fbpx
Fimmtudagur 30.janúar 2025
Pressan

Trump vill senda 30 þúsund innflytjendur til Guantánamoflóa

Pressan
Miðvikudaginn 29. janúar 2025 22:16

Donald Trump Bandaríkjaforseti. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í dag að hann ætli að skipa Pentagon og heimavarnarliði Bandaríkjanna að reisa fangabúðir í Guantánamoflóa á Kúbu fyrir allt að 30 þúsund ólöglega innflytjendur.

Þangað ætlar hann svo að senda þá innflytjendur sem hafa brotið hvað mest af sér.

„Sumir þeirra eru svo hræðilegir að við treystum ekki einu sinni þeirra eigin þjóðum til að halda aftur af þeim, því við viljum ekki fá þá til baka svo við ætlum að senda þá til Gunatánamo.“

Allt frá árinu 2002 hafa Bandaríkjamenn rekið herfangelsi í Guantánamó og sent þangað meinta hryðjuverkamenn án dóms og laga. Fangelsið er hluti af herstöð Bandaríkjanna á svæðinu, en aðeins 15 fangar eru hýstir þar í dag.

Eins má þar finna búðir fyrir flóttamenn og ólöglega innflytjendur, í flestum tilvikum flóttamenn frá Kúbu og Haíti. Samtök sem berjast fyrir hagsmunum flóttamanna hafa gagnrýnt búðirnar og telja að þar sé fólki boðið upp á ómannúðlega vist þar sem skortir á hreinlæti, fólk hafi takmarkaða getu til að hafa samband við fjölskyldur sínar og engin menntun sé í boði fyrir börn.

Trump skrifaði undir lög í kvöld sem auðvelda Bandaríkjunum að vísa ólöglegum innflytjendum sem hafa gerst brotlegir við lög úr landi. Nægir þá einföld ásökun um glæp, en ekki er gerð krafa um að leggja málin fyrst undir dómstóla.

Trump lofaði því í kosningabaráttu sinni að vísa milljónum ólöglegra innflytjenda úr landi, einkum þeim sem hafa gerst brotlegir við hegningalög. Hann hefur þó rekið sig strax á veggi þegar heimaþjóðir þessara einstaklinga neita að taka við þeim.

Hann lofaði eins í dag að berjast gegn gyðingahatri. Beindi hann þá ekki máli sínu að nýnasisma sem hefur verið á nokkru flugi í Bandaríkjunum undanfarið, heldur til einstaklinga sem styðja Palestínu í stríðinu við Ísrael, þá einkum til skiptinema og erlendra námsmanna sem hafa tekið þátt í mótmælum gegn Ísrael og samkomum til stuðnings Palestínu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Ísland mætir Færeyjum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Í fyrsta sinn í 30 ár – Fimm dagar í röð án þess að nokkur væri skotinn í New York – Jinxaði löggan þetta?

Í fyrsta sinn í 30 ár – Fimm dagar í röð án þess að nokkur væri skotinn í New York – Jinxaði löggan þetta?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ferðamannaland fer nýja leið til að takast á við vatnsskort – Fylla sundlaugarnar með sjó

Ferðamannaland fer nýja leið til að takast á við vatnsskort – Fylla sundlaugarnar með sjó
Pressan
Fyrir 3 dögum

Átta merki þess að barnið þitt (og aðrir ástvinir þínir) sé narsissisti

Átta merki þess að barnið þitt (og aðrir ástvinir þínir) sé narsissisti
Pressan
Fyrir 3 dögum

Það að kona neiti að stunda kynlíf er ekki rangt og það er ekki skilnaðarsök segir Mannréttindadómstóllinn

Það að kona neiti að stunda kynlíf er ekki rangt og það er ekki skilnaðarsök segir Mannréttindadómstóllinn
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þetta á ekki að setja í airfryer

Þetta á ekki að setja í airfryer
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þetta eru þeir áfangastaðir sem fólk vill helst heimsækja

Þetta eru þeir áfangastaðir sem fólk vill helst heimsækja
Pressan
Fyrir 5 dögum

Þessi mistök í ísskápnum geta eyðilagt matinn

Þessi mistök í ísskápnum geta eyðilagt matinn
Pressan
Fyrir 5 dögum

Þessar grænmetistegundir ýta hugsanlega undir ofþyngd

Þessar grænmetistegundir ýta hugsanlega undir ofþyngd