Stuðningsmenn Tottenham hafa fengið frábærar fréttir fyrir komandi verkefni en félagið hefur staðfest það á samskiptamiðlum.
Varnarmaðurinn öflugi Micky van de Ven er að snúa aftur eftir meiðsli en hann sást hlaupa á æfingu liðsins eftir helgi.
Hollendingurinn hefur ekkert spilað síðan í byrjun desember er hann meiddist í leik gegn Chelsea.
Allar líkur eru á að Van de Ven verði klár í næsta leik Tottenham sem er gegn Elfsborg í Evrópudeildinni á morgun.