Það er stundum ágætt að taka sér fréttafrí. Ekki að það sé auðvelt hafi maður slíkan áhuga en mannbætandi eru slíkar pásur alltaf. Það er einnig merkilegt að það virðist engin áhrif hafa á gang heimsmálanna sleppi maður hendinni af því sporti að „fylgjast grannt með stöðu mála.“
Þegar ég snéri stutt við úr pásunni sá ég að við blasti óbreytt ástand. Fullkomin óreiða hvert sem litið er.
Trump er greinilega alvara með hugmyndir sínar um yfirtöku á Grænlandi sem býr yfir gríðarlegum náttúruauðævum sem margir ásælast, en að sögn til að reyna að tryggja varnir þess „stórfenglega“ ameríska heimsveldis sem hann hyggst endurreisa.
Við skulum muna að þrátt fyrir svokallað brotthvarf ameríska hersins á Íslandi er nú um stundir áður óþekkt fyrirferð Bandaríkjamanna á Íslandi. Við erum nú illu heilli með öflugustu bardagaþotur þeirra í Keflavík og sannkallað varnarvirki til að geta verið skotpallur ákveði Bandaríkin að skora aðra risa á hólm. Loksins erum við orðin verðugt skotmark, þökk sé íslenskum stjórnvöldum og gleiðbrosandi undirgefni þeirra við USA sem skartar nú ríkisstjórn sem væri trúverðug í Marvel mynd. Bandaríkin eru hér með tögl og hagldir og Trump er vor herra hvort sem okkur líkar betur eða verr. Þar berum við alla ábyrgð.
Dönum er brugðið við frekju Trumps, sem er furða. Ég veit ekki betur en herraþjóðin Danir hafi komið fram við Grænlendinga með yfirgangi og hreinræktuðu ofbeldi alla tíð. Langflestir Grænlendingar vilja vitanlega ekkert með Bandaríkin hafa að gera og langþreyttir eru þeir á Dönum sem vilja ekki sleppa af þeim forræðinu.
Íslendingar, áhugi þeirra og stuðningur við sjálfstæðisbaráttu annarra þjóða hefur aldrei náð af neinu viti til Grænlands þrátt fyrir að við höfum barist fyrir sjálfstæði okkar undan sömu herraþjóð. Íslendingar hafa alla tíð reynt að fjarlægja sig Grænlandi frekar en hitt enda er frumbyggjastimpillinn sem Grænlendingar óneitanlega enn bera eitthvað sem Íslendingar vilja seint láta kenna við sig.
Við viljum þvert á móti vera álitin nútímaleg Evrópuþjóð í flokki annarra „mikilvægra þjóða“ á sama tíma og við erum löngu orðin aftengd okkar eigin uppruna. Við sviðsetjum eitthvað á auglýsingastofum hér heima sem á að vera „íslenskt, sveitókúl og orginal“ til að geta selt útlendingum íslenskar náttúruperlur sem heita nú einhverjum bjánalegum enskum nöfnum og kaffi og kleinur á okurprís.
Ekki er það beysið.
Það er mikið messað um stjórnlyndi Trumps og jú yfirgengilegt er það margt og súrt. Hann er sá strongman sem réttlætanlegt er að hata samkvæmt liberalistum heimsins. Ég nenni ekki að hata Trump. Í fyrsta lagi vegna þess að það að hata bætir ekki líðan mína nema síður sé og í öðru lagi hefur það ekkert upp á sig.
Ég sé hins vegar ýmislegt í offorsi Trumps sem minnir mig óneitanlega á það sem er að gerast hér í mínum heimagarði. Þá á ég við þá úrkynjuðu hugmyndafræði sem er að ganga sér til alþurrðar á heimsvísu, að ekkert sé heilagt og á öllu verði að græða.
Íslenskt stjórnmála og athafnafólk hefur með skammsýni og brengluðu verðmætamati verðmerkt hvern lófastóran blett og hafa þegar og eru að selja frá okkur sjálfstæðið. Gefin eru leyfi til að skaða náttúru landsins í algjöru miskunnarleysi gagnvart því lífríki sem hér er og fólkinu sem vill búa hér. Sameiginlegir innviðir eru molaðir innan í fullkomnu virðingarleysi gagnvart því starfi sem fyrirrennarar okkar lögðu á sig til uppbyggingar fyrir afkomendur sína.
Við verðum að staldra við og reyna að finna leiðir til að endurheimta sjálfstæði okkar og sjálfsvirðingu.
Hverskonar fólk er það sem selur undan löndum sínum land, vatn, auðæfi og frið fyrir skyndigróða örfárra þvert á vilja þorra landsmanna og þjónkun við steikt stórveldi? Slíkt fólk hefur tapað glórunni.
Hvers konar þjóð viljum við vera og í hvers konar landi viljum við búa?
Vitum við það? Verðum við ekki að reyna að hugsa það af alvöru?
Ég óska þess að ný ríkisstjórn leggi minni áherslu á „stærð“ okkar og „gjaldgengilegheit“ út á við og beini kröftum sínum að því að verja landið okkar og þar með hagsmuni almennings fyrir yfirgangi heimsvelda, heimaöldum þjófum og þeirra þjófsnautum.
Áfram Ísland!