fbpx
Fimmtudagur 30.janúar 2025
Fréttir

Ríkið tapaði á beiðni Skattsins um gjaldþrotaskipti

Jakob Snævar Ólafsson
Miðvikudaginn 29. janúar 2025 16:30

Mynd: DV/Maggi gnúsari

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hæstiréttur hefur hafnað beiðni íslenska ríksins um að taka mál þess gegn þrotabúi fyrirtækisins Eignarhaldsfélagið Karpur ehf. fyrir. Varðar málið riftun á greiðslu 20 milljóna króna skuldar fyrirtæksins við Skattinn en það var einmitt sú stofnun sem fór fram á að fyrirtækið yrði tekið til gjaldþrotaskipta. Ljóst er því að ríkið tapaði á gjaldþrotaskiptunum.

Fyrirtækið, sem var heildverslun með postulín og glervöru, var tekið til gjaldþrotaskipta í júlí árið 2022 en það hafði starfað frá árinu 1990.

Í ákvörðun Hæstaréttar kemur fram að þrotabúið höfðaði upphaflega mál á hendur ríkinu til riftunar greiðslu fyrirtækisins til Skattsins í nóvember 2021 að fjárhæð 20.000.000 króna vegna gjaldfallinna opinberra gjalda. Krafðist þrotabúið endurgreiðslu auk vaxta.

Bæði Landsréttur og héraðsdómur dæmdu þrotabúinu í vil með vísan til laga um gjaldþrotaskipti. Í ákvörðun Hæstaréttar segir að fyrirtækið hafi verið tekið til gjaldþrotaskipta að kröfu Skattsins  með úrskurði héraðsdóms 7. júlí 2022. Frestdagur við skiptin hafi verið 28. apríl sama ár. Greiðslan til ríkisins hafi verið innt af hendi með fjármunum sem komu fyrir sölu á fasteign fyrirtækisins en greiðsluáætlun hafði verið undirrituð af hálfu þess 23. nóvember 2021.

Skulduðu ennþá meira

Í dómi Landsréttar kom fram að gjaldfallin opinber gjöld félagsins hefðu áfram verið veruleg þrátt fyrir sölu fasteignarinnar. Á árinu 2020 og fyrri hluta árs 2021 hefðu fimm sinnum farið fram árangurslausar aðfarargerðir hjá félaginu, þar af ein vegna kröfu frá Skattinum, og kröfur um gjaldþrotskipti ítrekað verið hafðar uppi. Þar með yrði að líta svo á að ríkinu hefði í nóvember 2021 verið fullkunnugt um að fyrirtækið væri ógjaldfært. Hin umrædda greiðsla upp á tuttugu milljónir, í þessum sama mánuði, hafi verið ríkinu til hagsbóta á kostnað annarra kröfuhafa og leitt til þess að fjármunir hefðu ekki verið til reiðu til fullnustu krafna þeirra. Var því fallist á kröfu þrotabúsins um riftun og endurgreiðslu.

Í beiðni sinni til Hæstaréttar hélt ríkið því fram að málið hefði verulegt almennt gildi og varðaði sérstaklega mikilvæga hagsmuni þess. Hagsmunirnir séu að skýrt verði hver frumkvæðisskylda innheimtumanna ríkissjóðs sé til að kanna fjárhag gjaldenda þegar tekið sé á móti greiðslu eftir að gerð hafi verið greiðsluáætlun í kjölfar árangurslauss fjárnáms. Sú athugunarskylda sem lögð sé á Skattinn með dómi Landsréttar sé ströng og vafasamt hvort dómurinn sé réttur.

Endurgreiðslan stendur

Hæstiréttur tekur hins vegar ekki undir það með ríkinu að málið hafi verulegt almennt gildi eða varði verulega hagsmuni þess í skilningi laga um meðferð einkamála. Sömuleiðis verði ekki séð að dómur Landsréttar í málinu sé rangur.

Ljóst er því að dómurinn um að ríkinu beri að endurgreiða þrotabúinu milljónirnar tuttugu auk vaxta stendur óhaggaður. Væntanlega er því eina mögulega leiðin fyrir ríkið til að endurheimta þessa fjármuni sú að gera kröfu í þrotabúið eins og aðrir kröfuhafar en miðað við þá erfiðleika sem fyrirtækið var í, skömmu áður en það fór í þrot, við að standa skil á opinberum gjöldum virðist ólíklegt að ríkið endurheimti þessa fjármuni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Ísland mætir Færeyjum
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Vilja stoppa áfengissölu á íþróttaviðburðum – „Fyrirmyndir í stúkunni séu líka til fyrirmyndar“

Vilja stoppa áfengissölu á íþróttaviðburðum – „Fyrirmyndir í stúkunni séu líka til fyrirmyndar“
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

„Í morgun varð mannbjörg“

„Í morgun varð mannbjörg“
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Erfið færð í morgunsárið en á morgun tekur alvaran við – Asahláka og úrhellisrigning í kortunum

Erfið færð í morgunsárið en á morgun tekur alvaran við – Asahláka og úrhellisrigning í kortunum
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Samfylkingin vill herbergi Sjálfstæðisflokksins en hann vill alls ekki gefa það eftir

Samfylkingin vill herbergi Sjálfstæðisflokksins en hann vill alls ekki gefa það eftir
Fréttir
Í gær

Hæstiréttur staðfestir að Ingi Valur nauðgaði 16 ára stjúpdóttur besta vinar síns – Dómurinn klofinn út af framburði nýrra vitna

Hæstiréttur staðfestir að Ingi Valur nauðgaði 16 ára stjúpdóttur besta vinar síns – Dómurinn klofinn út af framburði nýrra vitna
Fréttir
Í gær

Blaðamaður Mannlífs kvartaði nafnlaust undan Stefáni Einari – En svo var nafnið gefið upp

Blaðamaður Mannlífs kvartaði nafnlaust undan Stefáni Einari – En svo var nafnið gefið upp