fbpx
Laugardagur 15.febrúar 2025
Fréttir

Sigrún segir að kennarar tali um hræðslu – Kallar eftir að áhersla verði lögð á þetta

Ritstjórn DV
Föstudaginn 14. febrúar 2025 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir, skólastjóri Hörðuvallaskóla í Kópavogi, segir að henni þyki orðið algengara í dag að starfsfólk grunnskóla tali um að vera hrætt í starfi.

Sigrún segir þetta í samtali við Morgunblaðið í dag en tilefnið er fréttaflutningur blaðsins af stöðu mála í Breiðholtsskóla þar sem nokkrir nemendur á miðstigi eru sagðir halda skólanum í heljargreipum. Ræddi blaðið í vikunni við nokkra foreldra sem lýstu stöðunni og því úrræðaleysi sem ríkir í málefnum nemenda sem glíma við hegðunarvanda.

Sjá einnig: Segir fimm 12 ára drengi halda Breiðholtsskóla í heljargreipum

Á Bylgjunni í gær var einnig rætt við Hermann Austar, föður 12 ára stúlku í skólanum, sem lýsti því ofbeldi sem hún hefur orðið fyrir.

Sagði Hermann að menningarlegur vandi sé í spilinu og ekki hafi tekist að ná samvinnu við foreldra þeirra fimm 12 ára drengja sem viðhaldi ógnaröld í skólanum. Hann segir athafnaleysi skólans og skóla- og frístundasviðs í málinu vera glæpsamlegt. „Þetta er stofnun sem ekki er hægt að treysta,“ sagði Hermann.

Sjá einnig: Ógnarástand í Breiðholtsskóla:„Það eina sem dóttir mín er að læra núna er að vera þolandi ofbeldis“

Sigrún segir að skólana skorti verulega úrræði þegar upp koma mál af þessu tagi. Þá nefnir hún að hlutverk kennara sé fyrst og fremst að mennta börnin en starf kennara hafi færst sífellt meira út fyrir þetta hlutverk. Segir hún við Morgunblaðið að mikill tími í starfi kennara fari í að leysa úr alls konar ágreiningsmálum.

„Þessi at­vik eins og lýst er í Breiðholts­skóla – þetta er orðið al­geng­ara og það er orðið erfiðara að eiga við þetta,“ segir hún í viðtalinu.

Hún segir lykilatriði vera samstarf heimilis og skóla og þegar það er ekki til staðar sé mjög erfitt að vinna úr málunum. Hún nefnir einnig heilbrigðiskerfið, sérstaklega geðheilbrigðismál, og telur að ef þau yrðu sett í forgang myndi það skila sér inn í skólana.

„Það yrði greiðari aðgang­ur að úrræðum fyr­ir for­eldra með börn í vanda og þau fengju loks viðeig­andi aðstoð. Það myndi hjálpa fyrst og fremst barn­inu sjálfu, en um leið skól­an­um í heild,“ segir hún við Morgunblaðið þar sem nánar fjallað er um málið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Reykjanesbær í lausafjárvanda

Reykjanesbær í lausafjárvanda
Fréttir
Í gær

Guðmundur varar Hafnfirðinga við: „Hvaða um­hverf­issinna dett­ur í hug að dæla snefilefnum sem eru ekk­ert annað en eit­ur und­ir íbúðarbyggð?“

Guðmundur varar Hafnfirðinga við: „Hvaða um­hverf­issinna dett­ur í hug að dæla snefilefnum sem eru ekk­ert annað en eit­ur und­ir íbúðarbyggð?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Samúel, Elías og Jónas dæmdir í fangelsi fyrir stórfellt fíknefnabrot

Samúel, Elías og Jónas dæmdir í fangelsi fyrir stórfellt fíknefnabrot
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hugmynd Runólfs með Græna gímaldið vekur sterk viðbrögð – „Þetta er dónalegt Reykjavík þarf að fjarlægja mistökin sem gerð voru“

Hugmynd Runólfs með Græna gímaldið vekur sterk viðbrögð – „Þetta er dónalegt Reykjavík þarf að fjarlægja mistökin sem gerð voru“