fbpx
Miðvikudagur 19.febrúar 2025
Fréttir

Þröstur tekur við ritstjórn Bændablaðsins

Ragna Gestsdóttir
Laugardaginn 15. febrúar 2025 12:08

Þröstur Helgason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í vikunni var gengið frá samningum við Þröst Helgason sem ráðinn hefur verið sem ritstjóri Bændablaðsins og mun hann taka við ritstjórn miðilsins á næstu vikum.

Þröstur segist í tilkynningu spenntur að taka við Bændablaðinu: „Bændablaðið er traust og gott blað með mikinn lestur. Ég hlakka til að halda áfram því frábæra starfi sem þarna hefur verið unnið undanfarin ár. Mér finnst vinsældir blaðsins segja mikið um þann góða hug sem landsmenn bera til bænda og málefna landsbyggðarinnar. Mér þykir afar vænt um það traust sem mér hefur verið sýnt með þessari ráðningu og hlakka til að taka við þessu frábæra blaði.“

Þröstur á að baki langan feril í blaðamennsku, ritstjórn og stjórnun fjölmiðla. Hann var dagskrárstjóri Rásar 1 á RÚV í níu ár en lauk störfum þar í mars 2023. Áður starfaði hann sem blaðamaður á Morgunblaðinu um árabil, þar af sem ritstjóri Lesbókar árin 2001 til 2009. Hann hefur komið að útgáfustarfsemi með ýmsum hætti og síðustu tvö ár rekið bókaforlagið KIND útgáfu. Þröstur er með doktorspróf í almennri bókmenntafræði og hefur sinnt kennslu við Háskóla Íslands og Listaháskóla Íslands, auk þess sem hann er höfundur þriggja bóka.

Margrét Ágústa, framkvæmdastjóri Bændasamtakanna, segir samtökin hlakka til að starfa með Þresti: „Við kveðjum Guðrúnu Huldu Pálsdóttur, fráfarandi ritstjóra, með söknuði. Hún hefur unnið afar öflugt starf í þágu fjölmiðilsins og leitt á þann málsmetandi stað sem Bændablaðið er í dag, sem mest lesni prentmiðill landsins. Ásýnd og hróður Bændablaðsins hefur aldrei verið meiri enda hafa efnistök og gæði blaðsins orðið enn betri á síðustu árum. Ég óska henni velfarnaðar í sínum framtíðarverkefnum. Það er því afar mikill fengur fyrir Bændasamtökin að fá jafn reynslumikinn mann eins og Þröst til starfa. Við bjóðum hann velkominn til starfa og erum sannfærð um að Þröstur muni gera gott blað enn betra. Þekking hans og reynsla í störfum sínum á fjölmiðlum mun nýtast í að efla umræðuna um landbúnaðinn og landsbyggðina..“

Bændablaðið gegnir lykilhlutverki í að koma á framfæri upplýsingum um landbúnaðartengd málefni sem spanna vítt svið. Í ljósi mjög aukinnar áherslu á fæðuöryggi, matvælaöryggi, umhverfis- og loftslagsmál, orkumál, byggðarmál, sjálfbærni og nýsköpun þarf vart að fjölyrða um hversu mikilvægur miðillinn er allri umræðu og upplýsingu þjóðarinnar. Þá er Bændablaðið mest lesni prentmiðill landsins og t.a.m. með yfir 40% meðallestur á landsbyggðinni og hefur því mikilvægu hlutverki að gegna gagnvart umræðu og menningu í hinum dreifðari byggðum. Verkefni nýs ritstjóra eru því bæði umfangsmikil og mikilvæg íslenskum landbúnaði.

Bjóða Bændasamtökin Þröst hjartanlega velkominn til starfa.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Nýtt hlutverk Svala
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins sektuð um fimm milljónir fyrir að brjóta lög

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins sektuð um fimm milljónir fyrir að brjóta lög
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Síbrotamaðurinn Guðfinnur sakfelldur fyrir nauðganir

Síbrotamaðurinn Guðfinnur sakfelldur fyrir nauðganir
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Mogginn svarar fyrir sig og sendir Heimi Má pillu: „Næsta víst að hann og Inga Sæ­land munu eiga góða daga sam­an“

Mogginn svarar fyrir sig og sendir Heimi Má pillu: „Næsta víst að hann og Inga Sæ­land munu eiga góða daga sam­an“
Fréttir
Í gær

Myndband sýnir augnablikið þegar flugvél Delta brotlenti – Ótrúlegt að allir hafi lifað slysið af

Myndband sýnir augnablikið þegar flugvél Delta brotlenti – Ótrúlegt að allir hafi lifað slysið af
Fréttir
Í gær

Heimir Már ómyrkur í máli: „Eiturpennar á Mogganum án alls siðgæðis“

Heimir Már ómyrkur í máli: „Eiturpennar á Mogganum án alls siðgæðis“
Fréttir
Í gær

Segir kaþólsku kirkjuna skapa fordæmi fyrir trúlausa Íslendinga

Segir kaþólsku kirkjuna skapa fordæmi fyrir trúlausa Íslendinga