Það voru ófáir stuðningsmenn Chelsea sem kölluðu eftir því í gær að félagið myndi einfaldlega reka stjóra sinn, Enzo Maresca.
Maresca hefur gert fína hluti með Chelsea í vetur en liðið hefur ekki verið jafn sannfærandi í undanförnum leikjum.
,,Rekið Maresca til að bjarga þessu tímabili. Svo megiði reka stjórnina í lok tímabils. Þetta er skelfilegt,“ skrifaði einn reiður stuðningsmaður í gær.
Annar bætir við: ,,Þetta er svo sorglegt og glatað. Við erum ömurlegir varnarlega og það geta allir unnið okkur. Kannski þurfum við að breyta til.“
Netverjar eru oft mjög skapmiklir þegar kemur að úrslitum en Chelsea tapaði 3-0 gegn Brighton í ensku úrvalsdeildinni í gær.
Cole Palmer hefur verið besti leikmaður Chelsea í vetur en jafnvel hann átti slæman leik og fékk sína gagnrýni á samskiptamiðlum.