fbpx
Föstudagur 31.janúar 2025
Eyjan

Þórður Snær um stóra herbergjamálið – „Skondnasta birtingarmynd yfirstandandi frekjukasts“

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 31. janúar 2025 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stærsta þingflokksherbergið í Alþingishúsinu komst í fréttirnar í gær eftir að þingflokkur Samfylkingarinnar gerði, sem stærsti flokkurinn eftir kosningarnar í lok nóvember, kröfu um að fá herbergið til afnota þegar þing kemur saman.

Sjálfstæðisflokkurinn reis upp til handa og fóta og þverneitar að gefa umrætt herbergi eftir enda haft það til afnota frá árinu 1941. Samfylkingin fékk 15 þingmenn kjörna á meðan Sjálfstæðisflokkurinn fékk 14 þingmenn.

Sjá einnig: Samfylkingin vill herbergi Sjálfstæðisflokksins en hann vill alls ekki gefa það eftir

Ragna Árnadóttir, skrifstofustjóri Alþingis, sendi Hildi Sverrisdóttur, þingflokksformanni Sjálfstæðisflokksins, bréf í byrjun mánaðar um erindi Samfylkingarinnar – að taka yfir herbergi Sjálfstæðisflokksins. Hildur svaraði bréfinu með því að krafa Samfylkingarinnar væri ekki í samræmi við reglur forsætisnefndar um úthlutun þingflokksherbergja. Þar sé kveðið á um að flokkar almennt haldi herbergjum sínum nema annað kalli á breytingar, stærð þingflokka til dæmis. Benti Hildur á að 19 manna þingflokkur hafi verið í næsta herbergi án þrengsla eða vandkvæða.

Segir viðbrögðin birtingarmynd yfirstandandi frekjukasts

Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar, sem gaf eftir þingsæti sitt fyrir Samfylkinguna, tekur Stóra herbergjamálið fyrir í fréttabréfi sínu Kjarnyrt. Segir hann málið hluta af yfirstandandi frekjukasti Sjálfstæðisflokksins.

„Skondnasta birtingarmynd yfirstandandi frekjukasts er þó án nokkurs vafa viðbrögð þingflokks Sjálfstæðisflokks, sem birt voru í Morgunblaðinu í gær, við þeirri fyrirsjáanlegu kröfu að Samfylkingin fái stærsta þingflokksherbergið í Alþingishúsinu. Það er gert á grunni þess að eðlilegt sé að fundarherbergi í þinghúsinu séu nýtt í samhengi við stærð og samsetningu flokka. Þá hefur verið skipt um alla stjórnarflokka milli kosninga og við búið að þeir sem nú eru í ríkisstjórnarsamstarfi vilji vera í kallfæri við hvorn annan. Þess vegna, til að einfalda störf stjórnarflokkanna, er praktískt að þingflokksherbergi þeirra séu samliggjandi,“ segir Þórir.

„Rökin fyrir því að það eigi ekki að verða við þeirri kröfu eru þau að Sjálfstæðisflokkurinn hafi alltaf átt þetta herbergi og nýtt það í 84 ár, að það sé málað blátt og þar af leiðandi í einkennislitum flokksins og að þar hangi málverk af fyrrverandi þingforsetum hans. Fyrir vikið hafi herbergið „tilfinningalegt gildi fyrir flokkinn“. Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokks hótaði hlægjandi setuverkfalli þingmanna á vöktum í herberginu ef ekki yrði orðið við kröfum þeirra um að fá að halda því á grunni einhverskonar hefðarréttar.
Hér takast því annars vegar á praktísk krafa sett fram með yfirveguðum hætti og byggð á rökum, og hins vegar frekjukast byggt á tilfinningum, tilætlunarsemi og ranghugmyndinni um að kjósendur hafi ekki í alvöru framkallað aðskilnað milli flokks og hins opinbera með atkvæðum sínum.“

Flokkurinn eigi erfitt með að aðlagast nýjum veruleika

Þórður segir Sjálfstæðisflokkinn eigs erfitt með að aðlagast nýjum raunveruleika eftir að hafa verið samofinn valdinu á landsvísu.

„Hann hefur haldið um stjórnartauma í fjögur af hverjum fimm árum síðan að Ísland varð sjálfstætt ríki. Þegar Sjálfstæðisflokkurinn datt út úr ríkisstjórn í fyrsta sinn í næstum 17 ár snemma árs 2009 þá átti flokkurinn, flokksmenn og viðhengi í töluverðum vandræðum með að venjast nýjum veruleika,“ segir Þórður sem vann á þeim tíma á Morgunblaðinu.

„Efnað og áhrifamikið fólk úr þeirra mengi brá meðal annars á það ráð að kaupa útgáfufélag Morgunblaðsins, sem var þá tæknilega gjaldþrota, til að mæta nýrri stöðu. …okkur starfsfólkinu var gert það nokkuð ljóst að tilgangur kaupanna var fyrst og síðast að ná öðruvísi tökum á umræðunni,“ segir Þórður sem hætti á Morgunblaðinu þetta sama ár.

Rekur hann að fjárfestingin hafi verið arðbær, eigendahópurinn náð öllum markmiðum sínum, flokkurinn komist til valda aftur 2013 og haldið þeim þar til í nóvember í fyrra.

„Ný ríkisstjórn hefur tekið við völdum sem ætlar sér að hverfa frá valdakerfum helmingaskiptaflokkanna og innleiða stjórnsýslu sem er þjónustumiðuð með hagsmuni heildarinnar að leiðarljósi. Stjórn sem ætlar sér að ráðast í verkefni sem bæta líf venjulegs vinnandi fólks en hafa setið á hakanum allt of lengi. Það var viðbúið að þessi staða, sem byggir á niðurstöðu lýðræðislegra kosninga, myndi framkalla nokkuð vanstillt viðbrögð hjá þeim sem telja sig eiga valdið. Það eru einhverjir aðrir skyndilega mættir þar sem þau telja að þau eigi alltaf að vera, án þess að Sjálfstæðisflokkurinn hafi boðið þeim þangað.“

Sjá einnig: Stóra herbergjamálið á Alþingi – Sjálfstæðisflokkurinn hótar setuverkfalli en hvað segja reglurnar?

Flokksbundnir Sjálfstæðismenn hanni orðræðu um vanda ríkisstjórnar

Þórður fer einnig í skrifum sínum yfir að helsti farvegur Sjálstæðisflokksins sé að atast í Flokki fólksins, línu sem er sett í Morgunblaðinu og tengdum miðlum.

Þórður bendir á að ritstjóri Morgunblaðsins er fyrrum formaður Sjálfstæðisflokksins, stjórnarformaður útgáfufélagsins faðir eina tilkynnta frambjóðandans í verðandi formannskjöri flokksins og flestir lykilstarfsmenn blaðsins flokksbundnir sama flokki og hafa gegnt ýmiskonar trúnaðarstörfum fyrir hans hönd.

„Þessir sömu lykilstarfsmenn skrifa meira og minna alla pólitíska umfjöllun sem birtist í blaðinu og á vef þess. Hún ber þess skýrt merki að hafa ekki upplýsingu að leiðarljósi, heldur innleiðingu á pólitísku narratívi sem hentar ákveðnum hagsmunum,“ segir Þórður.

„Tilgangurinn er að hanna orðræðu og reyna að selja þá hugmynd að nýja ríkisstjórnin sé í einhverskonar vanda. Sem hún er sannarlega ekki, þótt tilvera hennar sé auðvitað bráðavandi í hugum þeirra sem spinna þennan þráð,“ segir Þórður og rifjar upp skráningu Flokks fólksins sem félagasamtök en ekki stjórnmálaflokkur.

„Þessi narratíva reyndist svo ekki sama pólitíska vopn og vonast var til þegar það kom í ljós að Sjálfstæðisflokkurinn hafði sjálfur flaskað á því að breyta skráningunni sinni um tíma, en samt þegið styrki. Það gerðu þrír aðrir flokkar líka. Þetta var reynt að útskýra í burtu með gaslýsingum, án tilætlaðs árangurs.“

Spyr hver tilgangurinn sé með skrifum um Ingu Sæland

Vegna þessa máls, og fleiri, hafa fréttir um Ingu Sæland, formann Flokks fólksins og Félags- og húsnæðismálaráðherra, verið áberandi á öllum miðlum liðna viku. Á þriðjudag var mest lesna fréttin á Mbl.is frétt um að Inga Sæland hefði keypt tvær fasteignir með stuttu millibili.

„….og henni var deilt af starfsfólki þess á Facebook með eftirfarandi texta: „Ættu 328 fm að duga?“ segir Þórður. Og bendir á að um er að ræða fasteignakaup fyrir sex og hálfu ári og fjárfesting upp á 70 milljónir.

„Meti svo hver um sig tilganginn með þessum skrifum.“

Sjálfstæðisflokkurinn og Morgunblaðið þurfi að horfast í augu við breytingar

Þórður segir það einfaldlega eðlilegt að hlutirnir taki breytingum í takti við tímann.

„Það sama gildir nú um Sjálfstæðisflokkinn og Morgunblaðið. Þegar flokkur bíður sögulegt afhroð í kosningum og tapar forystuhlutverki sínu í landinu þá hefur það eðlilega afleiðingar. Nýr veruleiki blasir við.

Það að láta málgagnið hamast á Ingu Sæland vegna þess að hún keypti sér hús á Ólafsfirði fyrir næstum sjö árum eða reyna að afla sér samúðar þjóðarinnar vegna tilfinningarofs milli flokks og herbergis breytir engu um það.“

Lesa má grein Þórðar í heild sinni hér. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Jón tekur með auðmýkt og hlýju á móti nýjum verkefnum – „Ekkert á Íslandi mér óviðkomandi“

Jón tekur með auðmýkt og hlýju á móti nýjum verkefnum – „Ekkert á Íslandi mér óviðkomandi“
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Svarthöfði skrifar: Tilvistarkreppa sjálfstæðismanna – ráðast á Flokk fólksins

Svarthöfði skrifar: Tilvistarkreppa sjálfstæðismanna – ráðast á Flokk fólksins
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Inga Sæland: „Við munum marka okkar spor í sandinn strax á þessu fyrsta ári“

Inga Sæland: „Við munum marka okkar spor í sandinn strax á þessu fyrsta ári“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Steingerður Þorgilsdóttir skrifar: Gæðakerfi byggja oft á einföldum tékklistum

Steingerður Þorgilsdóttir skrifar: Gæðakerfi byggja oft á einföldum tékklistum