Sýndi beint frá bekkpressuáskorun á Twitter
Útvarpsmaðurinn og sparkspekingurinn Hjörvar Hafliðason bauð tæplega 14 þúsund fylgjendum sínum á Twitter upp á beina útsendingu frá afreki sínu í ræktinni á þriðjudag. Þar réðst Hjörvar á bekkpressuna sem á hvíldu 100 kíló. Fór Hjörvar létt með þyngdina þrátt fyrir efasemdaraddir einhverra viðstaddra og gerði hann sér lítið fyrir og lyfti henni fimm sinnum. Egill „Gilzenegger“ Einarsson sá um að mynda afrekið og sagði ljóst að Hjörvar hefði átt nóg eftir.
LIVE on #Periscope: 100 kg í bekknum coming up! Right now https://t.co/6EKZpd0LxP
— Hjörvar Hafliðason (@hjorvarhaflida) March 29, 2016