boðað forföll af óviðráðanlegum ástæðum.

„Samtök áhugafólks um spilafíkn boðuðu á fundinum að allir frambjóðenda til rektors yrðu spurðir um afstöðu sína til fjárhættuspilareksturs háskólans. Skildist mér að farið yrði fram á afdráttarlaus svör,“ segir Ögmundur að lokum. „Sem upphitun mættu þeir horfa á bankayfirlitið að ofan. Varla þarf frekari orð. Þó hefur þetta legið ljóst fyrir í rúm þrjátíu ár. En gæti verið að nú yrðu kaflaskil?“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Sjötugur karlmaður ákærður fyrir að stela um 40 milljónum úr dánarbúi móður sinnar – Lagði fimm milljónir inn á dóttur sína

Sjötugur karlmaður ákærður fyrir að stela um 40 milljónum úr dánarbúi móður sinnar – Lagði fimm milljónir inn á dóttur sína
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Skarphéðinn nýr framkvæmdastjóri Sagafilm

Skarphéðinn nýr framkvæmdastjóri Sagafilm
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Hopp harmar skemmdarverkið á Seltjarnarnesi – Afhentu lögreglu upplýsingar um notandann

Hopp harmar skemmdarverkið á Seltjarnarnesi – Afhentu lögreglu upplýsingar um notandann
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Dagbjört komin í opið fangelsi eftir aðeins 15 mánaða afplánun – Fékk 16 ár fyrir að pynta mann til dauða

Dagbjört komin í opið fangelsi eftir aðeins 15 mánaða afplánun – Fékk 16 ár fyrir að pynta mann til dauða
Fréttir
Í gær

Íbúar fengið nóg og kalla eftir aðgerðum: „Alveg sama hvað þú gerir, alltaf lendirðu á vegg“

Íbúar fengið nóg og kalla eftir aðgerðum: „Alveg sama hvað þú gerir, alltaf lendirðu á vegg“
Fréttir
Í gær

Eliza Reid um ógnina frá Trump – „Sýnum ofbeldisseggjum að við erum ekki hrædd“

Eliza Reid um ógnina frá Trump – „Sýnum ofbeldisseggjum að við erum ekki hrædd“