Frá þessu er greint á vef Stjórnarráðsins.
Í tilkynningunni kemur fram að reglugerðin taki einungis til þeirra meðferða sem að framan er getið, en séu slíkar meðferðir ekki gerðar rétt getur það haft alvarlegar afleiðingar í för með sér.
„Aðrar andlits- og húðmeðferðir sem eru hættuminni, s.s. húðslípun, húðþétting og örnálameðferðir ásamt meðferðum sem framkvæmdar eru með lasertækjum og falla undir reglugerð nr. 171/2021 falla því utan við reglugerðina,“ segir í tilkynningunni.
„Í 4. gr. reglugerðarinnar er skilgreint hverjum sé heimilt að veita umræddar meðferðir og hvaða skilyrði þarf að uppfylla. Þetta eru læknar með sérfræðileyfi í húðlækningum og lýtalækningum. Enn fremur læknar, tannlæknar og hjúkrunarfræðingar, hafi þeir aflað sér fullnægjandi þekkingar og hæfni til að veita meðferðina, greina og bregðast við fylgikvillum, eða hafi í þjónustu sinni þar til bæran lækni sem getur brugðist við í tæka tíð. Aðeins er heimilt að veita þessar meðferðir á starfsstofu heilbrigðisstarfsmanns sem hefur hlotið staðfestingu landlæknis um að reksturinn uppfylli faglegar kröfur.“
Þá kemur fram í tilkynningunni að meðferð megi aldrei veita nema fyrir liggi undirritað samþykki þess sem meðferðina þiggur og skal samþykkið skráð í sjúkraskrá. Þeir sem hyggjast veita meðferðir sem reglugerðin fjallar um skulu tilkynna það til embættis landlæknis eigi síðar en 1. júlí næstkomandi.
Nánar er fjallað um málið á vef Stjórnarráðsins.