Þorsteinn V. Einarsson kynjafræðingur gagnrýnir svokallaða „kósífemínista“ og segir þá jafnvel vera verri en helstu varðhundar feðraveldisins.
Þorsteinn fer yfir málið á miðli Karlmennskunnar, en hann hefur haldið úti síðunni um árabil og var með samnefnt hlaðvarp.
Hvað er kósífemínisti?
„Kósífemínisti er einstaklingur sem opinberlega segist vera femínisti og styðja baráttu þolenda og þeirra sem berjast fyrir tilverurétti sínum. Kósífemínisti styður hins vegar femínísk baráttumál bara á yfirborðinu og aðeins ef það hefur jákvæð áhrif fyrir hann sjálfan,“ skrifar Þorsteinn og heldur áfram.
„Kósífemínisti skilur illa valdatengsl, sögu og samhengi misréttis og notast við þröngt sjálfsmiðað sjónarhorn á samfélagslegar áskoranir.
Kósífemínisti er á lymskulegan hátt verri en helstu varðhundar feðraveldisins vegna þess að hann grefur undan femínistum – innan frá. Hann aðgreinir sig frá „óþægilegu“ femínistunum og er „skynsamari“. Skynsemin felst þó aðallega í því að taka stöðu gegn femínistum og helstu baráttumálum og þar með er hann hluti af andspyrnunni.“
Hann fer nánar út í málið í færslunni á Instagram. Prófaðu að smella hér eða endurhlaða síðuna ef þú sérð hana ekki.
Þorsteinn segir að kósífemínisti sé týpan sem:
- „Tekur almennt afstöðu með femínistum og baráttufólki þangað til afstaða þeirra verður umdeild.
- Hefur aldrei frumkvæði að því að benda á birtingarmyndir misréttis ef mögulegar óvinsældir eru í húfi.
- Tekur sér stöðu utan ágreinings og leikur skilningsríkan málamiðlara til að afla sér ekki óvinsælda.
- Tekur gagnrýnislaust undir orðræðu karlrembna um bergmálshella, pólaríseringu og öfgar.
- Býr við öll helstu forréttindi og tekur aldrei áhættu sem gæti orðið til þess að hann missi þau.
- Beitir sér einungis þegar hann veit að afskipti hans afla honum vinsælda.
- Nýtur almennt góðs af femínískri afstöðu sinni og viðheldur þeirri ímynd án nokkurra átaka.
- Gerir ekkert gagn en grefur undan fólki sem dirfist að vera óþægilegt og varpa ljósi á misrétti.
- Velur alltaf þægilegustu afstöðuna fyrir sjálfan sig og útsetur sig aldrei fyrir gagnrýni.
- Aðgreinir sig frá öðrum femínistum sem þykja „of öfgafullir og róttækir“.
- Upplifir sig fórnfúsan riddara réttlætis og telur konur skulda sér þakklæti.
- Leggur ekki neitt til baráttunnar en nýtur persónulegs ávinnings og jákvæðrar ímyndar vegna „femínískrar“ afstöðu sinnar.
- Heldur að hann geri gagn þegar raunin er þveröfug.“