fbpx
Laugardagur 01.mars 2025
Fréttir

Amma drengsins sem banaði Bryndísi Klöru greinir frá áfallasögu hans – „Eftir það var líf hans í frjálsu falli“

Ragna Gestsdóttir
Laugardaginn 1. mars 2025 10:07

Bryndís Klara Birgisdóttir. Mynd: Facebook-síða Lindakirkju.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég vil heiðra minningu Bryndísar Klöru Birgisdóttur sem lést sem saklaust fórnarlamb, hörmulegra aðstæðna. Um var að ræða stjórnlausa hegðun fjölskyldumeðlims míns, í mjög alvarlegum vanda. Vanda sem hefði verið hægt að taka mun betur á.

Með þessum skrifum stíg ég í umræðuna um hið hræðilega hnífstungumál sem gerðist á Menningarnótt 2024 og varð til þess að Bryndís Klara Birgisdóttir missti lífið. Ég votta aðstandendum hennar mína allra dýpstu samúð. Á þessum tímapunkti kýs ég núna að svara kalli og gerast riddari kærleikans eins og faðir hinnar látnu gerði ákall um. Ég er amma gerandans,“

segir Dagný Hængsdóttir Köhler, amma 17 ára drengs sem játað hefur að hafa banað Bryndísi Klöru Birgisdóttur á menningarnótt í fyrra.

Í vikunni fór fram fyrirtaka í máli drengsins sem er ákærður fyrir manndráp og tilraun til manndráps. Drengurinn réðst á þrjú ungmenni á Skúlagötu, Bryndís Klara lést af sárum sínum og stúlka og drengur særðust einnig. Þinghald er lokað. 

Sjá einnig: „Hann snýr sér við og nær þessari einu stungu á versta stað“

Dagný  segist vilja svara kalli föður Bryndísar Klöru og gerast riddari kærleikans. Í grein sinni á Vísi segir Dagný að betur þurfi að huga að börnum sem upplifa áföll. Drengurinn sem um ræðir er dóttursonur hennar og segir Dagný hann sem og móður drengsins bæði hafa upplifað áföll sem hafi markað líf þeirra og gjörðir. Dagný segist ekki vilja draga úr ábyrgð eða afsaka, heldur stuðla að breytingum.

Dagný Hængsdóttir Köhler
Mynd: Facebook

Hörmungarsaga sem við þurfum öll að læra af

„Mig dreymir um nauðsynlegar úrbætur til byggja upp betra velferðarkerfi sem mætir betur og markvissar þörfum barna sem m.a. eiga foreldra með fíkni- og geðrænan vanda. Hér nýti ég annars vegar mína menntun og faglegu reynslu sem heilbrigðisstarfsmaður í geðþjónustu og hins vegar hina ólýsanlega hörðu reynslu sem aðstandandi geranda í djúpum vanda,“ segir Dagný sem starfar sem hjúkrunarfræðingur í geðþjónustu.

„Það er gríðarlega mikilvægt að samfélagið allt og stjórnvöld nýti þessa hörmungarsögu til að læra af. Fara þarf allar færar leiðir til að styðja betur við þarfir barna og forsjáraðila í vanda.“

Dagný vísar í eina umfangsmestu lýðheilsurannsókn sem framkvæmd hefur verið, ACE-rannsóknina, sem stendur fyrir Adverse Childhood Experiences og fjallar um áföll fyrir 18 ára aldur.

Áföll í æsku hafa gríðarleg áhrif á börn og þeirra möguleika til að þroskast á heilbrigðan og farsælan hátt. ACE eru 12 tegundir af alvarlegum áföllum, sem eiga sér stað í æsku (fyrir 18 ára aldur) og geta haft langtímaáhrif á heilsu, hegðun og líðan einstaklings. Þessi reynsla getur verið allt frá misnotkun og vanrækslu til geðrænna áskorana forsjáraðila. ACE áföll geta haft veruleg áhrif á heilaþroska, stjórnun tilfinninga og líkamlega heilsu. Þessar breytingar á heilastarfsemi geta haft áhrif á athygli barna, þroska, nám og ákvarðanatöku. Rannsóknir sýna að því fleiri ACE-stig sem einstaklingur hefur, því meiri hætta er á sálrænum erfiðleikum, árásargjarnri hegðun og ofbeldi síðar á ævinni. Þeir sem hafa upplifað mikla erfiðleika í æsku eiga oftar í erfiðleikum með tilfinningastjórnun, hvatvísi og reiði, sem getur leitt til ofbeldishegðunar.Rannsóknir undirstrika mikilvægi snemmtækrar íhlutunar og stuðnings fyrir börn sem hafa orðið fyrir neikvæðri reynslu til að draga úr líkum á ofbeldishegðun síðar á ævinni.

Saga gerandans

Dagný segir sögu dóttursonar síns ekki einsdæmi, það viti hún af reynslu sinni sem starfsmaður í geðheilbrigðisþjónustu. Hún segir stóru myndina í lífi dóttursonar hennar vera alvarlega vangetu forsjáraðila/móður sem fékk að viðgangast allt of lengi, með of vægum inngripum af hálfu barnaverndar. Faðir hans hafi ekki sinnt honum í mörg ár. Á heimili varð hann vitni að andlegu, líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi gegn móður sinni.

„Hjá geranda hafa ACE stigin bæst við eitt af öðru yfir sl. 10 ár, þar sem móðir hans var þrenn jól í fangelsi, í meira og minna í stöðugri fíkniefna neyslu, stundaði fíkniefnasölu og var í nánum samböndum við aðra fíkla og alvarlega ofbeldismenn.

ACE stigin hjá geranda voru líklega orðin átta talsins fyrir fermingaraldur. Hvernig má það vera að aldrei hafi verið gert forsjárhæfnimat eða geðrænt mat á móður til að sjá hvernig og hvort færni hafi verið til staðar til að sinna þörfum geranda á nauðsynlegan og heilbrigðan hátt? Hvernig mátti það vera að margdæmdur ofbeldismaður, góðkunningi lögreglunnar byggi á heimilinu með vitneskju barnaverndar, án þess að barnið væri verndað? Hefðu starfsmenn barnaverndar treyst eigin börnum til að búa með þannig manni? Hvernig var meðalhófsreglan gagnvart barninu nýtt í því tilviki? “

„Eftir það var líf hans í frjálsu falli“

Dagný segir dótturson sinn hafa verið í góðu yfirlæti í fóstri ættingja um tveggja ára tímabil. Þar hafi hann sýnt miklar framfarir. Alvarlegast hafi verið þegar honum var leyft að flytja aftur til móður sinnar haustið 2021.

„Hann fór aftur inn á heimili móður, án þess að tryggt hafi verið að hæfni hennar, geta til framfærslu og geðrænt ástand hafi verið nægjanlega stöðugt, til þess að veita honum þá nauðsynlegu umönnun sem hann sem svo sárlega þurfti.

Sú ráðstöfun barnaverndar dugði í 6 mánuði sem endaði í fyrirvaralausri fangelsisvist móður. Hún var fangelsuð í 20 mánuði rétt eftir að gerandi fermdist vorið 2022. Þrátt fyrir þá grafalvarlega forsögu leysti barnavernd ekki forsjána til sín, heldur var eini forsjáraðilinn hans móðir í fangelsi erlendis. Gerandi kom í fóstur á heimili fjölskyldu minnar, tættur og týndur í sjálfum sér. Hann tók ágætum framförum það ár sem hann var hjá okkur í fóstri, en ljóst að hans vandi var mikill. Hann fór síðan á heimili föður síns og stjúpmóður sem þá var nýlega komin aftur í hans líf eftir margra ára fjarveru.“

Þegar móðirin losnaði úr fangelsi og kom heim aftur í janúar 2024 segir Dagný engin afskipti hafa verið af hálfu barnaverndar. Móðirin  fékk drenginn til sín og hann lokaði á föður sinn. „Eftir það var líf hans í frjálsu falli.“

Dagný segir að tilkynningum til barnaverndar vorið 2024 hafi ekki verið sinnt. Faðir drengsins hafi borið áhyggjur sínar undir barnavernd, en orð hans verið afgreidd sem forsjárdeila.Dagný segir að eftir á að hyggja hafi þau átt að senda inn miklu fleiri tilkynningar til barnaverndar og brýna áköll okkar um aðstoð.

Áföll erfast milli kynslóða

Talað er um að áföll geti erfst milli kynslóða þegar einstaklingur vinnur ekki úr áföllum sínum, millikynslóðaflutningur áfalla. Dagný segist ekki ætla að fara ítarlega yfir sögu dóttur sinnar, „en þó má upplýsa að um var að ræða 24 ára langa þögn um mjög alvarleg áföll og brot gagnvart henni í bernsku.

Þessi áföll urðu augljóslega mikill áhrifavaldur í hennar erfiðleikum og fíkniefnaneyslu og skerti færni hennar til að sinna sínu barni. Þau voru fyrst að koma í dagsljósið sl. sumar. Enginn vissi um þau, nema hún og hennar gerendur. Við 14 ára aldur bættist við erfiður hjónaskilnaður míns og föður hennar sem varð henni mikið áfall. Þar hefði ég geta stutt betur við hana.“

Dagný segir dóttur sína hafa fengið brotakennda þjónustu í velferðarkerfinu. Mín von stendur til þess að hún loksins fái þá öflugu hjálp frá geðheilbrigðiskerfinu sem hún þarfnast. Hjálp, sem hún nauðsynlega þurfti fyrir öllum þessum árum.

Setja þarf áfallaupplýsta umönnun í forgang og efla þverfaglega þjónustu

Dagný spyr hverju þurfi að breyta í kerfinu. Segir hún að setja þurfi áfallaupplýsta umönnun í forgang, efla þverfaglega þjónustu í barnavernd og bæta inn fagstéttum sem meti áföll og áhrif þeirra á börn og forsjáraðila. Dagný segir að meðalhófsreglu stjórnsýsluréttar verði að nýta til að vernda börn fyrir varanlegum skaða af slæmum uppeldisaðstæðum, stórefla þarf upplýsingastreymi á milli barnaverndarnefnda og geðheilbrigðisþjónustu, þar sem öryggi barns ætti að trompa trúnaðarskylduna.

„Auknar lagaheimildir þarf fyrir barnavernd til að upplýsa aðra fjölskyldumeðlimi um erfiðar aðstæður barns, þegar öryggi þess er ógnað. Barn sem býr við erfiðar aðstæður ætti ekki að vera einkamál forsjáraðila þess, þó málið sé viðkvæmt. Leyndarhyggja og trúnaður um slæmar uppeldisaðstæður barns er ekkert annað en meðvirkni og vinnur gegn hagsmunum barnsins.“

Dagný leggur til að búið verði til barnahús sem aðstoðar öll börn sem hafa orðið fyrir ACE áföllum. „Barnahús þarf að aðstoða öll börn sem orðið hafa fyrir alvarlegum ACE áföllum, en ekki aðallega vegna kynferðisofbeldis. Búum til Barnahús sem hjálpar til við öll alvarleg áföll. Búum líka til áfallamiðstöð fyrir fullorðna, sem eru skaðaðir vegna áfalla úr sinni æsku og öðrum áföllum. Slík þjónusta er undirstaða fyrir góða forsjárhæfni. Ég legg til að slík stofnun heiti Bryndísarhús.“

Samfélagsmiðlar hafa áhrif

Dagný segir samfélagsmiðla mikla áhrifavalda í lífi barna og ungmenna. Margoft hafi verið bent á að hvað mikill skjátími sé hættulegur. Segir hún nauðsynlegt að rýnt sé í síma- og samfélagsmiðlanotkun barna og tryggja að börn þrói með sér hæfileika til heilbrigðra og eðlilegra samskipta og tilfinningastjórnunar.

„Börn hafa náð að skapa samfélög á netinu þar sem fullorðnir hafa litla sem enga aðkomu. Skilaboðin eru sett fram af þeim sjálfum til þeirra jafnaldra.“

Börn geta orðið hættulegt hvort öðru

„Í stuttu máli er niðurstaða umræðunnar sú að að fjarlægð frá nauðsynlegum tengslum við fullorðna, getur valdið því að börn missa af þroskatækifærum. Við blasa erfiðleikar með lærdóm, getu til að þróa heilbrigð samskipti og eðlilega tilfinningastjórn. Þessi skertu forsjártengsl geta valdið tilfinningalegu óöryggi hjá börnum og mögulega ýtt undir ofbeldi og hnífaburð.

Tilfinningalegt öryggi er öllum börnum nauðsynlegt til þróa með sér eðlilegar tilfinningar eins og viðkvæmni, depurð, sorg, skömm, samkennd og samlíðan. Við erfiðar aðstæður getur þessi skortur á þroskuðum tilfinningum, gert börn hættuleg hvort öðru.

Það hefur ríkt þjóðarsorg á Íslandi vegna þessa máls. Blásaklaus stúlka dó vegna hnífaárásar á Menningarnótt. Við stöndum öll frammi fyrir þeirri áskorun að skoða samfélagsgerð okkar og rýna í allt það sem betur má fara. Ég hef hér hér leitast við að leggja mitt lóð á vogarskálarnar til þess að bæta aðbúnað að börnum.

Stærsta og flóknasta hlutverk sem við tökum að okkur á lífsleiðinni er að gerast forsjáraðilar barns. Siðferðisstig þjóðarinnar ræðst af því hversu vel okkur tekst að hlúa að okkar minnstu bræðrum og systrum.

Uppeldi barna leggur grunn að þeirri samfélagsgerð sem við viljum helst lifa í. Það eru jú þau sem hlúa að okkur þegar við eldumst, og það er þeirra að skapa framtíðar samfélagið næstu áratugi. Gerumst öll friðflytjendur og riddarar kærleikans eins og foreldrar Bryndísar Klöru hafa gert ákall um. Björgum mannslífum.“

Dagný segir að vera má að einhverjum aðilum máls þyki þessi umfjöllun of hreinskilin, afhjúpandi, harðneskjuleg og ósanngjörn, en það verður þá svo að vera.

Þessi greinargerð var send þann 9.9. 2024 til forstjóra barna- og fjölskyldustofu, barnamálaráðherra, heilbrigðisráðherra og landlækni. Í október fékk umboðsmaður barna afrit. Greinin er birt með samþykki móður geranda.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Skáksnillingurinn og Íslandsvinurinn Boris Spassky látinn

Skáksnillingurinn og Íslandsvinurinn Boris Spassky látinn
Fréttir
Í gær

Grímur opnar sig um persónulega reynslu sem barn í kerfinu – „Ég sagði aldrei neitt enda var enginn að hlusta“ 

Grímur opnar sig um persónulega reynslu sem barn í kerfinu – „Ég sagði aldrei neitt enda var enginn að hlusta“ 
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Afgreiðslumaður í verslun tilkynnti hegðun viðskiptavinar til barnaverndaryfirvalda – Sagður hafa slegið son sinn í innkaupakerru

Afgreiðslumaður í verslun tilkynnti hegðun viðskiptavinar til barnaverndaryfirvalda – Sagður hafa slegið son sinn í innkaupakerru
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kristján Sívarsson fyrir dóm sakaður um að pynta konu í tíu daga – Notaði nál, hníf, hamar, járnrör, spýtu og hleðslutæki

Kristján Sívarsson fyrir dóm sakaður um að pynta konu í tíu daga – Notaði nál, hníf, hamar, járnrör, spýtu og hleðslutæki