fbpx
Miðvikudagur 05.febrúar 2025
Pressan

Það vill enginn dvelja í þessu fangelsi

Pressan
Miðvikudaginn 5. febrúar 2025 09:30

CECOT-fangelsið í El Salvador. Myndir/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur samið við yfirvöld í El Salvador um að þau taki við hættulegum glæpamönnum frá Bandaríkjunum. Gildir þá einu hvort um er að ræða ólöglega innflytjendur eða bandaríska ríkisborgara.

Rubio tilkynnti þetta í gærmorgun og hefur forseti El Salvador, Nayib Bukele, staðfest að yfirvöld hafi boðið Bandaríkjunum afnot af stærsta fangelsi landsins, CECOT-fangelsinu svokallaða, þar sem pláss er fyrir 40 þúsund fanga.

„Verðið verður tiltölulega lágt fyrir Bandaríkjamenn en mun skipta miklu fyrir okkur og gera fangelsiskerfið okkar sjálfbært,“ segir hann.

Eftir að Bukele tók við embætti forseta landsins hefur hann skorið upp herör gegn glæpagengjum í landinu. Frá árinu 2022 hafa 81 þúsund manns verið sendir í fangelsi í El Salvador og samhliða því hefur glæpatíðni snarlækkað.

Ýmsir hafa þó vakið athygli á stöðu mannréttindamála í fangelsum landsins og bent á að aðstæður þar séu mjög erfiðar fyrir fanga. Í CECOT-fangelsinu sé til dæmis mjög þröngt á þingi, hreinlæti sé ábótavant sem og aðgangur að hreinu drykkjarvatni. Þá eru ljós kveikt allan sólarhringinn og dvelja fangarnir saman í stórri álmu með litlu sem engu friðhelgi.

Óvíst er hvernig staðið verður að flutningi bandarískra ríkisborgara til El Salvador og eru lög nokkuð skýr sem banna flutning bandarískra ríkisborgara til annarra landa. Á þetta bendir Leti Volpp, lagaprófessor við UC Berkeley, í samtali við CNN og segir hann engu máli skipta hvort viðkomandi sé í fangelsi eða ekki.

Mail Online varpaði ljósi á lífið í CECOT-fangelsinu fyrir skemmstu en í þeirri umfjöllun kom fram að fangelsið væri stundum kallað Alcatraz Mið-Ameríku og „svarthol“ þegar kemur að mannréttindum fanga.

Bent var á það að ljós væru kveikt allan sólarhringinn í fangelsinu, fangar sofi á einskonar stálplötum og þeir fái engar dýnur eða kodda til að gera dvölina þægilegri. Og þurfi fangar að fara á klósettið þurfi að gera það fyrir opnum tjöldum allra. Þá var bent á að fangar fái aldrei að anda að sér fersku lofti og hitastigið í álmunum geti farið í 35 gráður þar sem loftkæling er af afar skornum skammti.

Þó að margir hafi gagnrýnt fyrirætlanir yfirvalda í El Salvador og Bandaríkjunum eru margir sem fagna þeim. „Frábær hugmynd,“ sagði til dæmis Elon Musk á samfélagsmiðli sínum, X, þegar hann deildi færslu Bukele forseta um samkomulagið við Bandaríkin.

Fangar fá að teygja úr sér 30 mínútur á dag en fá þó aldrei að anda að sér fersku lofti. Mynd/Getty

 

Mynd/Getty

 

Mynd/Getty

 

Mynd/Getty
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Kim Jong-un sviptir hulunni af „Benidorm“ strandbænum sínum

Kim Jong-un sviptir hulunni af „Benidorm“ strandbænum sínum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ýmsu er ósvarað í tengslum við hvarf systranna

Ýmsu er ósvarað í tengslum við hvarf systranna
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hættu í megrun – Svona léttist þú án þess að svelta þig

Hættu í megrun – Svona léttist þú án þess að svelta þig
Pressan
Fyrir 3 dögum

Dularfullar myndir frá Mars valda fjaðrafoki hjá samsæriskenningasmiðum – Musk vill rannsaka málið

Dularfullar myndir frá Mars valda fjaðrafoki hjá samsæriskenningasmiðum – Musk vill rannsaka málið
Pressan
Fyrir 3 dögum

Syrgjandi mæður úthúða stjörnunni

Syrgjandi mæður úthúða stjörnunni
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þetta eru ókostirnir við airfryer sem sölumenn gleyma oft að nefna

Þetta eru ókostirnir við airfryer sem sölumenn gleyma oft að nefna