Google Earth gerir hverjum sem er kleift að skoða loftmyndir af nánast öllum heiminum og þegar fundvís netverji rak augun í merkingar á gömlu iðnaðarsvæði óttuðust margir að þar hefðu mögulega skelfilegir hlutir átt sér stað.
Búið var að raða orðum eins og „HELP“ „TRAFICO“ „FBI“ OG „L-A-P-D“ saman úr gömlu byggingarefni og töldu einhverjir að hugsanleg mansalsfórnarlömb væru á svæðinu. Myndir af þessu fóru í dreifingu og varð það að lokum til þess að lögreglan í Los Angeles sá sig knúna til að senda frá sér yfirlýsingu eftir að hafa skoðað málið.
Í yfirlýsingu á X sagði fulltrúi lögreglu að engin sönnunargögn um mansal hefðu fundist á svæðinu og ekkert grunsamlegt. Telur lögregla að heimilislaus einstaklingur, sem vitað er að dvalið hefur á svæðinu, hafi myndað orðin.