fbpx
Föstudagur 28.febrúar 2025
Fréttir

TM formlega komið í eigu Landsbankans

Ritstjórn DV
Föstudaginn 28. febrúar 2025 15:05

Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans og Birkir Jóhannsson, forstjóri TM

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samkvæmt tilkynningu frá Landsbankanum fór uppgjör og afhending vegna kaupa Landsbankans á TM tryggingum hf. af Kviku banka fram í dag og hafi Landsbankinn tekið við rekstri félagsins. TM verður eftirleiðis rekið sem dótturfélag Landsbankans.

Eftirfarandi er haft eftir Lilju Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, í tilkynningunni:

„TM er öflugt tryggingafélag með frábæru starfsfólki sem býr yfir mikilli þekkingu á tryggingamarkaði. Við hlökkum til að vinna með starfsfólki TM að því að þróa spennandi nýjungar. Saman búa Landsbankinn og TM yfir öflugu þjónustu- og söluneti, hvort sem er í gegnum reynslumikið starfsfólk, stafrænar lausnir eða í útibúum um allt land. Við sjáum fyrir okkur gott aðgengi viðskiptavina að vörum og þjónustu beggja félaga sem skapar bankanum og TM mörg tækifæri til sóknar. Við teljum auk þess að kaup bankans á TM muni hafa jákvæð áhrif á rekstur bankans, fjölga tekjustoðum og auka ávinning eigenda bankans til framtíðar. Landsbankinn og TM verða betri saman!“

 Birkir Jóhannsson, forstjóri TM, segir eftirfarandi:

„Við hjá TM erum virkilega spennt að ganga til liðs við Landsbankann. Viðskiptavinir Landsbankans hafa um árabil verið meðal ánægðustu viðskiptavina á íslenskum bankamarkaði og TM hefur á undanförnum misserum stigið afgerandi skref í átt að sama marki á tryggingamarkaði. Ég er sannfærður um að þegar við snúum bökum saman munu TM og Landsbankinn veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi alhliða fjármálaþjónustu, hjálpa þeim að vaxa og dafna og grípa þá þegar áföll verða.“

Samkvæmt tilkynningunni var umsamið kaupverð samkvæmt kaupsamningi  28,6 milljarðar krónur og miðist það við efnahagsreikning TM í upphafi árs 2024. Líkt og fram hafi komið hafi verið samið um að endanlegt kaupverð yrði aðlagað miðað við breytingar á efnislegu eigin fé TM frá 1. janúar 2024 til afhendingardags. Hækkun á efnislegu eigin fé TM á tímabilinu 1. janúar 2024 til 31. desember 2024 nemi um 3,7 milljörðum króna (hagnaður tímabilsins, leiðrétt fyrir breytingum á óefnislegum eignum) og sé heildarkaupverð með kaupverðsaðlögun til 31. desember 2024 því um 32,3 milljarðar króna. Samkvæmt því sé margfeldi kaupverðs af efnislegu eigin fé TM 1,80.

Að lokum segir í tilkynningunni að lokauppgjör vegna kaupverðsaðlögunar muni fara fram þegar endurskoðað uppgjör TM miðað við afhendingardag liggi fyrir og muni koma til hækkunar eða lækkunar á kaupverðinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Fékk vægan dóm fyrir að misnota stjúpdóttur sína

Fékk vægan dóm fyrir að misnota stjúpdóttur sína
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Ólafur ósáttur og sakar Viðskiptablaðið um lygar – „Sit ekki lengur þegjandi undir upplognum merkimiðum falsfréttamiðla“

Ólafur ósáttur og sakar Viðskiptablaðið um lygar – „Sit ekki lengur þegjandi undir upplognum merkimiðum falsfréttamiðla“
Fréttir
Í gær

Kristján Sívarsson fyrir dóm sakaður um að pynta konu í tíu daga – Notaði nál, hníf, hamar, járnrör, spýtu og hleðslutæki

Kristján Sívarsson fyrir dóm sakaður um að pynta konu í tíu daga – Notaði nál, hníf, hamar, járnrör, spýtu og hleðslutæki
Fréttir
Í gær

World Class hjónin skála í nýja húsinu – Nágrannar óánægðir með snigilshraða á framkvæmdum

World Class hjónin skála í nýja húsinu – Nágrannar óánægðir með snigilshraða á framkvæmdum
Fréttir
Í gær

Fiskikóngurinn hefur ekkert að fela -„Það skíta allir upp á bak, bara spurning hvernig þú skeinir þér, ég er mjög vel skeindur“

Fiskikóngurinn hefur ekkert að fela -„Það skíta allir upp á bak, bara spurning hvernig þú skeinir þér, ég er mjög vel skeindur“
Fréttir
Í gær

Þurfum við íslenskan her? Ólína segir að herleysi sé einmitt styrkur Íslendinga

Þurfum við íslenskan her? Ólína segir að herleysi sé einmitt styrkur Íslendinga