Svokallaður fituhlunkur (e. fatberg) hafði myndast í fráveitu undir tónleikahöllinni og óttuðust tónleikahaldarar að salerni hallarinnar myndu ekki höndla álagið. Ef allt færi á versta veg myndi flæða upp úr klósettskálum tónleikahallarinnar.
Uppselt var á tónleika Adams sem halda átti í RAC Arena í Perth og voru margir tónleikagestir ansi súrir að fá ekki að berja þennan vinsæla tónlistarmann augum. Gagnrýndu margir upplýsingaskort í aðdraganda þess að tónleikunum var aflýst.
Ekki reyndist unnt að færa tónleikana til og var þeim því aflýst en tónleikagestir fá miðana endurgreidda. Fram undan eru tónleikar hjá Adams í Sydney, Brisban og Melbourne áður en hann heldur til Bandaríkjanna.
Svonefndir fituhlunkar myndast þegar til dæmis blautþurrkum, matarfitu, eiturefnum og allskonar rusli er sturtað niður. Þegar allt þetta blandast saman getur myndast stór og mikill massi sem stíflar fráveitukerfin.
Árið 2019 var fjallað um vandamál tengd fituhlunkum hér á landi en í frétt RÚV sagði Íris Þórarinsdóttir, tæknistjóri hjá Veitum, að fituhlunkar hafi verið til vandræða í dælukerfum hér á landi.