Söngkonan Móeiður Júníusdóttir eða Móa sendir frá sér lagið Crazy Lover en það er eftir lagasmiðinn Gunnar Inga Guðmundsson. Textinn er eftir Nínu Richter og upptökustjórn var í höndum Stefáns Arnar Gunnlaugssonar.
Móa var virk í tónlistarsenunni rétt um og fyrir aldamótin 2000 hérlendis og erlendis. Gaf m.a. út jazzplötu, raftónlistarskotið popp með hljómsveitinni Bong og sólóplötuna Universal undir merkjum hins goðsagnakennda bandaríska hip hop útgáfufyrirtækis Tommy Boy.
Móa sneri sneri sér aftur að tónlistinni eftir langt hlé og hefur sent frá eigin lög og tekið þátt í samstarfsverkefnum undanfarin ár. Þá tók hún þátt í forkeppni Söngvakeppni Sjónvarpsins 2023 með lagið Glötuð ást.
Gunnar Ingi er lagahöfundur, bassaleikari og tónskáld og hefur komið víða við í tónlistarsköpun sinni. Lagið Crazy Lover er seiðandi raftónlistarskotið popplag í cinematískum stíl og fjallar textinn um ástarsamband sem er á köflum eitrað, svona haltu mér, slepptu mér samband þar sem enginn er öruggur. En það er einmitt þessi spenna og óvissa sem viðheldur neistanum, segir Nína Richter um gerð textans.
Hlýða má á lagið í spilaranum hér fyrir neðan: