Það er því engin furða að orðum hans sé veitt athygli í Evrópu. Með orðum sínum segir Merz að grundvallarbreyting verði að eiga sér stað á reglum ESB varðandi flóttafólk og innflytjendur. Hann er ekki einn um þessa skoðun.
Danmörk vinnur nú að því með Hollandi og Ítalíu að fá fleiri ESB-ríki til að styðja hertar reglur varðandi flóttafólk og hælisleitendur.
Með orðum sínum lýsti Merz því yfir að þetta sé ófrávíkjanlega krafa af hans hálfu og að hann muni ekki víkja frá henni þegar kemur að stjórnarmyndunarviðræðum.
Samkvæmt stjórnarskránni, þá hefur kanslarinn heimild, eins og Bandaríkjaforseti, til að gefa út tilskipanir án þess að öll stjórn hans standi á bak við þær. Merz hefur í hyggju að gefa út tilskipun um að landamæraeftirlit verði tekið upp á öllum landamærum Þýskalands og að öllum, sem ætla sér að komast ólöglega inn í landið, verði vísað frá án undantekninga.