fbpx
Þriðjudagur 11.febrúar 2025
Pressan

Ítalskur læknir ákærður í óvenjulegu máli þar sem kötturinn hans kemur við sögu

Pressan
Fimmtudaginn 6. febrúar 2025 21:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ítalski læknirinn Gianluca Fanelli, sem starfar við Umberto Parini-sjúkrahúsið í Aosta á norðurhluta Ítalíu er á köldum klaka af óvenjulegum ástæðum.

Fanelli gerði sig nefnilega sekan – samkvæmt saksóknurum – um að framkvæma aðgerð á kettinum sínum á sjúkrahúsinu. Aðgerðin var lífsnauðsynleg þar sem kötturinn, sem heitir Athena, hafði skömmu áður dottið út um glugga á sjöttu hæð og var nær dauða en lífi þegar Fanelli fór með hann á sjúkrahúsið.

Málið komst á borð lögreglu og segja saksóknarar að hann hafi með þessu farið illa með almannafé og lagt stein í götu þeirra sjúklinga sem biðu eftir þjónustu.

Þessu er Fanelli hjartanlega ósammála og bendir hann á að atvikið hafi gerst klukkan 11 að kvöldi og deildin sem aðgerðin var framkvæmd á hafi verið lokuð.

„Hún var á milli heims og helju en ég vissi að ég gæti bjargað henni með því að bregðast skjótt við,“ segir hann við ítalska fjölmiðla. Á sjúkrahúsinu losaði hann meðal annars vökva sem tekinn var að safnast fyrir í lungunum á kettinum og setti köttinn í tölvusneiðmyndatæki til að kanna með meiðsl.

Fanelli segir að sem læknir vinni hann að því að bjarga lífum og á þessum tímapunkti, þegar slysið varð, hafi ekkert annað komið til greina af hans hálfu en að bjarga kettinum með öllum tiltækum ráðum. „Ég hefði aldrei getað fyrirgefið mér það ef hún hefði dáið,“ segir hann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Svikin hrottalega af manni sem hún taldi vera vin sinn – Breytti góðum minningum í martraðir

Svikin hrottalega af manni sem hún taldi vera vin sinn – Breytti góðum minningum í martraðir
Pressan
Í gær

Ný rannsókn – Fallegt fólk þénar meira

Ný rannsókn – Fallegt fólk þénar meira
Pressan
Fyrir 2 dögum

Tímavélin: Óhugnaður á íslenskum sveitabæ – Tekinn af foreldrum sínum og sendur beint í greipar níðings

Tímavélin: Óhugnaður á íslenskum sveitabæ – Tekinn af foreldrum sínum og sendur beint í greipar níðings
Pressan
Fyrir 2 dögum

Bæði kynin dragast að klámi

Bæði kynin dragast að klámi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Skoða óhugnanlega kenningu í máli breskra hjóna sem fundust myrt í Frakklandi

Skoða óhugnanlega kenningu í máli breskra hjóna sem fundust myrt í Frakklandi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kínverjar ætla að smíða risastóra sólarorkustöð í geimnum – Gæti aflað meiri orku á einu ári en „öll olían á jörðinni“

Kínverjar ætla að smíða risastóra sólarorkustöð í geimnum – Gæti aflað meiri orku á einu ári en „öll olían á jörðinni“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Kristinn greinahöfundur sem sakaði dragdrottningar um að kyngera börn hefur verið handtekinn fyrir brot gegn barni

Kristinn greinahöfundur sem sakaði dragdrottningar um að kyngera börn hefur verið handtekinn fyrir brot gegn barni
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sektaður fyrir að hafa verið drukkin þegar hann flaug dróna

Sektaður fyrir að hafa verið drukkin þegar hann flaug dróna