Það voru vísindamenn við Syddansk háskólann sem rannsökuðu þetta og komust að því að blekið í húðflúrum getur hugsanlega aukið hættuna á að fólk fái húð- og eitlakrabbamein. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá háskólanum.
Rannsóknin leiddi í ljós að agnir úr húðflúrbleki geta borist til eitlanna þar sem þær safnast fyrir. Henrik Frederiksen, yfirlæknir og prófessor, segir að þetta geti haft í för með sér að ónæmiskerfið reyni stöðugt að bregðast við blekinu. Ekki sé enn ljóst hvort þetta viðvarandi álag geti veikt starfsemi eitlanna eða hafi önnur heilsufarsleg áhrif.
Það er erfitt að rannsaka tengslin því krabbamein þróast oft á mörgum árum.
Rannsókin byggist á gögnum um rúmlega 5.900 danska tvíbura. Vísindamennirnir báru húðflúr þeirra saman við krabbameinsgreiningar og kom í ljós að þeir sem voru húðflúraðir greindust oftar með húð- og eitlakrabbamein en þeir sem ekki voru húðflúraðir.
Greinilegustu tengslin á milli húðflúrs og krabbameins voru hjá þeim sem voru með húðflúr sem eru stærri en lófi. Tíðni eitlakrabbameins var næstum því þrisvar sinnum meiri hjá þeim með stór húðflúr miðað við þá sem voru ekki með húðflúr.