Andrew og Dawn Searle, sem búsett höfðu verið í bænum Les Pesquiés í um áratug, fundust látin á heimili sínu í byrjun mánaðar.
Til að byrja með bentu verksummerki til þess að um hefði verið að ræða misheppnaða innbrots- eða ránstilraun.
Andrew hafði meðal annars starfað við rannsóknir á efnahagsglæpum í Edinborg í Skotlandi áður en hann settist í helgan stein og skoðaði lögregla einnig hvort hann hefði átt sér einhverja óvildarmenn í ljósi þess við hvað hann starfaði.
Sjá einnig: Skoða óhugnanlega kenningu í máli breskra hjóna sem fundust myrt í Frakklandi
Breska blaðið The Sunday Post sagði frá því um helgina að flest benti til þess að Andrew hafi banað Dawn og sviðsett síðan innbrot.
Lík Dawn fannst utandyra með áverka á höfði og taldi lögregla í fyrstu að hún hefði reynt að hlaupa undan innbrotsþjófunum. Íbúar voru í nokkrum húsum mjög nærri og heyrði enginn þeirra nein læti, hvorki öskur eða barsmíðar.
„Það sem er líklegt er að hún hafi verið drepin inni í húsinu, þar sem dyr og gluggar voru lokaðir enda hávetur, og líki hennar svo komið fyrir í garðinum,“ segir heimildarmaður The Sunday Post.
Nicoals Rigot-Muller, saksóknari í Rodez, staðfesti í samtali við miðilinn að þessi kenning sé líkleg. Að öllum líkindum hefðu nágrannar heyrt í hjónunum ef innbrotsþjófur hefði brotist inn á heimilið.
Lögregla hefur unnið sleitulaust að rannsókn málsins síðustu þrjár vikur og hefur enginn verið handtekinn í tengslum við það. Í fréttinni er þess einnig getið að vettvangsrannsókn lögreglu bendi ekki til þess að þriðji aðili hafi verið á heimilinu áður en hjónin fundust látin.
Í þessari frétt er fjallað um þunglyndi og sjálfsvíg. Ef einstaklingar glíma við sjálfsvígshugsanir er bent á Hjálparsíma Rauða krossins 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Opið allan sólarhringinn. Einnig má hafa samband við Píeta-samtökin sem veita ókeypis ráðgjöf í síma 552-2218, allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru þar sem svarar hjúkrunarfræðingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi má fá stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöð og hjá Pieta samtökunum.
Úrræði við ofbeldi í nánu sambandi
Neyðarlínan er með ítarlegar leiðbeiningar bæði um það hvað ofbeldi í nánu sambandi felur í sér og hvert er hægt að leita ef maður sjálfur eða einhver sem maður þekkir er beittur ofbeldi.