fbpx
Föstudagur 31.janúar 2025
Fréttir

Kynferðisbrotamaður sleppur með skilorð eftir að móðir og stjúpfaðir brotaþola létu hendur skipta

Jakob Snævar Ólafsson
Fimmtudaginn 30. janúar 2025 19:30

Héraðsdómur Reykjavíkur

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maður hefur verið sakfelldur í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa brotið kynferðislega gegn ungri konu sem hann var að keyra heim en maðurinn starfaði sem svokallaður „skutlari“. Fékk maðurinn skilorðsbundinn dóm ekki síst á þeim grundvelli að hann hlaut áverka í átökum við móður og stjúpföður brotaþolans.

Aksturinn hófst í Hafnarstræti í Reykjavík en maðurinn var ákærður fyrir að káfa á brjóstum og kynfærum ungu konunnar innanklæða og fyrir að hafa reynt að kyssa hana tungukossi.

Lýsing á atburðarásinni og framburði málsaðila er afar ítarleg í dómnum svo hér er aðeins hægt að stikla á stóru.

Lögreglan var kölluð á vettvang að nóttu til í mars 2023. Samkvæmt tilkynningunni hafði skutlarinn brotið á ungu konunni og svo ráðist á foreldrana þegar komið var að heimilinu en að foreldrarnir héldu honum niðri.

Unga konan bjó þó hjá móður sinni en móðir hennar og stjúpfaðir bjuggu ekki saman þegar þessir atburðir gerðust en átökin áttu sér stað nærri heimili stjúpföðurins.

Komu lögreglumenn að stjúpföðurnum þar sem hann hélt manninum í kæfingartaki á bílaplani við húsið. Var stjúpfaðirinn tregur til að sleppa en báðir voru þeir blóðugir en maðurinn þó töluvert meira og hann var meðvitundarlítill. Undir mönnunum var spýta sem stjúpfaðirinn og móðirin sögðu manninn hafa ráðist á þau með.

Í uppnámi

Þegar lögreglan ræddi við stjúpföðurinn og móðurina voru þau í sýnilegu uppnámi. Blóð var á fötum þeirra og stjúpfaðirinn með stóra kúlu á enninu.

Þau lýstu atburðum þannig að brotaþolinn hefði hringt í þau um nóttina úr bíl mannsins, grátandi. Hún hefði sagst vera í leigubíl. Stjúpfaðirinn hafi talað við manninn og áttað sig á því að ekki væri um leigubíl að ræða. Maðurinn hafi átt bágt með að skilja hann þegar hann hafi reynt að leiðbeina honum um hvernig ætti að setja heimilisfangið inn í Google Maps.

Móðirinn hafi tekið á móti þeim utandyra og sest fyrir aftan dóttur sína sem setið hafi í framsæti. Dóttir hennar hafi verið í miklu uppnámi og eftir að hafa verið þráspurð sagt að maðurinn hafi snert hana bæði innan- og utanklæða, þar með talið kynfærin. Hún hafi sent þá dótturina inn á heimilið en verið eftir í bílnum og spurt manninn hvort hann hafi snert dóttur hennar. Fyrst hafi hann þóst ekki kunna ensku en síðan viðurkennt að hafa snert hana. Móðirin sagðist þá hafa tilkynnt manninum að hún myndi hringja á lögregluna. Þá hafi hann kýlt hana. Á þeim tímapunkti hafi unnusti hennar, stjúpfaðir brotaþolans, verið kominn inn í bílinn og kýlt manninn á móti. Átökin hafi borist út fyrir bílinn og maðurinn ráðist á þau bæði með spýtunni og hafi einnig bitið stjúpföðurinn.

Stjúpfaðirinn tjáði lögreglumönnum að hann hefði haldið manninum í kyrkingartaki í nokkrar mínútur en heyrt hann anda allan tímann.

Vildi ekki hætta

Lögreglumenn ræddu því næst við brotaþolann en í dómnum segir að hún hafi bersýnilega verið ölvuð. Hún tjáði lögreglumönnum að maðurinn hefði snert hana innanklæða án hennar samþykkis.

Móðir hennar og stjúpfaðir voru á endanum bæði handtekin og flutt á lögreglustöð þar sem tekin voru úr þeim blóðsýni en maðurinn var fluttur á sjúkrahús.

Blóðsýni var tekið úr brotaþolanum og reyndist hún töluvert ölvuð en hún sagðist aðeins hafa drukkið fjögur hvítvínsglös. Sagðist hún síðar hafi orðið undrandi á hversu ölvuð hún varð. Um morguninn fór hún í skýrslutöku hjá lögreglu. Þar sagðist hún hafa sest í bíl mannsins sem hafi verið í leigubílaröðinni við Hlöllabáta í Ingólfsstræti. Hann hafi ekið af stað, sagt hana vera sæta og káfað á brjósti og kynfærum hennar innanklæða og haldið áfram þótt hún hafi farið að gráta og beðið hann um að hætta.

Nokkrum dögum síðar kom brotaþolinn aftur í skýrslutöku og endurtók framburð sinn en sagði einnig að maðurinn hefði reynt í sífellu að kyssa hana og boðið henni far að fyrra bragði og sagst vera „taxi“. Öll samskipti þeirra hefðu farið fram á ensku þar sem hann skildi ekki íslensku.

Hafi ekki boðið henni í bílinn

Í skýrslutöku hjá lögreglu neitaði maðurinn því að hafa snert ungu konuna á kynferðislegan hátt. Hún hafi sest óboðin inn í bíl hans og hann hafi átt frumkvæðið að því að hún hringdi í móður sína þar sem illa hafi gengið að fá rétta heimilisfangið frá henni.

Á eftirlitsmyndavélum mátti sjá bíl mannsins ekið um miðbæinn og brotaþolann ganga um þar til hún settist inn í bílinn.

Maðurinn hélt fast við framburð sinn fyrir dómi og sagðist hafa ákveðið að skutla ungu konunni heim þar sem hún hafi verið mjög aðgangshörð.

Hann neitaði því alfarið að hafa ráðist á móður og stjúpföður brotaþolans og sagði þau hafa ráðist á hann.

Unga konan endurtók fyrri framburð sinn fyrir dómi og sagðist hafa glímt við kvíða og svefnleysi eftir atvikið.

Hætt saman

Fyrir dómi kom fram að frá því að þessir atburðir hefðu átt sér stað hefðu móðirin og stjúpfaðirinn slitið sambandi sínu.

Móðirin sagði að þau hefðu ekki neytt fíkniefna þetta kvöld en stjúpfaðirinn andmælti því. Fyrir dómi sagðist móðirin hafa slegið manninn eftir að hann hefði viðurkennt að hafa snert dóttur hennar á óviðeigandi hátt. Maðurinn hefði dregið spýtu undan bílstjórasætinu og reynt að hlaupa í burtu en unnusti hennar hafi elt hann.

Í niðurstöðu héraðsdóms er áðurnefndum upptökum úr eftirlitsmyndavélum lýst ítarlega. Fram kemur að bifreið mannsins hafi stoppað ítrekað nærri brotaþolanum þar sem hún gekk um miðbæinn og þau greinilega átt í samskiptum áður en hún settist inn en það stangist á við þann framburð mannsins að unga konan hafi sest inn í bíl hans honum að óvörum.

Framburður

Segir í niðurstöðunni að við mat á framburði móðurinnar og stjúpföðursins verði að taka mið af tengslum þeirra við brotaþolann og því að blóðsýni hafi sýnt fram á að þau hafi bæði verið undir áhrifum fíkniefna umrædda nótt.

Þó segir í niðurstöðunni að framburður þeirri styðji framburð brotaþolans sem hafi verið stöðugur frá upphafi fyrir utan misræmi um hvenær hún hafi greint móður sinni frá broti mannsins gegn henni.

Framburður mannsins hafi einnig verið stöðugur en hann hafi aldrei gefið skýringar á því hvers vegna upptökurnar úr eftirlitsmyndavélunum væru í ósamræmi við þann framburð hans að brotaþolinn hafi sest inn í bíl hans án leyfis og honum að óvörum.

Þar af leiðandi þóttu brot mannsins sönnuð og hann því sakfelldur. Við ákvörðun refsingar var horft til þess að þegar hann framdi brotið var hann á skilorði fyrir líkamsárás gegn barni sem og þess að brot mannsins væri alvarlegt. Á móti var horft til þess að í framhaldi af atvikinu hefði verið ráðist á manninn og hann ekki jafnað sig af þeirri árás.

Því þótti hæfilegt að dæma hann í 10 mánaða skilorðsbundið fangelsi en refsingin fellur niður eftir þrjú ár brjóti maðurinn ekki aftur af sér. Hann þarf einnig að greiða brotaþolanum 500.000 krónur í miskabætur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Vilja stoppa áfengissölu á íþróttaviðburðum – „Fyrirmyndir í stúkunni séu líka til fyrirmyndar“

Vilja stoppa áfengissölu á íþróttaviðburðum – „Fyrirmyndir í stúkunni séu líka til fyrirmyndar“
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

„Í morgun varð mannbjörg“

„Í morgun varð mannbjörg“
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Erfið færð í morgunsárið en á morgun tekur alvaran við – Asahláka og úrhellisrigning í kortunum

Erfið færð í morgunsárið en á morgun tekur alvaran við – Asahláka og úrhellisrigning í kortunum
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Samfylkingin vill herbergi Sjálfstæðisflokksins en hann vill alls ekki gefa það eftir

Samfylkingin vill herbergi Sjálfstæðisflokksins en hann vill alls ekki gefa það eftir