„Fyrir rúmum 15 árum fór ég í harkalegt „burnout“ og heilsan mín hrundi gjörsamlega. Ég flakkaði á milli þess að vera í stanslausum svimaköstum yfir í magakrampa, harkalega höfuðverki, óreglulegan hjartslátt og ótal önnur einkenni,“ segir Sölvi í pistli á Vísi.
„Eftir að hafa ítrekað séð viðmælendur mína tvöfalt í viðtölum og reynt að harka af mér talsvert lengi endaði ég á bráðamóttöku. Á þessum tíma var lítil vitneskja um þessa hluti og ég var því sendur heim með tvær tegundir af lyfjum og engar frekari ráðleggingar. Þau gerðu sama og ekkert og næstu átta mánuði reyndu alls kyns sérfræðilæknar að finna hvað amaði að mér án árangurs. Að endingu sagði heimilislæknirinn við mig: „Þú ert að verða mest rannsakaði maður á Íslandi, en athuganirnar benda til þess að þú sért við hestaheilsu.““
Sölvi fór að efast um sig sjálfan. „Við tók tímabil af miklu niðurrifi og sannfæringu um að ég væri líklega bara hysterískur og þjakaður af „hypochondriu“. En neyðin kennir naktri konu að spinna og ég fór að sækja mér upplýsingar um allt sem sneri að heilsu eins og óður maður og í kjölfarið fór ég að gera tilraunir á sjálfum mér,“ segir hann og heldur áfram:
„Og þá fyrst fóru hlutirnir að gerast. Breytingar á matarræði, hreyfingu, svefnvenjum, kælimeðferðir, jarðtenging, öndunaræfingar og fleira fóru að snúa hjólinu í rétta átt. Það sem þetta tímabil kenndi mér var að taka utanaðkomandi ráðleggingum með fyrirvara, enda hafði enginn verið í mínum líkama og vel viljaðir sérfræðingar höfðu ekkert náð að gera fyrir mig þrátt fyrir margra ára háskólanám. Sérstaklega lærði ég að þiggja með enn meiri fyrirvara ráðleggingar frá fólki sem vissi upp á hár hvað væri alls ekki gott fyrir mig, án þess að hafa prófað það sjálft.“
Sölvi segir að hann hafi farið að taka eftir athyglisverðu mynstri.
„Þeir sem voru harðastir á því að ég ætti ekki að fara í kalda potta áttu það sameiginlegt að hafa ekki stundað kuldameðferð. Þeir sem voru mest á móti því að ég prófaði föstur áttu það yfirleitt sameiginlegt að hafa ekki fastað. Þeim sem fannst breytingar á matarræði fela í sér öfgar höfðu undantekningarlaust ekki prófað „öfgafulla” matarræðið. Þeir sem vildu að ég færi mjög varlega í hreyfingu voru yfirleitt ekki í mjög góðu líkamlegu ásigkomulagi og hreyfðu sig ekki mikið,“ segir hann.
„Á hinn bóginn áttu þeir sem báru þessum hlutum vel söguna það sameiginlegt að stunda þá reglulega sjálfir. Í Nauthólsvíkinni hitti ég fólk sem hafði stundað sjósund í áraraðir og ég sá á þeim að það var augljóslega að virka vel. Að sama skapi kynntist ég fólki sem fastaði mjög reglulega og virkaði vel yfir meðallagi heilbrigt og svo framvegis. Áhugaverðast var að þeir sem vissu mest hvað var best fyrir mig án þess að hafa prófað það á eigin skinni voru yfirleitt með háskólamenntun og gátu þar af leiðandi notað menntunina til að tala af ákveðnu yfirlæti. Sem sagt mikill bóklestur og alls kyns þekking án raunverulegrar reynslu.“
Sölvi byrjaði einnig að stunda hugleiðslu í fyrsta sinn á ævinni sem gerði honum gott.
„Það er stundum talað um að viska verði til þegar þekkingu er breytt í raunverulega persónulega reynslu. Ég er sjálfur þeirrar skoðunar. Það er áhugavert að nánast í hvert einasta skipti sem tekið er viðtal í fjölmiðlum við einhvern sem segist líða mjög vel á „öfgakenndu“ matarræði, eða hafa lagað mikla líkamlega veikleika með „öfgakenndum lífsstíl“, spretta dagana á eftir upp sérfræðingar sem fullyrða að þessir hlutir séu stórhættulegir og fólk eigi alls ekki að prófa þá,“ segir hann.
„Þegar ég sé umfjöllun af þessu tagi spyr ég mig alltaf einnar spurningar: Hefur þessi tiltekna manneskja einhvern tíma reynt á eigin skinni það sem hún veit svona djúpt og innilega að sé stórhættulegt fyrir alla aðra? […] Höfundur er háskólamenntaður, en hefur lært mest af skóla lífsins.“
Lestu pistil Sölva í heild sinni hér.