fbpx
Föstudagur 31.janúar 2025
Fókus

Páll Óskar þríkjálkabrotnaði í slysi á heimili sínu en sér fram á bata – Endaði í aðgerð fyrir þremur árum vegna hjartagalla

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 31. janúar 2025 12:05

Páll Óskar

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Poppstjarna Íslands, Páll Óskar Hjálmtýsson, gefur í dag út lagið Allt í lagi, sem hann segir kaldhæðni örlaganna þar sem Páll Óskar er þríkjálkabrotinn og sér fram á tveggja mánaða bataferli.

„Ég þarf að lifa með því að fyrir þremur árum síðan þá leið yfir mig í sturtu og mér brá mjög mikið, ég fór strax morguninn eftir til heimilislæknis sem sendi mig bara í allar rannsóknir sem hægt er að fara í,“ segir Páll Óskar í símaviðtali við Ívar Guðmundsson á Bylgjunni.

Páll Óskar fór í kjölfarið í hjartaþræðingu þar sem fannst æðagúlpur. Síðustu þrjú ár hefur hann tekið hjartalyf, sem hann þarf að taka það sem eftir er ævinnar.

„En ég þarf að búa við það að út af þessum hjartagalla að þá getur liðið yfir mig. Ef ég er undir kannski ákveðnum kringumstæðum eða ef ég hreinlega hleð of miklu álagi á sjálfan mig. Það gerist bara á sunnudaginn. Ég er búinn að vinna yfir mig. Þetta er engum öðrum að kenna nema mér.“

Þakkar fyrir að eiginmaðurinn var heima

Páll Óskar segist hafa ætlað á klósettið um tvöleytið eftir hádegi síðastliðinn sunnudag.

„Ég var orðinn hvítur í framan og ætlaði að fara að labba af stað, en ég missi fótana, missi máttinn í fótunum og það líður yfir mig og ég lendi á andlitinu og kjálkinn tók höggið. Ég er þríbrotinn í kjálkanum. Það fóru allar fyllingarnar úr tönnunum og sjö jaxlar brotnuðu. Skurðlæknirinn tók svo tvo jaxla út annars hefði ég bara fengið tannpínu,“ segir Páll Óskar. Hann þakkar fyrir að eiginmaður sinn Antonio og vinur þeirra hafi verið heima.

„Ég er með víra og teygjur til að halda kjálkanum saman og koma honum aftur á hjarirnar,“ segir Páll Óskar og hlær.

Tveggja mánaða ferli

Bataferlið tekur nú við og þarf hann að vera með vírana örugglega í sex vikur í viðbót. Hann eigi fund með lækninum í dag.

„Svo taka við tannlækningar en vegna þess að ég get tjáð mig svona núna get ég lofað þér því að á milli 1. apríl og 1. maí, ég verð mættur aftur og byrjaður að syngja. Það þýðir ekkert annað. Þetta er allt spurning um og ég skil núna mætavel íþróttafólk, fótboltamenn sem upplifa meiðsl.  Viðhorfið, attitjúdið skiptir öllu máli. Öllu máli. Ekki reyna að benda á einhvern, ekki kenna öðrum um, það er bara eyðsla á orku.“

Hann segist ætla að passa sig að líta ekki í baksýnisspegilinn og hugsa hvað hann hefði getað gert betur. 

„Núna ætla ég að horfa út um framrúðuna. Það er ástæða fyrir því að framrúðan er stærri en baksýnisspegillinn. Horfa út um hana, nú geri ég bara það sem ég get gert. Nú tekur við hvíld, ég jafna mig, svo tekur við sjúkraþjálfun, ég fæ kannski kærkomna hvíld líka í leiðinni. Ég er mjög bjartsýnn á það að eftir svona tvo mánuði verði ég kominn í gang.“

Áfallið meira fyrir eiginmanninn

Páll Óskar segir að þetta sé vissulega áfall, en eiginmaður hans hafi fengið meira áfall en hann. Sjálfur hafi hann dottið út og rankað við sér þegar sjúkraflutningamenn komu á heimilið. 

„Allt starfsfólk á sjúkrahúsinu, Landspítala Fossvogi, tóku mér dásamlega vel. Þetta er prósess sem ég treysti og ég ætla að fara eftir því sem þau segja og taka þetta í hænuskrefum. Með því að passa sig að hafa líka húmór fyrir þessu og vera með hann á réttum stað. Það lyftir heilu bjargi af herðunum á manni. Af því það er líka ógeðslega fyndið í sjálfu sér að ég sé kjálkabrotinn heima hjá mér og að það sé að koma út lag í dag sem heitir Allt í lagi.“

Hafði aldrei hitt Benna áður en plata á leiðinni

Lagið var frumflutt í gær á Hljómskálanum á RÚV. Páll Óskar segir Kidda í Hjálmum hafa lag á að koma tveimur ólíkum listamönnum saman. Páll Óskar segist hafa fengið símtal frá Kidda sem sagði honum að fara í stúdíóið til Benna Hemm Hemm, sem Páll Óskar hafði aldrei hitt áður. 

„Í fyrsta hitting hjá Benna kom ekki bara eitt lag, heldur fleiri lög. Og við Benni horfðum bara á hvern annan og nú er tilbúin hjá okkur dásamleg tólf laga plata sem við erum að leggja lokahönd á. Ég á eftir að syngja inn 4-5 lög, annars voru allar upptökur komnar og við getum haldið áfram. Þó ég sé svona í kjaftinum þá getum við alveg haldið áfram, mixa og svona, við nýtum tímann.

Það er svo fyndið, þetta lag, Allt í lagi, er um áhyggjur. Ég hef mjög oft fallið ofan í þann fúla forarpytt að hafa áhyggjur af hlutum sem gerast síðan aldrei. Og þegar ég fatta að þeir gerast ekki þá geri ég mér grein fyrir því að Vá djöfull eyddi ég mikilli óþarfa orku í að hafa áhyggjur af einhverju sem gerðist ekki, þetta var bara svona tuð.“

Páll Óskar segir auðvelda leið út úr þessu, bara að draga djúpt andann, anda út og inn. „Og þá nær maður jarðtengingu og kemst aftur í gang og gerir þér grein fyrir því að hlutirnir eru ekki jafnslæmir og við kannski málum þá, þeir eru ekki jafnslæmir og við höldum.“

Hlusta má á viðtalið í heild sinni hér. 

Hlusta má á lagið Allt í lagi á Spotify.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Ragga segir að næra þurfi ræturnar svo geðheilsan blómstri

Ragga segir að næra þurfi ræturnar svo geðheilsan blómstri
Fókus
Í gær

„Eftir að ég greindist með krabbamein, var ég að berjast við bæði stríðið og krabbameinið“

„Eftir að ég greindist með krabbamein, var ég að berjast við bæði stríðið og krabbameinið“
Fókus
Í gær

Verðlaunahafar Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Blóðdropans 2024

Verðlaunahafar Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Blóðdropans 2024
Fókus
Í gær

Love Island-sigurvegari dæmdur í fangelsi í óvenjulegu máli

Love Island-sigurvegari dæmdur í fangelsi í óvenjulegu máli
Fókus
Fyrir 2 dögum

Ugla Stefanía vandar umtöluðustu bíómynd ársins ekki kveðjuna: „Hún er alveg agaleg“

Ugla Stefanía vandar umtöluðustu bíómynd ársins ekki kveðjuna: „Hún er alveg agaleg“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Nær óþekkjanlegur eftir sambandsslitin – „Eins og víkingur“

Nær óþekkjanlegur eftir sambandsslitin – „Eins og víkingur“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Grínistinn ósáttur eftir að hann var leiddur í gildru ásamt meintum ættingja – „Er hægt að klippa þetta út?“

Grínistinn ósáttur eftir að hann var leiddur í gildru ásamt meintum ættingja – „Er hægt að klippa þetta út?“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Magnús Kjartan greindist með hvítblæði í fyrra og er í viðhaldsmeðferð – „Hef fulla trú á því að skugginn hverfi aldrei en fari bara að gera það sama og ég“

Magnús Kjartan greindist með hvítblæði í fyrra og er í viðhaldsmeðferð – „Hef fulla trú á því að skugginn hverfi aldrei en fari bara að gera það sama og ég“