fbpx
Föstudagur 31.janúar 2025
Fréttir

Kristinn Rúnar fékk loksins greiningu eftir sjö ára þrautagöngu – „Líkaminn var bókstaflega að öskra á hjálp“

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 30. janúar 2025 21:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í október 2023 mætti lögreglan á vettvang í miðbænum eftir að tilkynning barst um mann sem væri staddur þar að æla á bíla. Maðurinn var Kristinn Rúnar Kristinsson, sem var orðinn fárveikur eftir erfið líkamleg veikindi sem hann glímdi við á köflum frá árinu 2018.

Ítrekað upplifði hann tveggja vikna ælutarnir, veikindi sem engin niðurstaða fékkst í. Kristinn leitaði sér aðstoðar á bráðamóttökunni og Læknavaktinni, en var einatt spurður hvort hann væri ekki bara með ælupest. Í síðustu viku fékk Kristinn loksins greiningu á veikindum sínum eftir átta klukkustunda dvöl á bráðamóttökunni í alls konar rannsóknum.

„Loksins er komin niðurstaða varðandi erfið líkamleg veikindi sem ég hef glímt við á köflum frá árinu 2018. Ég hef í 12-15 skipti upplifað u.þ.b. tveggja vikna ælutarnir, þar sem skrokkurinn varð auk þess mjög aumur, kuldaköst fylgdu, beinverkir, 40 stiga hiti, engin matarlyst var og almennt mikil vanlíðan.

Tvisvar sinnum fór ég á bráðamóttökuna, einnig á Læknavaktina en var alltaf bara kýldur niður: „Ertu ekki bara með ælupest?“  Hver er með ælupest stanslaust í tvær vikur…“

Kviðverkir bætast við

Síðastliðið haust fór Kristinn Rúnar einn síns liðs til Ekvador og segir hann ástandið hafa verið verst þá. Hann sneri aftur heim og veikindin áttu mestan þátt í þeirri ákvörðun.

„Í desember og janúar sl. fóru síðan að fylgja gríðarlegir kviðverkir með æluköstunum.“

„Þú veist að þetta er bráðamóttakan, sko. Þú lítur ekki út fyrir að deyja, er það?“

Í síðustu viku mætti Kristinn á bráðamóttökuna og segir að sú sem tók á móti honum hafi ekki ætlað að hleypa honum svo auðveldlega inn. 

„Hún sagði: „Þú veist að þetta er bráðamóttakan, sko. Þú lítur ekki út fyrir að deyja, er það?“ „Nei, nei,“ sagði ég … „ég er eflaust ekki við dauðans dyr en ég er samt sem áður mjög veikur og verkjaður.“

Konan benti Kristni að fara á Læknavaktina. Kristinn sagði henni að hann vildi helst fá snögglega út úr blóðprufu en til vara að fá allavega blóðþrýstingsmælingu. 

„Konan sem tók þá mælingu vissi meira en þessi í móttökunni og þegar ég sagði henni hvar verkurinn væri grunaði hana að þetta tengdist gallblöðrunni. Einnig var ég með tæplega 40 stiga hita og hjartað sló 127 sinnum á mínútu … líkaminn var bókstaflega að öskra á hjálp.“

Kristinn loksins kominn inn fyrir dyr bráðamóttökunnar. Mynd: Facebook

Dvaldi einn dag á bráðamóttökunni í rannsóknum

Kristni var því kippt strax inn og var hann næstu átta klukkutíma á bráðamóttökunni í alls kyns blóðprufum, tölvusneiðmyndatöku og röntgen. 

„Út úr því kom að ég var með miklar bólgur í gallblöðru og líklega með gallsteina. Var látinn fasta með mat og vökva því mögulega yrði gallblaðran tekin um kvöldið. Það þótti síðan ekki æskilegt strax vegna þess hve bólgin gallblaðran var – en ég var fluttur af bráðamóttökunni á Fossvogi yfir á Hringbraut. Nánar tiltekið á Kviðarhols- og þvagfæraskurðlækningadeild.

Ómun leiddi síðan í ljós gallsteina og fór ég í litla en mjög svo sársaukafulla skurðaðgerð til þess að drena sýkingu og vökva úr gallblöðrunni – engin svæfing, bara kæruleysislyf.

Ég fékk síðan fljótlega á eftir morfín í læri. Það hljómar reyndar mjög hart að skrifa það! Hjúkrunarfræðingur tjáði mér að hún hefði séð svona framkvæmt á dúkku í sínu námi og það væri ógnvekjandi að gera sisvona á fólki.

Ég þarf síðan að vera með slöngu og leggpoka á mér öllum stundum næstu þrjá mánuðina, eða þangað til gallblaðran verður fjarlægð.“

Kristinn þarf að vera með slöngu og leggpoka öllum stundum þar til gallblaðran verður fjarlægð eftir þrjá mánuði. Mynd: Facebook

Stutt í blóðeitrun 

Í ljós kom að Kristinn var kominn í lífshótandi ástand og var honum tjáð að hann hafi verið korter í að fá blóðeitrun, öðru nafni sýklasótt.

„Skurðlæknirinn á deildinni sagði mig mjög veikan, með 272 í sýkingar- og bólgustuðli (CRP). Heilbrigð manneskja er undir tíu á þessum stuðli.“

Eins og ofangreint væri ekki nóg þá greindist Kristinn einnig með salmonellu á þriðja degi og var settur í einangrun. 

„Smitið kom úr dreninu og gæti hafa grasserað í töluverðan tíma hjá mér. Mögulega frá því ég var í Ekvador í haust. Annað og öðruvísi sýni, sem var tekið, var hins vegar neikvætt. Þetta var lítið mál,“ segir Kristinn sem segir plúsinn hafa verið að hann fékk einkaherbergi.

Kominn í einkaherbergi. Mynd: Facebook

Þar sem gallblaðran er hætt að sinna skyldu sinni verður hún fjarlægð eftir u.þ.b. þrjá mánuði, það er ekki hægt fyrr vegna bólgu. 

„Þetta á ekki að hafa mikil áhrif fyrir framtíðina, að hafa hana ekki, betri líðan ætti að verða með tíð og tíma og veikindin þrálátu ættu að vera úr sögunni.“

Í samtali við DV segist Kristinn hafa dvalið fyrsta daginn á bráðamóttökunni í Fossvogi og var hann síðan færður á Hringbraut, kviðarhols-og þvagfæraskurðlækningadeild. „Ég útskrifaðist ígær en verð í eftirfylgni, var á spítala 23. -29. janúar.“

Mynd: Facebook

Segir síðustu ár hafa verið skrautleg

Kristinn segir síðustu ár hafa verið skrautleg. Þegar honum leið sem verst þá leið honum skást í heitu og köldu. „Þegar potturinn hjá mömmu og pabba var orðinn volgur, eftir mikla notkun, þá fór ég í Sundhöllina og var í heitu og köldu í nokkra klukkutíma. Þetta var eins og morfín fyrir mig, tímabundin vellíðan.“

Hann segist stundum hafa þurft að æla fjarri salerni og í eitt skiptið, í október 2023, barst lögreglunni tilkynning um að maður væri að æla á bíla í miðbænum. 

„Hún hafði upp á mér og spurði mig hvað mér gengi til að vera að æla á bíla. Ég sagði: „Guð minn almáttugur. Haldið þið í alvörunni að ég sé að ganga hér um og leika mér að því að æla á bíla? Ég er að díla við veikindi og get lofað ykkur því að ég er ekki að æla á bíla, þó það gæti hafa litið þannig út úr fjarska, að ég hafi verið nálægt einhverjum bílum.“ Í þann mund sóttu foreldrar mínir mig á Hlemm og ég bað þau að staðfesta við lögreglu að ég væri veikur, og ekki ælandi á bíla. Hún tók þessum útskýringum gildandi og fór hálfglottandi í burtu út úr þessum furðulegu aðstæðum.“

Kristinn ber sig vel enda loksins kominn með greiningu. Mynd: Facebook

Var á því að ferðin á bráðamóttökuna yrði fýluferð

Kristinn segist mjög feginn að hafa hlustað á fjölskyldu sína eftir síðustu veikindi hans, að hann yrði að fara á bráðamóttökuna. 

„Ég sagði þeim alltaf að fólkið þar segði ekkert að mér. Þegar ég fór á bráðamóttökuna 23. janúar var ég mjög óviss framan af degi að fara, því það myndi hvort sem er ekkert koma út úr því. Mamma fór hins vegar með mér, stóð sig eins og kletturinn sem hún er, og loksins komu svör sem ég var búinn að bíða eftir mjög lengi.“

Síðustu viku hefur Kristinn svarað sýklameðferð mjög vel og munu þær halda áfram 2-3 vikur í viðbót. Eftir viku fer hann í blóðprufu og síðan eftirfylgni á deildinni eftir tvær vikur. 

„CRP-gildið var komið niður í 58 í gær og ég því hratt á leið til heilbrigðs manns.“

Mynd: Facebook

Hvað gerir gallblaðran, hvað eru gallsteinar og hvað gerist ef gallblaðran er tekin?

Gallið myndast í lifrinni og mikilvægasti hluti þess eru gallsölt, sem gegna lykilhlutverki við meltingu á fitu.  Gallsöltin koma inn í meltingarveginn í skeifugörninni rétt neðan við maga og blandast þar fæðunni. Þau leysa upp fitu sem fer út í sogæðar og þaðan út í blóðið. Þegar gallsöltin hafa lokið þessu hlutverki sínu frásogast þau neðst úr görninni og fara aftur til lifrarinnar. Gallsöltin eru því endurnýtt og áðurnefnd hringrás margendurtekin. Minna en 5% þeirra glatast við hverja hringferð, en lifrin á auðvelt með að bæta það upp. Aðstreymi gallsalta til lifrarinnar er fyrst og fremst 3-5 klukkustundum eftir máltíð, eða þegar fæðan er melt og komin í gegnum mjógirni og niður í ristil. Hlutverk gallblöðrunnar er því í stuttu máli það að geyma gallsöltin milli áðurnefndra hringferða.

Ástæður gallblöðrutöku eru yfirleitt gallsteinar eða bólga í gallblöðru og er gallblaðran þá að mestu hætt að sinna hlutverki sínu. 

Þegar gallblaðran er tekin flæðir gallið inn í görnina þegar ekki er þörf fyrir það og enn fremur getur vantað gall þegar þegar þess er þörf þar sem engar varabirgðir eru til. Afleiðingar gallblöðrutöku geta verið þær að maðurinn þolir illa fituríkan mat og er því yfirleitt ráðlegt að neyta feitmetis í hófi.

Það sem einkum eykur líkur á að fá gallsteina er offita, hár aldur, fituríkur matur með litlu af trefjum og fjölskyldusaga (ættingjar sem hafa fengið gallsteina). Gallsteinar eru mun algengari hjá konum en körlum. Ekkert öruggt samband er milli fæðu og gallsteina en margt bendir til að fæða sem inniheldur mikið af kólesteróli og sykri (sterkju) en lítið af trefjum auki hættu á gallsteinum. Tíðni gallsteina eykst með aldrinum og þeir sem eru feitir eru í mun meiri hættu en aðrir. Einnig hefur komið í ljós að strangir megrunarkúrar eða fasta auka verulega hættuna á gallsteinum. Erfðir skipta greinilega máli og þeir sem eiga nákomna ættingja sem fengið hafa gallsteina eru í meiri hættu en aðrir.

Gallsteinar byrja sem örsmá korn en geta orðið á stærð við golfkúlu.

Gallsteinar finnast oft fyrir tilviljun og valda í fæstum tilfellum óþægindum. Steinar sem ekki valda neinum einkennum gefa yfirleitt ekki tilefni til meðferðar. Gallsteinar geta valdið skyndilegum og miklum verkjum sem oftast eru efst í kviðnum, stundum hægra megin, og geta verið með útgeislun aftur í bak eða hægra herðablað. Þessi verkjaköst standa gjarna í nokkrar klukkustundir og þeim geta fylgt ógleði og uppköst. Gallsteinn getur stíflað gallganginn og valdið verkjum, gulu, ljósum hægðum eða jafnvel brisbólgu. Þegar um slíka stíflu er að ræða kemur iðulega sýking í gallblöðruna, gallblöðrubólga, með sótthita og slappleika.

Upplýsingar: Vísindavefurinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

„Í morgun varð mannbjörg“

„Í morgun varð mannbjörg“
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Hatrammar ofsóknir bróður enduðu með ósköpum eftir falskar ásakanir um barnaníð

Hatrammar ofsóknir bróður enduðu með ósköpum eftir falskar ásakanir um barnaníð
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Samfylkingin vill herbergi Sjálfstæðisflokksins en hann vill alls ekki gefa það eftir

Samfylkingin vill herbergi Sjálfstæðisflokksins en hann vill alls ekki gefa það eftir
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Flugslys í Bandaríkjunum í nótt: Óttast að tugir hafi farist þegar farþegaflugvél lenti í árekstri við herþyrlu

Flugslys í Bandaríkjunum í nótt: Óttast að tugir hafi farist þegar farþegaflugvél lenti í árekstri við herþyrlu