Borgarráð hefur samþykkt að Reykjavíkurborg auki hlut sinn í Malbikunarstöðinni Höfða hf. með því að kaupa hluti Faxaflóahafna og Orkuveita Reykjavíkur í fyrirtækinu. Malbikunarstöðin varð uppvís að því bæði á árunum 2023 og 2024 að taka á móti mengandi úrgangi á starfsstöð sinni á Sævarhöfða í Reykjavík án þess að hafa til þess tilskilin leyfi.
Um Malbikunarstöðina Höfða segir á vef Reykjavíkurborgar að hún sé í eigu borgarsjóðs Reykjavíkur og Aflvaka hf. en við stofnun fyrirtækisins á árinu 1996 hafi tvö borgarfyrirtæki, Malbikunarstöð- og Grjótnám Reykjavíkurborgar, sameinast í eitt hlutafélag og hafi markmiðið verið að sameina stofnsetta aðferðafræði fyrirtækisins og nýjar áherslur í vegavinnu. Malbikunarstöðin Höfði reki grjótmulningsstöð og tvær malbikunarstöðvar, leggi út malbik og annist hálkueyðingu og snjómokstur. Fulltrúar Reykjavíkuborgar í stjórn Malbikunarstöðvarinnar Höfða séu borgarfulltrúarnir Sabine Leskopf og Marta Guðjónsdóttir.
Á vef Höfða er þó eingöngu minnst á að félagið reki eina malbikunarstöð. Upphaflega var öll starfsemi fyrirtækisins á Sævarhöfða í Reykjavík en 2021 hófst flutningur á malbikunarstöðinni til Hafnarfjarðar.
Í upphafi árs 2022 tilkynnti þáverandi meirihluti borgarstjórnar Reykjavíkur að fyrirtækið yrði flutt til Hafnarfjarðar til að rýma fyrir íbúðabyggð á Sævarhöfða.
Þáverandi formaður borgarráðs, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, greindi frá því við sama tækifæri í samtali við Vísi að skoðað yrði að selja allt hlutafé í fyrirtækinu og sjálf teldi hún að borgin ætti ekki að eiga fyrirtæki sem stæði í starfsemi af þessu tagi sem væri á samkeppnismarkaði. Ekkert varð þó af því að borgin seldi hlut sinn í Malbikunarstöðinni Höfða.
Í nóvember 2023 og apríl 2024 vöktu Samtök iðnaðarins athygli á fréttum Morgunblaðsins af því að Malbikunarstöðin Höfði geymdi mengaðan jarðveg á lóð fyrirtækisins á Sævarhöfða án þess að hafa til þess tilskilin leyfi frá Umhverfisstofnun eða Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur. Í fréttunum í nóvember 2023 kom fram að Reykjavíkurborg hafi fallið frá áformum um að setja upp losunaraðstöðu fyrir mengaðan jarðveg á svæðinu.
Á vef borgarinnar er enn að finna auglýsingu frá Heilbrigðiseftirlitinu um tillögu að starfsleyfi fyrir Malbikunarstöðina Höfða þar sem var lagt til að heimilt yrði að taka á móti og geyma allt að 25.000 tonn af úrgangi á Sævarhöfða á gildistíma leyfisins. Umsagnarfrestur var frá 7. nóvember til 6. desember 2023. Gildistími leyfisins átti að vera til 1. janúar 2025.
Ekkert var þó af því að Malbikunarstöðin fengi slíkt leyfi og ekkert skráð starfsleyfi er á stöðina hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur en í gildi er starfsleyfi fyrir umhverfis- og skipulagssvið borgarinnar sem veitir því leyfi til að taka á móti úrgangi á umræddri lóð á Sævarhöfða. Sótt var um leyfið í mars 2024 og tók það gildi 23. apríl og gildir til 23. apríl 2027. Tíu dögum áður en leyfið tók gildi ítrekuðu Samtök Iðnaðarins kvartanir sínar yfir að Malbikunarstöðin Höfði væri enn að taka á móti úrgangi á Sævarhöfða án leyfa en í fréttum Morgunblaðsins kom fram að umsókn þess um slíkt leyfi hafi verið hafnað. Ekkert var minnst hins vegar á að tillaga að starfsleyfi til handa borginni sjálfri fyrir þessa starfsemi hafði þá þegar verið auglýst.
Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri lagði til á fundi borgarráðs í gær að borgin myndi kaupa hluti Orkuveitu Reykjavíkur annars vegar og Faxaflóahafna hins vegar í Malbikunarstöðinni Höfða og gera kaupsamninga þess efnis við bæði félögin.
Í greinargerð með tillögunni kom fram að á hluthafafundi Aflvaka hf., sem eins og áður kom fram var annar eiganda malbikunarstöðvarinnar ásamt borgarsjóði, sem haldinn var þann 12. febrúar síðastliðinn hafi hluthafar samþykkt meðal annars að breyta félagaformi félagsins í einkahlutafélag, að félaginu yrði slitið og að eignarhlutum sem Aflvaki eigi í Malbikunarstöðinni Höfða yrði skipt á milli hluthafa í samræmi við eignarhlut þeirra í Aflvaka. Hluthafar Aflvaka séu Reykjavíkurborg (54,5 prósent), Orkuveita Reykjavíkur (37,9 prósent) og Faxaflóahafnir (7,6 prósent). Í samþykkt tillögu hluthafafundarins felist að Orkuveita Reykjavíkur fari með um 0,38 prósent og Faxaflóahafnir um 0,08 prósent hlut í Malbikunarstöðinni Höfða.
Samkvæmt greinargerðinni eru í samþykktum Malbikunarstöðvarinnar Höfða engar hömlur á meðferð hlutabréfa í félaginu og sé hluthöfum heimilt að selja þau og veðsetja án afskipta félagsins. Orkuveita Reykjavíkur hafi óskað eftir að Reykjavíkurborg kaupi hlut hennar í Malbikunarstöðinni. Af hálfu Orkuveitu Reykjavíkur hafi verið lagt til að kaupverð hlutanna verði 5.000.000 króna. Fjármála- og áhættustýringarsvið Reykjavíkurborgar hafi lagt mat á verðið og geri ekki athugasemdir við það. Reykjavíkurborg hafi kynnt Faxaflóahöfnum ósk Orkuveitu Reykjavíkur um gerð kaupsamnings og það verð sem Orkuveita Reykjavíkur lagði til. Hafi Faxaflóahafnir óskað eftir því að Reykjavíkurborg kaupi hlut félagsins í Malbikunarstöðnni Höfða hf. Kaupverð hluta Faxaflóahafna miðað við sömu verðforsendur og hjá Orkuveitu Reykjavíkur séu 1.052.632 krónur.
Tillagan var eins og áður segir samþykkt og því mun borgin greiða um 6.000.000 króna fyrir aukinn hlut í Malbikunarstöðinni Höfða sem fyrir þremur árum stóð til að mögulega selja. Í greinargerðinni eru ekki færð rök fyrir nauðsyn á eignarhaldi borgarinnar á fyrirtækinu.